Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.2005, Side 38

Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.2005, Side 38
38 LAUGARDAGUR 15. OKTÓBER2005 Helgarblað DV Berglind Ármannsdóttir verslunarkona hefur starfað í fata- versluninni Cosmo í Kringlunni í sextán ár. Hún segir að síð pils, grófar töskur og belti séu allsráðandi þegar vetrartískan 2005 er könnuð. Berglind Ar- mannsdóttir Finnst gott að vinna i versl- uninni sem hún hefur unnið hjá i 16 ár. Berglind Ármannsdóttir er tveggja barna móðir sem hefur starf- að í sextán ár í fataversluninni Cosmo. „I mínum huga er aðalatrið- ið að viðskiptavinum mínum líði vel þegar þeir hafa verslað hjá mér. Tak- ist mér að uppfylla helstu þarfir þeirra sem koma hingað líður þeim vel og líklegt að þeir komi aftur við hjá okkur síðar meir,“ segir hún óhikandi og meðvituð um þarfir ís- lenskra kvenna sem leggja leið sína í jCringluna til fatainnkaupa. Sextán ár? „Já, sextán," svarar hún og brosir fallega. „Þegar manni líður vel f vinnunni kýs maður að starfa þar áfram. Ég er ofsalega sátt hérna og stelpurnar sem vinna með mér eru góðar vinkonur mínar. Mórallinn er góður og svo láta sömu viðskipta- vinirnir sjá sig aftur og aftur og það gleður mig," segir Berglind geislandi og bætir við að hún hafi lært í gegn- um tíðina að þarfir kvenna eru margvíslegar þegar kemur að fata- kaupum. Smáralind eða Kringlan? „Nei, það er alls enginn munur,“ svarar Berglind þegar talið berst að fjölda viðskiptavina í Kringlunni eftir að Smáralindin hóf starfsemi sína. „En nú er opið alla daga vikunnar og þar af leiðandi dreifist fjöldinn aðeins miðað við hérna áður fyrr.“ Fara launin þín í fatakaup? „Nei, ekki lengur," svarar Berglind og skellihlær f Spáð í Berglindi Ljón - fædd 3. ágúst 1966 Berglind tilheyrir fímmta merki dýrahringsins, Ijóninu, og þar afleiðandi er stöðugur eldur ávalltyfir stjörnu hennar og það segir að eldhneigð, ásthneigð og ástriða einnkennir þessa fallegu konu. Eiginleikar tjónsins koma sér eflaust vel i starfi hennari Cosmo þvihún er dugleg, heiðarleg og sérstaktega góð i mannlegum samskiptum. Ástríða hennar er mikil og hún leitast ávallt við að skila verkum sinum með sóma. Bjartsýni einkennnir Berglindi og ekki siður gott jafnvægi. þegar spurt er en heldur áfram: „Ég hef lært með árunum að eyða ekki laununum í fötin þó freistingarnar séu margar. Ég hef þroskast og lært að vera ekki alltaf að eyða peningun- um íföt." Vetrartískan „Nú er rosalega mikið brúnt, svart, grænt og appelsínugult. Jarð- árlitirnir eru allsráðandi í vetur. Það er mikið um síð pils, jakka og toppa og svo er líka mikið um gróf belti og grófar, flottar töskur," segir hún og hefur auðsjáanlega mikinn áhuga og vit á því sem hún selur íslenskum konum. „Það er alltaf hægt að finna eitt- hvað fi'nt hjá okkur og það þarf alls ekki að kosta mikið. Við getum ör- ugglega fundið eitthvað fallegt fyrir allar konur," segir þessi geislandi kona sem heillar án efa alla sem verða á vegi hennar. „Aðalatriðið er að þeim sem versla hjá okkur líði vel í fötunum frá okkur. Ég þjónusta alla eins vel og ég mögulega get og legg áherslu á að finna það sem hver og einn vill.“ elly<S>dv.is SAMANBURÐUR &tiöf*nivne/vucuinci Áreiðanleiki, örlæti, stöðugleiki, friðsælt heim- ilishald, fjölskylda, öryggi og almenn vellíðan einkennir Evu Maríu Jónsdóttir sjónvarpskonu og Óskar Jónassyni leikstjóra þegar stjörnur þeirra eru bornar saman. Ástarlotin efla þau Stundir þeirra Evu Maríu og Óskars saman einkennast af faðm- lögum og ástaratlotum sem efla með þeim sanna gleði og unað. Eva María Jónsdóttir 26.04.71 Naut (20.apríl - 20.maí) ÓskarJónasson 30.06.63 Krabbi (22.júní - 22.júlí) - einlæg - bjartsýnn - traust - einlægur - falleg - hugmyndaríkur - kjörkuð - skemmtilegur - þolgóð - hugmyndasmiður Kolbrún Halldórsdóttir „Ég geri ráð fyrir að fara austur álandá laugardeginum -nánar tiltekið austur á Hallormsstað til að taka þátt i málþingi I tilefhi afútkomu bókar eftir merkan nátt- úrufræðing og fyrrverandi alþingismann, Hjörleif Guttormsson," svarar Kolbrún ein- læg og Ijúfeins og henni er von og visa og heldur áfram:„Hjörleifur og kona hans, Kristln Guttormsson, fagna um þessar mundir sjötugsafmælum sfnum og mig langar að heilsa upp áþaul tilefni afþví. Á laugardagskvöldinu verð ég svo viðstödd frumsýningu Borgarleikhússins á Sölku Völku.þarsem Edda Heiðrún Backman leikstýrir sterkum leikhóp Leikfélags Reykjavikur I spennandi sýningu." Hvað með sunnudaginn?„Þá geri ég ráð fyrir að vera að undirbúa landsfund Vmstri grænna sem verður haldinn 21.-23. októ- ber. Vonandi get ég svo orðið að einhverju gagni heima hjá mér, við erum að endur- nýja íbúðina okkar og ég hefverið hálf- gerð liðleskja fram að þessu. “ Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir „Helgin hjá mér er ansi vel skipulögð,"segir Þorbjörg,„þvi landsfundur Sjálfstæöis- manna stendur yfir til sunnudags. Það verðurþví lltið hægt að sinna fjölskyldu þessa helgina enda fer mikill tími f að fara f málefnanefndirnar sem maður hefur áhuga á að fylgjast með, fara i matarboð og kokteilboð hjá hinum og þessum hóp- um aföllu landinu og að sjálfsögöu hitta góða vini og nýja sjálfstæðismenn. Ég hlakka verulega til helgarinnar, þetta er al- veg einstök upplifun að kjósa um stefnu flokksins til næstu ára og sjá nýjan for- mann og varaformann taka við á sunnu- daginn. Efstund gefst mun ég fara með vinkonum mfnum I sund sem eru að koma að utan á fundinn og til að hjálpa mér i prófkjörsbar- áttunni. Ég hlakka til að hitta þær,“segir hún og kveður með fallegu brosi. (

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.