Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.2005, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.2005, Blaðsíða 6
6 LAUGARDAGUR 15. OKTÓBER 2005 Fréttir DV lcelandic selt Straumur-Burðarás og Landsbanki íslands auk nokkurra annara hafa selt 55% hlut sinn í Icelandic Group. Kaupendur að mestum hluta hlutaíjár eru ISP, fé- lag í eigu Trygginga- miðstöðvarinnar, Eimskip og Mirol, sem bæði eru fyrirtæki í meiri- hlutaeigu Magnúsar Þor- steinssonar. Sigurjón Þ. Árnason, bankastjóri Land- bankans, fagnar aðkomu fyrirtækja tengdum íslensk- um sjávarútvegi að fyrir- tækinu. Icelandic Group er net fyrirtækja sem starfa við framleiðslu og sölu á sjávarfangi. Forseti í fimm til sjö ár Stjómarskrárnefndin sem skipuð er fulltrúum allra flokka á Alþingi ræddi málefni forsetaembættisins á fundi í lok ágúst. Meðal þeirra hugmynda sem rætt var um er að forsetafram- bjóðendur þurfí að hafa meðmæli fimm til tíu al- þingismanna og að forset- inn þurfi að hafa meirihluta kjósenda að baki. Nái eng- inn frambjóðandi hreinum meirihluta í kosningum þurfi að kjósa aftur. Einnig að kjörtímabil forseta verði lengt í 5-7 ár en jafnframt kveðið á um að enginn sitji lengur en tvö kjörtímabil. Króna eða evra? Katrín Júlíusdóttir, þingmaöur Samfylkingarinnar. „Ég er fylgjandi fullri aðild Is- lands að Evrópusambandinu og þar með fylgjandi því að taka upp evruna á Islandi. Með upptöku evrunnar mun skapast meiri stöðugleiki I ís- lensku efnahagslífi. Þegar til lengri tíma er litið munu vextir einnig lækka. Það er fólkinu I landinu til hagsbóta aö búa við þann stöðugleika sem fylgir evrunni." Hann segir / Hún segir „Ég tel að við ættum að halda okkur við krónuna ennþá. Það á eftir að skoða þau áhrif sem upptaka evrunnar kann að hafa á Island og ég tel að svo itöddu að við ættum ekki að taka evruna upp. Ég er andvígur aðild Islands að Evr- ópusambandinu og tel afog frá að hefja aðildarviðræður þess efnis." Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Framsóknarflokksins. Greiðslu breytt í leigu Guðmundur Vignir Steinsson hefur ekki miklar áhyggjur af stöðu mála enda hefur fasteignaverð í Hveragerði haldið áfram að hækka þann tíma sem Linda bjó í húsinu. Guðmundur játar því aðspurður að búið hafi verið að gera kaup- samning og Linda greitt ákveðna útborgun við undirritun hans eins og venja er. Þessari útborgun var svo breytt í húsaleigu fyrir þann tíma sem Linda bjó í húsinu þegar hún allt í einu ákvað að falla frá kaupunum. „Ég tók þessu vel enda sam- skipti okkar Lindu öll góð og far- 'sæl," segir Guðmundur Vignir sem setur húsið sitt nú aftur á sölu og þá líklega sem Lindu-húsið í Hveragerði. Ætti það ekki að rýra verðmæti eignarinnar. Sannur heiðursmaður Segja má að Guðmundur Vignir hafi komið fram sem sannur heið- ursmaður í samskiptum sínum við Lindu miðað við aðstæður. Linda var bundin af kaupsamningi en hafði ekki fengið afsal þannig að Guðmundi var í lófa lagið að bera fegurðardrottninguna út án þess að bera af þvf nokkurn fjárhags- skaða. En hann kaus hina göfugu leið samninganna og greiddi götu Lindu á þann besta veg sem hugs- ast gat. Fyrir það er Linda vafalítið þakklát þótt ekki hafi náðst í hana í gær til að fá sannleikann um hið skyndilega hughvarf hennar í Hveragerði. Alheimsfegurðardrottningin Linda Pétursdóttir hefur gefist upp á því að búa í Hveragerði. Linda festi kaup á raðhúsi þar í sumar og var flutt inn með hunda sína og virtist una hag sínum vel. En nú á haustmánuðum var líkt og óveð- ursský hefðu hrannast upp við húsvegginn og Linda pakkaði sam- an. Kaupsamningi var rift og Linda fór með töskur sínar, húsbúnað, nýfætt barn og tvo hunda til for- eldra sinna þar sem þeir búa í Ás- garði í Grímsnesi. Ekki er fullljóst hvað olli en hitt er víst að Linda var ekki borin út vegna vanefnda á kaupsamningi. Það stað- hæfir Guðmundur Vignir Steinsson sem seldi henni raðhúsið: „Við sömdum um þessi lok og þetta var allt í góðu,“ segir Guð- mundur Vignir sem var á sjó þegar Linda flutti út fyrir tíu dögum. „Linda var mest í sambandi við konu mína út af þessu og í raun get ég ekki tjáð mig um þetta frekar," segir hann. Raðhúsið að Heiðarbrún 32 í Hveragerði, sem var heimili Lindu í sumar og haust, er allt hið glæsi- legasta og metið á þriðja tug millj- óna. í því eru sex herbergi, sólver- önd, heitur pottur og fallegur garð- ur. Eða eins og eigandinn orðaði það þegar Linda flutti inn: „Þetta er fínt hús með öllum græjum." Heiðarbrún 32 Raðhúsiö sem Linda keypti og var heimili hennar ísumar o fram á haust. Metið áþriðja tug milljó glæsileg eign sem nú verður sett aftur ÍHveragerði. Birgitta Haukdal alsæl að fá foreldra sína til höfuðborgarinnar Mamma í banka og pabbi smíðar sumarhús „Við vissum svo sem að hverju við gengum. Vorum vön að koma til Reykjavíkur tíu sinnum á ári," segir Anna Haukdal Jónsdóttir, móðir Birgittu Haukdal, sem flutt er í Kópavog frá Húsavík til að vera nær dóttur sinni. „Við vorum orðin ein eftir fyrir norðan þannig að það var ekki eftir neinu að bíða. Við fórum suður." Anna Haukdal starfaði í banka á Húsavík og hún fékk starf við hæfi í Reykja- vík: „Ég er byrjuð að vinna í einkabankaþjónustudeild Lands- bankans í Austurstræti og kann því vel,“ segir Anna en viðurkenn- ir þó að meiri ys og þys sé í miðbæ Reykjavíkur en í rólegheitunum á Húsavík. „Auðvitað sakna ég ým- Birgittameð pabba og mömmu A góðri stund með Önnu oa islegs á Húsavík og þá aðallega kyrrðarinnar og náttúrunnar en það er svo margt sem maður fær í staðinn. En það er varla hægt að bera Reykjavík og Húsavík saman. Þetta er eins og svart og hvítt," segir Anna Haukdal. Eiginmaður önnu og faðir Birgittu er Brynjar Víkingsson sem starfaði sem sjúkraflutningamaður á Húsavík. Hann er nú byrjaður að smíða sumarbústaði á höf- uðborgarsvæðinu. Þau hjón hafa komið sér vel fyrir í Funalind í Kópavogi. Birgittta dóttir þeirra býr hins vegar á Skólavörðu- stígnum með Benedikt Einarssyni, syni Einars Sveinsson- ar, fyrrverandi forstjóra Sjóvár. Sylvía, sautján ára systir Birgittu, er einnig komin til borgarinnar og þar býr einnig hálfbróðir hennar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.