Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.2005, Page 4
4 LAUGARDAGUR 15. OKTÓBER 2005
Fréttir DV
Verðmunurá
geðlyfjum
Stundum er talað um
geðlyf sem aðferð samfé-
lagsins til að halda í skefj-
um óæskilegri hegðun
fólks. Notkun þeirra er því
nokkuð mikil hér á landi.
Efexor Depot er algengt
geðlyf. Það er selt í nokkr-
um mismunandi pakkning-
um og styrkleiki er misjafn
en 100 stykkja pakkningar
með 75 mg töflum eru
nokkuð algengar. Eldri
borgari eða öryrki greiðir
1.258 krónur fyrir skammt-
inn í Lyfjum og heilsu í
Austurveri. Sami skammtur
kostar 663 krónur í Apótek-
aranum í Nóatúni og þykir
verðmunurinn fáheyrður.
Fá frítt í
bílakjallara
Gunnar Eydal borgar-
lögmaður segir að frír að-
gangur borgarfulltrúa að
bílastæðakjallara undir
ráðhúsinu sé hluti af skrif-
stofuaðstöðu þeirra. Þetta
kemur fram í bréfi sem
borgarlögmaður segist hafa
sent forsætisnefnd borgar-
innar í tilefni þess að
spurningar hafi vaknað um
framkvæmd samþykktar
nefndarinnar um kjör og
starfsaðstöðu borgarfulltrú-
anna. Fyrir utan skrifstofu-
þjónustu og fartölvu fá
borgarfulltrúar greiddar 40
þúsund krónur í starfs-
kostnað.
Hverdrengur
50 kertapakka
Drengir í Drengjakór
Reykjavíkur verða hver og
einn með aðstoð foreldra
sinna að selja 50 pakka af
kertum og sex aðgöngu-
miða að tónleikum til að fá
að vera með í kómum. Að
auki greiða þeir 32 þúsund
krónur fyrir vetrarstarfið. Á
móti fá drengirnir tvær æf-
ingar í viku, kórferð til út-
landa annað hvert ár og
innanlands hitt árið, helg-
arferð í æfingabúðir og
flóra frímiða á tónleika
kórsins.
DV greindi frá því í byrjun mánaðarins að nemendur í Fjöltækniskóla íslands, gamla
Vélskólanum, hefðu fengið tvær nektardansmeyjar til að skemmta á skólaskemmtun
útskriftarnema. í gær var haldinn lokaður fundur þar sem fulltrúar Kvennaathvarfs
og Feministafélagsins töluðu máli jafnréttis fyrir fullum sal sjómannsefna. Ljósmynd-
ari DV fékk ekki að sitja fundinn en blaðamaður sat sem fastast.
Jafnpéttisumræða
fyrip luktum dpm
r og sjó-
m*Sjfíffiftit-Ræða jafn-
rétnsmijl áfjöimennum
'■ine/iLbátiðarsal Fjöl-
vans.Ljós
mynógra vht visað út
éftfriaöjittfa tekið þessa
rnynd .
I byrjun mánaðarins var haldið samkvæmi hjá útskriftarefnum
Fjöltækniskóla fslands. Samkvæmið komst á síður DV fyrir þær
sakir að nemendur þáðu boð Ásgeirs Davíðssonar, Geira á Gold-
finger, að fá tvær nektardansmeyjar sér til skemmtunar.
Skólastjórnendum þótti atburð-
urinn gefa ástæðu til að opna um-
ræðu um jafnréttismál innan skól-
ans og fengu þess vegna fulltrúa frá
Kvennaathvarfinu og Feministafé-
laginu til að ræða við nemendur um
jafnréttismál á lokuðum fundi í gær.
Fundurinn var haldinn fyrir full-
um hátíðarsal skólans. Nemendur
eru nær allir karlmenn og af mæt-
ingu má dæma að þeir eru miklir
áhugamenn um jafnréttismál.
Harmar frétt DV
Jón B. Stefánsson skólameistari
setti fundinn og vitnaði í frétt DV
um nektarsamkvæmið sem haldið
var í Kvennaheimilinu á Hallveigar-
stöðum. Hann harmaði að þessi
leiði atburður hefði komist á síður
blaðsins því slíkt gæti svert nafn
skólans. Hann ítrekaði fyrir nem-
endum að þeir væru óhjákvæmilega
í nafni skólans í slíkum samkvæm-
um þó skólinn sem slíkur stæði ekki
þar á bak við. Þá bauð hann Drífu
Snædal, ffæðslu- og framkvæmda-
stýru samtaka um kvennaathvarf, og
Katrínu önnu Guðmundsdóttur,
talskonu Femínistafélagsins, að
stíga í pontu.
Tenasl kiáms oq
kynferðisofbeldis
Katrín sagði bein tengsl vera á
milli kláms og kynferðisofbeldis.
Klám gæti ýtt undir kynferðisglæpi
hjá vissum karlmönnum sem eru
veikir fyrir. Karlmenn ættu því að
standa saman og hætta að sækja
nektardansstaði því þannig mætti
draga úr kynferðisofbeldi.
Drífa byijaði á að biðja nemend-
ur um að snúa dæminu við í hugan-
um og líta svo á að konur væru í
valdastöðum í þjóðfélaginu. „Hvað
ef konur væru að bjóða karlmenn til
sölu eins og hvem annan varning?"
spurði Drífa. Nokkrir nemendur
höfðu orð á því að slíkt þekktist víða
en Drífa benti þá á að það væri mjög
sjaldgæft. Þá benti hún á þá stað-
reynd að 90% þeirra sem leita sér
hjálpar vegna kynferðislegs ofbeldis
væru konur.
Bremsulaus bíll í brekku
Drífa talaði um dóma sem fallið
hafa í kynferðisbrotamálum þar sem
refsing var milduð vegna þess að
dómari leit svo á að gerandinn hefði
með einhverju móti ekki getað
hamið sig. Hún spurði nemendur
hvort þeim þætti slík ummæli ekki
niðurlægjandifyrirkarlmenn. „Viljið
þið láta líta á ykkur eins og bremsu-
lausa bíla í brekku?" spurði Drífa en
eitthvað fór það fyrir
brjóstið á nokkrum nem-
endum sem misskildu
Drífu á þann veg að hún
væri að kalla fundargesti
kynferðisafbrotamenn. Drífa leið-
rétti þann misskilning.
Líflegar umræður
Nemendum lá margt á hjarta og
voru flestir ósammála Drífu og
Katrínu. Fundinum lauk síðan þegar
einn úr hópi fundargesta stóð upp
og þakkaði þeim Drífu og Katrínu
fyrir að berjast fyrir máli dóttur
sinnar og sagðist í flestu vera ósam-
mála skoðun-
um skóla-
bræðra
sinna.
svav-
ar@dv.is
Geiri á Goldfinger Bauð
sjómannsefnunum upp á
nektardansmeyjar.
Davíð má eiga krónuna
Svarthöfði hefur fylgst vel með
umræðum um evruna að undan-
förnu. Svarthöfði hefur drukkið í
sig áhugaverðar greinar í blöðun-
um um evruna en veit ekki enn
hvort það er rétt að taka hana
upp. Svarthöfði er nefnilega mikill
þjóðernissinni og þykir sem slík-
um afar vænt um íslensku krón-
una. Svarthöfði gerir sér þó grein
fyrir því að það væri heillavæn-
legra fyrir heimilin í landinu að
taka upp evruna. Miðað við verð-
bólguna í landinu sem er að sliga
alla myndu afborganir af húsnæð-
islánum snarlækka með evrunni
auk þess sem verð á matvörum
myndi snarlækka. Þetta myndi
Svarthöfði kunna vel að meta og
myndi væntanlega varpa þjóðern-
iskenndinni og krónunni fyrir
róða.
Svarthöfða þykir þvf skrýtið að
Davíð Oddsson skuli fjargviðrast
svona mikið út í evruna og Evr-
ópusambandið. Davíð hefur alla
Hvernig hefur þú það
„Ég hefþað bara ffnt," segir Magnús Geir Þórðarson, leikstjóri Leikfélags Akureyrar.
Viö erum á siðustu metrunum viö æfingará Fullkomnu brúökaupi sem viö frumsýnum
eftir viku. Þaö er ótrúlega mikiö hlegiö á æfingum og gaman hjá okkur en auövitaö
eru mörg handtök eftir eins og alltafrétt fyrir frumsýningu.“
tíð gengið fram sem landsfaðirinn
mikli en það er ekki að sjá á þessu
máli að hann beri hag sinna
smæstu bræðra fyrir brjósti. Hann
finnur evrunni allt til foráttu, líkt
og verðandi samstarfsfélagar hans
í Seðlabankanum. Það er kannski
ekki skrýtið því miðað við það sem
spekingar segja væri Seðlabank-
inn óþarfur í heimi evrunnar og
Davíð yrði að gera sér að góðu þau
lúsareftirlaun sem honum bjóðast
fyrir þingmennsku og ráðherra-
dóm.
Svarthöfði er ekki alltaf sam-
mála Ingibjörgu Sólrúnu Gísla-
dóttur en þegar kemur að evrunni
slá hjörtu Svarthöfða og Ingibjarg-
ar Sólrúnar í takt. í ljósi þess von-
ast Svarthöfði eftir vinstristjórn
eftir næstu kosningar. Davíð má
eiga krónuna.
Svarthöföi