Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.2005, Side 13
DV Fréttir
LAUGARDAGUR 15. OKTÓBER2005 13
f
Birgir Bragason hefur aldrei greitt fyrir það sem hann gerði
stúlkunum í litla, gula húsinu
Aldrei greitt fyrir gjörðir sínar
það andlegri og líkamlegri fötlun.
Hann sé öryrki, óvinnufær og best
kominn í vernduðu umhverfi und-
ir eftirliti.
Bjó með öðrum níðingi
DV náði tali af Birgi Bragasyni á
þriðjudaginn. í símanum var hann
óskýr en þó var hægt að skilja það
sem hann sagði. Aðspurður sagðist
Birgir muna vel eftir Stefáni Guðna
Ásbjömssyni, föður Thelmu, og
sagði hann kunningja sinn. Stefán
er nú látinn eins og fram kemur í
bók Thelmu. Og Birgir mundi
einnig eftir öðrum níðingum sem
þjóðin hefur fengið að lesa um síð-
ustu daga. Til dæmis Agga sem oft
kemur við sögu. Aggi og Biggi
bjuggu saman um skeið en Aggi er
nú látinn.
„Við bjuggum saman við Kjart-
ansgötu. Og spiluðum oft jatsí á
kvöldin," sagði Birgir Bragason í
samtali við DV í vikunni þegar
hann var beðinn um að rifja upp
kynni sín af mönnunum sem koma
fyrir í sögu Thelmu.
Einkamál milli mín og Guðs
Og Biggi man einnig Thelmu.
„Hún var lítil og sæt stelpa," segir
Birgir. Þegar gengið var á hann og
spurt hvort hann hefði misnotað
Thelmu neitaði Biggi því alfarið.
„Og hinir mennirnir, þeir voru
bara að kúra hjá stelpunum. Það
voru aldrei neinar samfarir."
Aðspurður hvort hann vildi
nota þetta tækifæri og biðjast fyrir-
gefningar á gjörðum sínum, þó
ekki væri nema til Guðs, svaraði
Birgir Bragason: „Þetta er einkamál
mitt og Guðs."
andri@dv.is
Birgir, sem í dag er sextíu og
átta ára gamall, hefur aldrei þurft
að borga fyrir það sem hann gerði
systrunum í gula
húsinu - fyrir
utan það
brennivín
og am-
fetamín
sem hann
lét föður
þeirra í té í
sldptum fyr-
ir aðgang að
Birgir Bragason teiknari er einn mannanna sem Thelma Ásdís-
ardóttir segir frá í bók sinni Myndin af pabba - saga Thelmu. f
bókinni segir Thelma frá því að væri hún tíu ára og þyrfti að
fara til eins ofbeldismannanna myndi hún velja Birgi. Ástæðan
- Birgir átti það til að sleppa því að nauðga systrunum og
stinga frekar upp á því að þær færu að sofa.
Bakaði sér óvinsældir í
álverinu
Birgir starfaði um hríð hjá álver-
inu í Straumsvík. Fyrrverandi sam-
starfsmenn hans hafa lýst honum
sem kómískum, jafnvel skrýtnum,
einfara. Hann var þó látinn af-
skiptalaus af flestum. Birgir bakaði
sér óvinsældir á meðal samstarfs-
manna sinna í álverinu þegar hann
sýndi einu sinni klámmyndir úr
filmusafni sínu í vinnunni. Einn
viðmælenda DV segir að stúlkurn-
ar sem komu fyrir í klámmyndinni
sem Birgir sýndi hafi varía verið
eldri en 14 ára gamlar. Þegar sam-
starfsfélagar hans gengu á harm og
spurðu hverju þetta sætti svaraði
Birgir að hann héldi að þetta væri
eitthvað sem allir vildu sjá.
Skrifaði í Samúel
Aðrir muna eftir Birgi frá þeim
döginn þegar hann var viðriðinn
karlatímaritið Samúel. Skopmynd-
ir hans í blaðinu vöktu jafna eftir-
tekt sem og djarfar, erótískar sögur
sem hann skrifaði og birtust í blað-
inu.
Árið 2001 var Birgir dæmdur í
Héraðsdómi Reykjavíkur í sextíu
daga skilorðsbundið fangelsi fyrir
að hafa í vörslu sinni fjögur tímarit,
72 myndbandsspólur og 111 ljós-
myndir á tölvutæku formi en þar
má sjá börn á klámfenginn hátt. í
dómi kemur fram að Birgir hafi
margar æðastíflur í heila og valdi
Vinkona Thelmu og nágranni
Vissi að eitthvað
væri í gangi
„Við máttum ekki
fara inn til þeirra, ég
man eftir því," sagði
Helena Rúnarsdóttir í
viðtali í Kastljósi á mið-
vikudaginn. Helena og
Thelma urðu góðar vin-
konur þegar þær voru
tíu ára. „Maður sá að
þær voru illa hirtar og
fengu lítið að borða,
þær töluðu um það,"
sagði Helena og rifjaði
um leið upp að þó hefði faðirinn
ætíð fengið nóg.
„Það var alltaf mest talað um að
það væri verið að taka myndir og ég
sá þær alltaf íyrir mér þama í kjallar-
anum þar sem pabbi þeirra var að
taka myndir af þeim," sagði Helena
um hversu mikið krakkamir í skólan-
um hefðu í raun vitað um ástandið á
heimili Thelmu og systranna.
„Það var eitthvað á
seyði þarna, eitthvað
svona kynferðislegt,
eitthvað ofbeldi," bætti
hún við. „Það vildu allir
gera eitthvað, það vildu
allir hjálpa þeim. Það
hefði átt að gera eitt-
hvað."
Vinátta Helenu og
Thelmu fékk skjótan
endi þegar þær voru
orðnar tólf ára gamlar,
en þá fóm vinsælu krakkamir að
sýna Helenu meiri áhuga og hún
valdi þá fram yfir Thelmu.
„Góða, þegiðu, ég vil ekki tala
við þig. Þú ert ógeðsleg hóra sem
lætur pabba þinn ríða þér. "Thelma
lýsir vinslitunum við Helenu.
Myndin af pabba - saga Thelmu,
bls. 138.
Helena Rúnarsdóttir Var
besta, og eina, vinkona
Thelmu í tvö ár.
Reykjavíkurborg
Skipulags- og byggingarsvið
Auglýsing um nýtt deiliskipulag
og breytingu á deiliskipulagi
í Reykjavík
í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr.
73/1997, með síðari breytingum, eru hér með auglýstar
tillögur að nýju og breyttu deiliskipulagi í Reykjavík.
Fossaleynir, Egilshöll.
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi við Fossaleyni,
Egilshöll.
Tillagan gerir ráð fyrir m.a. stækkun lóðar úr 47.172 m2 í
94.000 m2, göngustígur færist norður, akfær göngustígur
kringum lóðina færist til, gert verður ráð fyrir hringtorgi á
Víkurvegi með nýrri viðbótar aðkomu að lóðinni, fyrir-
komulagi bílastæða á lóð er breytt og stæðum fjölgað og
mön við vesturmörk lóðar færist út fyrir lóðarmörk.
Einnig er gert ráð fyrir að byggingarreitir stækki og þeim
fjölgað. Byggt verður kvikmyndahús, hús fyrir innigolf,
geymslubyggingar og gert ráð fyrir afgirtum sparkvöllum
og gervigrasvelli í fullri stærð.
Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Borgartún 32.
Tillaga að deiliskipulagi fyrir Borgartún 32.
Tillagan gerir ráð fyrir m.a. að stækka byggingu að
Borgartúni 32 með viðbyggingu til vesturs, 314 m2 að
grunnfleti, núverandi þakhæð verði rifin og byggð ein
hæð , 597.3 m2 og byggð verði inndregin þakhæð, sam-
tals 602 m2, sem tengir saman núverandi byggingu og
viðbyggingu. Fullbyggt verður húsið 7 hæðir með inn-
dregnu þakhæðinni.
Einnig verður gert ráð fyrir að byggð verði bílgeymsla
austan og sunnan við núverandi byggingu undir opnum
bifreiðastæðum götuhæðar sem ná að Kringlumýrarbraut
til austurs.
Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Tillögurnar liggja frammi í upplýsingaskála skipulags- og
byggingarsviðs Reykjavíkurborgar í Borgartúni 3, 1. hæð,
virka daga kl. 8:20 - 16:15, frá 17. október til og með 28.
nóvember 2005. Einnig má sjá tillögurnar á heimasíðu
sviðsins, www.skipbygg.is. Eru þeir sem telja sig eiga
hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar.
Ábendingum og athugasemdum við tillögurnar skal skila
skriflega eða á netfangið skipuiag@rvk.is, til skipuiags-
og byggingarsviðs (merkt skipulagsfulltrúa) eigi síðar en
28. nóvember 2005.
Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests,
teljast samþykkja tillöguna.
Reykjavík, 17. október 2005
Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur
BORGARTÚN 3 • 105 REYKJAVÍK • Sl'MI 411 3000 • MYNDSENDIR 411 3090