Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.2005, Side 30
30 LAUGARDAGUR 15. OKTÓBER 2005
Helgarblað DV
'mmtm
1 1 r ■ m I 1
mm
Við hittum Nylon í Vatikaninu sem hannar útlit nýju plöt-
unnar og fylgjumst með hópnum sem veltir fyrir sér
hvaða mynd komi best út. „Það er allt annar fílingur í
myndinni og meira í samræmi við tónlistina á disknum,"
útskýrir Emtlía og hinar stelpurnar kinka koili tU sam-
þykkis meðvitaðar um að það sem þær gera og hvernig
þær haga sér eru sterk skilaboð tU aðdáenda þeirra.
„Vatíkanið útfæröi þetta frábærlega," bætir Emilía við.
„Umslagið á disknum er aðeins
yflrvegaðara en í fyrra," segir Klara
og Alma bætir við: „Á bakhliðinni
má sjá að við tökum okkur ekki of al-
varlega og höfum gaman af þessu
öllu saman.
Lífið tók nýja stefnu
„Við vorum ailar á fullu í skóla og
að klára nám. Áherslurnar voru aðr-
ar og á öðrum hlutum en þær eru í
dag, en við erum allar voða ánægðar
með lífið, það hefur ekkert breyst
nema við fengum tækifæri sem varð
til þess að lífið tók aðra og mjög
ánægjulega stefnu," útskýrir Alma
jarðbundin og einlæg yfir rússíbana-
ferð Nylon.
„Það gengur vel,“ segir Klara að-
spurð um samstarfið. „Við höfum
gott af félagskapnum og lærum mik-
ið af hver annarri." „Hver mundi
ekki vilja vinna með bestu vinkon-
um sínum?" spyr Steinunn og Emil-
ía segir að ágreiningur sem komi
upp sé ávallt auðleystur innan
hópsins „Við þekkjum takmörk okk-
ar og hverrar annarrar mjög vel."
Vinnsla plötunnar
.Æfingum er yfirleitt háttað
þannig að við æfum 1/3 af tímanum
og spjölium 213," viðurkennir Stein-
unn, „en vinnsla plötunnar gekk
mjög vel. Við tókum meiri þátt við
vinnslu hennar en síðast og hjálpuð-
umst að við raddsetningar og texta-
gerð. Svo á Alma einnig tvö lög á
plötunni."
„Ég hef frá því ég man eftir mér
verið að semja eitthvað," viðurkenn-
ir Alma og segir að hún hafi oft
samið litlar sögur. „Á seinni árum
fór ég svo meira útí textagerð þar
sem að það sameinaðist tónlistará-
huganum og loksins er ég svo byrjuð
að semja lög við textana líka. Það að
semja er eitt það skemmtilegasta
sem ég geri og eitthvað sem ég get
hugsað mér að gera um ókomna
framtíð. Það er viss útrás sem maður
fær og einhver góð tilfinning sem
%
fylgir því að semja. En að sjálf-
sögðu tökum við æfingarnar al-
varlega og áður en við komum
fram förum við vel yfir
prógrammið okkar því þótt við
séum mikið að koma fram á mis-
munandi stöðum og oft með svip-
að efni vitum við hvað það skiptir
miklu máli að halda sér við," segir
Steinunn. Fjölmiðlar? „Það sem telst
erfitt eru tarnirnar þegar öllu ægir
saman á sama tíma, stressið, því
alltaf viljum við standa okkur sem
best. Svo þegar íjölmiðlar gerast of
ágengir og taka sér skáldskaparleyfi,
hálsbólgur og kvefpestir," segja þær
og hlæja og greinilegt að hópurinn
nær vel saman. „Við eigum okkur
sögur sem eru drepfyndnar," segir
Steinunn og þær skellihlæja nánast í
kór. „Þær eru óprenthæfar," segir
Alma og útksýrir að þær missi marks
þegar búið er að setja þær yfir á
prent. „Einkahúmor ber aldrei að
skjalfesta," segir Emilía.
Hápunktur að gera
góðverk
„Það var örugglega
hápunktur ársins fyrir
okkur," segir Alma þeg-
ar talið berst að vina-
bandaverkefninu sem
Nylonstúlkumar stóðu
að ásamt Select og
Fanta í sumar. „Þar
náðum við að safna
tæpri hálfri milljón