Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.2005, Page 12
12 LAUGARDAGUR 15. OKTÓBER 2005
Fréttir DV
Skólahjúkrunarfræðingurinn
Við reyndum allt
„Ég held að við höfum gert allt sem við gátum,“
sagði Sigríður Ólafsdóttir í viðtali í Kastljósi þann
13. október. Sigríður var skólahjúkrunarfræðingur í
Öldutúnsskóla þegar Thelma og systur hennar stund-
uðu þar nám.
„Það var bara aldrei sagt frá neinu ofbeldi. Við
reyndum allt. Og fyrst og fremst Haukur og Rúnar,
yndislegir menn sem reyndu að gera allt sem þeir
gátu fyrir börnin. Og svo var ég þarna hjúkrunar-
fræðingur og það kom vikulega eða mánaðarlega
sálfræðingur. En það voru bara svo mörg önnur mál og okkur fannst þetta
ekki mikið mál því það var ekkert ofbeldi þarna.“
Sigríður bætti svo við að það eina sem hefði vantað upp á væri að stúlk-
urnar hefðu opnað sig, en því hefðu þær augljóslega ekki þorað.
„Pabbi lagði til að mynda blátt bann við því að við systurnar færum til
skóiahjúkrunarkonunnar. “Myndin af pabba - saga Thelmu, bls. 127.
Formaður barnaverndarnefndar
Sigríður Ólafsdóttir
Var skólahjúkrunarfræð-
ingur I Öldutúnsskóla.
Móðir stúlknanna, sem stigið hafa fram og sagt frá
miskunnarlausum níðingsskap föðurs síns í litla,
gula húsinu í Hafnarfirði, segir það mikilvægt að
viðlíka mál séu ekki þögguð niður. Hún segir að
dætur hennar hafi staðið sig eins og hetjur.
Asdís Páls-
dóttir Ásamt
dætrum sínum
fyrir utan litla
gula húsið við
Hringbrautina.
Okkur var ekki hleypt inn
„Þetta heimili var eiginlega alltaf undír smásjá af ýmsum
orsökum," sagði séra Bragi Benediktsson í viðtali (Kastljósi
13. október. Bragi var formaður barnaverndarnefndar Hafn-
arfjarðar á árunum sem Thelma og systur hennar voru mis-
notaðar.
„Það var iðulega lögreglan sem kom inn á heimilið. Ég var
þá gjarnan fenginn til að fara með henni. En okkur var illa
tekið og yfirleitt ekki hleypt inn. Eitt var það, að fósturfaðir
Stefáns (Eiríkur Pálsson fyrrverandi bæjarstjóri í Hafnar-
firði] sem var lögfræðingur, hann vann með honum ein-
dregið. Og hann vann alltaf gegn barnaverndaryfirvöldum,
hvað sem þau voru að reyna að gera."
Séra Bragi Bene-
diktsson Var for- „Reglulega bankaði fólk frú félagsmálayfirvöldum upp á hjá
maður barnavemd- okkur en það fór alltaf erindisleysu þvipabbi og mamma voru
arnefndar Hafnar- ekkl lengi að vlsa þviá dyr." Myndin afpabba - saga Thelmu,
fjarðar. bls. 13.
Skólastjóri Öldutúnsskóla
Vitað að faðirinn var geðveikur
„Félagsmálayfirvöld höfðu stöðugt eftirlit með fjölskyldunni þar sem vit-
að var að faðir þeirra stúlkna var geðveikur," sagði Haukur Helgason, fyrrver-
andi skólastjóri í Öldutúnsskóla, en þar stunduðu Thelma og systur hennar
nám á grunnskólaárum sínum, í samtali við DV.
Spurður hvort viðbrögð skólayfirvalda hefðu verið rétt á
sínum tíma sagði Haukur: „Það er ákaflega erfitt að segja til
um það, tímamir breytast auðvitað. Lögum samkvæmt :
áttum við að tilkynna barnaverndarnefnd ef við fréttum
af erfiðri aðstöðu barna og það var gert.“
„Sumirkennaranna gerðu sérgrein fyrirþvíað ekki var |
allt með felldu hjá mér og buðu mér trúnað sinn. Til |
dæmis kallaði Rúnar yfirkennari mig einu sinni inn á
skrifstofuna sína til að spyrja mig hvort eitthvað væri
að. Ég neitaði auðvitað staðfastlega og þóttist
ekkert vita hvað hann átti við. “ Myndin af pabba - I Haukur Helgason Var
saga Thelmu, bls. 129. | skólastjóri íÖldutúnsskóla.
Birta er komin út!
liÆKUR
HEU-SA
|gj}
FtTJÁi-S Ej
„Þær hafa staðið sig eins og hetjur," segir
Ásdís Pálsdóttir móðir stúlknanna sem nú
hafa stigið fram og sagt frá æsku sinni og upp-
vaxtarárum í gula húsinu við Hringbraut í
Hafnarfirði.
Ásdís Pálsdóttir varð sjötug nú í ágúst. Hún
er ættuð af Skagaströnd en býr nú einsömul á
Eyrarbakka. Mestan part ævi hennar bjó Ásdís
hins vegar í litlu, gulu, hrörlegu húsi við
Hringbraut í Hafnarfirði. Þessi ár hafa nú ver-
ið rifjuö upp í kjölfar útgáfu bókarinnar
Myndin af pabba - saga Thelmu, eftir Gerði
Krismýju.
Barin miskunnarlaust
Ásdís var um árabil gift fársjúkum alkóhól-
ista og kynferðisafbrotamanni, Stefáni Guðna
Ásbjömssyni. Stefán barði Ásdísi konu sína
miskunnarlaust og misnotaði dætur sínar
fimm. Hann færði þær einnig öðrum í skipt-
um fyrir áfengi og eiturlyf.
Lét loks verða af því að skilja
Samkvæmt því sem ffarn kemur í bók
Thelmu velti móðir hennar því lengi fýrir sér
að skilja við mann sinn. Þegar allar nema tvær
yngstu dætumar vom famar að heiman lét
hún loks verða af því, við mikinn fögnuð systr-
anna. Inn í ákvörðun hennar spilaði, að sögn
Thelmu, sú staðreynd að Ásdís hafði bytjað að
sækja fundi fyrir aðstandendur afkóhólista og
byrjaði þá loks að skilja það brjálæði sem hún
hafði búið við í svo langan tíma.
Glæsilegar systur
Fyrstu árin eftir skilnaðinn við Stefán bjó
Ásdís áfram í gula húsinu ásamt tveimur
yngstu systrunum. Hún keypti loks íbúð í
blokk annars staðar í bænum. Hún er nú flutt
á Eyrarbakka. Dætur hennar hafa nú í vikunni
sagt frá árunum í gula húsinu og hörmungun-
um sem þær þurftu að búa við. Allir sem hlýtt
hafa á sögu þeirra í fjölmiðlum þessa vikuna.
eru sammála um að undravert sé hversu heil-
steyptar, einlægar og yfirvegaðar systumar
em í frásögn sinni af þessum hræðilegu at-
burðurn æsku þeirra.
Stolt af stelpunum
Ásdís Pálsdóttir, móðir stúiknanna, er
þessu sammála. „Ég er stolt af stelpunum
mínum," segirÁsdís. Hún segir það mildlvægt
að málum eins þeim sem dætur hennar hafa
vakið athygli á sé haldið á lofti. Ekki megi
þagga þau niður. Ásdís veit líka, af sinni eigin
bitrn raun, að þögnin gerir ekkert annað en að
viðhalda ógninni.
andri@dv.is
Eiríkur Pálsson sagður hafa beitt sér gegn því að barnavernd-
arnefnd bjargaði fjölskyldunni í litla, gula húsinu
BÆJARSTJÓRINN SEM
BJARGAÐINÍÐINGNUM
Föstudaginn 21. maí 1999 birtist lítil dánartilkynning
í Morgunblaðinu. Stefán Guöni Ásbjörnsson,
fæddurþann 14. október 1931, lést þann 10.
maí síðastliðinn. Útförin hefur farið fram í kyrr■
þey. Fyrir hönd aðstandenda, Eirfkur Pálsson.
Engar minningargreinar birtust að segja bæjarstjóri.
í Morgunblaðinu um Stefán Guðna Oft
Ásbjörnsson. Dætur Stefáns, syst- vaknað
kyni hans eða vinir, sett-
ust ekki niður og skrifuðu
um hann hlý orð. Enginn
rifjaði upp æviskeið hans
eins og venja er til þegar
einhver kærkominn fellur
frá. Eftir umræður og um-
fjöllun síðustu viku um
hina hrottafengnu, átak-
anlegu og sönnu sögu
Thelmu Ásdísardóttur og
fjölskyldu hennar kemur
það kannski ekki neinum
á óvart. Miðpunktur sög-
unnar sem hefur sett ís-
lenskt samfélag á annan
Eiríkur Pálsson Fóst-
urfaðir Stefáns G uðna
og fyrrverandi bæjar-
stjóri I Hafnarfirði.
hefur sú spurning
í umræðum um of-
beldið og níðings-
skapinn sem dætur Stef-
áns Guðna þurftu að
ganga í gegnum hvernig
það gat verið að enginn
greip inn í. í viðtali við
Morgunblaðið um síð-
ustu helgi sögðu syst-
urnar að einhver hefði
átt að koma þeim til
bjargar. Þjóðin er þeim
sammála og vill vita af
hverju systrunum í gufa
húsinu var ekki bjargað.
endann og vakið okkur öll til um-
hugsunar er fjölskyldufaðirinn
Stefán Guðni Ásbjörnsson, sem
lést 10. maí 1999.
Þjóðin vill svör
Maðurinn sem skrifar undir
dánartilkynningu Stefáns, Eiríkur
Pálsson, lést sjálfur 2002. Hann var
fósturfaðir Stefáns. Eiríkur var
áhrifamaður í bæjarlífi Hafnarfjarð-
ar þar sem sagan um gula húsið
gerðist. Hann var skattstjóri og for-
stöðumaður hjúkrunarheimilisins
Sólvangs og til skamms tíma meira
Máttlaus
barnaverndarnefnd
Séra Bragi Benediktsson, fyrrver-
andi félagsmálastjóri Hafnarfjarðar,
svaraði þessari spurningu fyrir sitt
leyti í Kastljósi Sjónvarpsins á
fimmtudagskvöld. Bragi sagði þá í
viðtali að fósturfaðir Stefáns Guðna
Ásbjörnssonar, Eiríkur Pálsson,
hefði beitt áhrifum sínum í stjórn-
kerfi Hafnarfjarðarbæjar til að
koma í veg fyrir að barnarvemdar-
yfirvöld í bænum gætu sinnt
skyldum sínum gagnvart systmn-
um í gula húsinu.
Á meðan faðir þeirra keyrði þær
Dánartilkynning Stef-
áns Guðna Bæjarstjórinn
varsá eini sem sett nafn
sitt við tilkynninguna.
mönnum sem nauðguðu þeim og
svívirtu í skiptum fyrir brennivín og
spítttöflur var barnavemdarnefnd
víðs fjarri. Sr. Bragi segir nefndina
hafa verið ráðalausa gegn áhrifa-
mætti Eiríks Pálssonar.
Kusk á hvítflibbann
Samkvæmt Braga hélt Eiríkur
hlífiskildi yfir fóstusyni sínum og
gerði honum kleyft að vinna voða-
verk sín óhultur fyrir umheiminum.
Hvort Eiríkur Pálsson hafi lokað
augunum fyrir nöturlegum sann-
leikanum eða einfaldlega ekki trúað
svona löguðu upp á fósturson sinn
verður ekki svarað hér. Hins vegar
er óhætt að fullyrða að Eiríki sem
broddborgara í Hafnarfirði var það
mjög á móti skapi að upp á yfir-
borðið kæmi eitthvað sem snerti
fjölskyldu hans og kalla má kusk á
hvftflibbann. Undir lokinn var hann
samt sá eini sem treysti sér til að
setja nafri sitt undir dánartilkynn-
ingu mannsins, sem engin sá
ástæðu til að sakna, Stefáns Guðna
Ásbjörnssonar.