Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.2005, Qupperneq 47
DV Sport
Börkur Edvardsson, formaður knattspyrnudeildar Vals, sem
sakaður er um að hafa rætt ólöglega við Atla Jóhannsson hjá
ÍBV, er í nefnd innan KSÍ sem sér um eftirlit með félagsskiptum.
Þekkir ekki reglurnar sem
hann sér sjálfur um að breyta
Börkur Edvardsson, formaður knattspyrnudeildar Vals, er einn
af þeim fimm mönnum á landinu sem ætti að þekkja best allar
reglugerðir sem snúa að félagsskiptum og samningum innan
KSÍ. Börkur situr í milliþinganefnd KSI um félagsskipti og
samninga, en hún hefur það hlutverk að leggja fram tillögur að
breytingum á þeim reglugerðum að tímabili loknu.
DV að rannsókn málsins væri að
hefjast en það tæki líklega nokkrar
vikur að fá niðurstöðu. Um setu
Barkar í fyrrgreindri nefnd sagði Geir
að ef satt reyndist um brot Barkar
væri það vissulega óheppilegt.
í lið D-4 í reglugerðum KSÍ um
samninga og stöðu leikmanna segir
meðal annars að ekki megi ræða við
samningsbundinn leikmann nema
að fengnu leyfi frá félagi hans. Þó er
leyfilegt að ræða við leikmenn eftir
15. október án leyfis viðkomandi
félags ef samningur hans rennur út
um áramót þess árs.
Börkur hefur viðurkennt að hafa
hringt í Atla fyrr í vikunni og spurt
hann hvort hann gæti hugsað sér að
ganga til liðs við Val næsta sumar. í
samtali við DV í fyrradag sagði hann
það hafa verið mistök af sinni hálfii
þar sem honum hefði verið tjáð að
samningur Atla rynni út í lok þess árs,
en ekki árið 2006 eins og átti eftir að
koma í ljós. ÍBV hefur kært Val vegna
málsins.
Samkvæmt áðumefndri reglugerð
var Berki þó með öllu óheimilt að
ræða við Atla fyrr en 15. október,
jafnvel þó að samningur hans rynni
út í lok þessa árs. Spurður um hvort
það væri ekki æskilegt að hann vissi
þessa hluti, sem meðlimur í nefiid
sem sjái um þessar reglugerðir,
neitaði Börkur
að tjá sig.
Geir Þor-
steinsson, fram-
kvæmdastjóri
KSÍ, staðfesti við
Er beggja vegna borðsins Börkur
Edvardsson braut reglugerðir sem
hanngetur síðan sjálfur lagt til að
breyta eftir tlmabilið.
Línur farnar að skýrast í þjálfaramálunum í Vesturbænum
KR ræðir við Teit um að taka við liðinu næsta sumar
Samkvæmt áreiðanlegum
heimildum DV hafa forráðamenn
KR í Landsbankadeild karla rætt
við Teit Þórðarson um að taka við
stöðu þjálfara liðsins. Teitur vildi
hvorki játa því né neita að hann
hefði átt í viðræðum KR þegar DV
bar það undir hann í gær en
viðurkenndi að hann hyggðist ekki
halda áfram með Ull-Kisa í norsku
2. deildinni eftir þetta tímabil.
Sigursteinn Gíslason tók við KR
eftir að Magnús Gylfason var
rekinn frá félaginu fyrr í sumar en
svo virðist sem að hann sé ekki
hugsaður sem framtíðarmaðurinn
í starfið.
Rafdrifln gluggaopnun
r» mm
vf mnu^iihii
Jám og gler ehf • Skútuvogur 1H
Barkarvogsmegin - S: 58 58 900
INánari upplýsingar um staðsetningu og tímaáætlun bílanna
í símum 825 5451 og 825 5452. RÆSIR HF. sími 540 5400
www.jarngler.is
RÆSIR HF
MANTRA 4x4
á ferð um landið
Laugardaginn 27. ágúst
Kl. 10.00 á Hvolsvelli - hjá Björgunarsveitinni Dagrenningu.
Kl. 13.00 á Selfossi -- hjá Björgunarfélagi Árborgar.
Kl. 15.30 i Hverageröi hjá íþróttahúsinu.
jjj
Buxur kr. 5990
Frír T»B«Y Bolur me
öllum seldum buxum