Símablaðið

Volume
Main publication:

Símablaðið - 01.12.1968, Page 18

Símablaðið - 01.12.1968, Page 18
samanburðar má taka árið 1967. Þá voru afgreidd 42447 skeyti og samtöl. Eins og fyrr var sagt, fluttist loftskeyta- stöðin af Melunum að Gufunesi í maí 1963. Þar er nú miðstöð allrar skeyta- og sam- talaafgreiðslu við skip. Þar er fjöldi við- tækja og viðtökuloftneta, en flestir send- ar stöðvarinnar og sendiloftnet eru á Rjúpnahæð. Einnig notar stöðin fjar- stýrða senda og viðtæki, sem staðsett eru víða um land. Þjónusta hennar við skipin hefur frá upphafi verið margþætt. Útsendingar, ýmsar viðvaranir, t. d. varðandi ís, reköld og slíkt tíðnimælingar, radioeftirlit og neyðarafgreiðslu. Við stöðina starfa nú 13 manns. 3Munnahattl TEA. Frá því Reykjavík radio hóf starfsemi sína, hafa um 50 manns starfað þar um lengri og skemmri tíma. A þessu tímabili hafa 10 manns af starfsliði hennar fallið frá. Eins og kunnugt er var fyrsti stöðvar- stjóri TFA Friðbjörn Aðalsteinsson. Hann starfaði þar frá 1. febrúar 1917, þar til hann andaðist, á miðju ári 1947, 57 ára. Hann mun hafa komið í þjónustu Lands- símans 1907. Friðbjörn hafði húsnæði á stöðinni og ásamt honum L. Norgulen. línuverkstjóri með fjölskyldu. Norgulen gæzlu mótorsins. Hann féll frá nokkrum árum síðar. Lengst hafa starfað á stöðinni Hallgrím- ur Matthíasson frá 1919. Guðmundur Sig- mundsson mun hafa starfað þar í 22 ár, er hann hvarf að öðru starfi, Sigurgrímur Stefánsson frá 1925—1940, er hann andað- ist. Snorri Amar frá 1919—1930, er hann sagði lausu starfinu. Páll R. Ólafsson mun hafa starfað þar í 12 ár. Elztir í þjónustu af núverandi starfsliði stöðvarinnar, auk Hallgríms, munu vera Gunnar Einarsson, frá 1942, Ólafur Sveinsson, frá 1942 og Kristján Jónsson frá 1945. í byrjun var stöðvarstjórinn einn, enda engar sérstakar vaktir. Á árinu 1919 voru ráðnir til stöðvarinnar tveir loftskeyta- menn. Starf þeirra í byrjun var að miklu leyti það sama og verið hafði áð- ur. Á árinu 1920 var bætt við einum starfsmanni. Við tilkomu þriggja manna var byrjað á sólarhrings vöktum, þrískipt- um. Árið 1925 var ráðinn 1 til viðbótar og voru þá teknar upp fjórskiptar vaktir. Á fimmskiptum vöktum var byrjað 1948, og 1950 voru ráðnar 2 stúlkur til af- greiðslu við skip. Nú starfa á stöðinni 14 manns, auk núverandi stöðvarstjóra, Stef- áns Arndal, en undir harm heyrir eirmig radíóþjónustan vegna Atlantshafsflugsins. S.fÓJV VA ItPSNÁ MSKEIÐ Sjónvarpsnámskeið, haldið á vegum Radíótæknideildar Pósts og Síma, hófst snemma á þessu ári. Námskeiðið skiptist í 3 tímabil og er hvert tímabil 5 vikur. Tveim þeirra er lokið og hið síðasta mun hefjast í vetur. Próf er eftir hvert tíma- bil. Námskeiðið hafa sótt 62 menn úr hin- um ýmsu deildum Radíótæknideildarinn- ar. Kennslan er fyrst og fremst í fyrir- lestraformi og er farið yfir bókina ..How Television Works“. Kennari er Stefán Guðjohnsen tæknifræðingur. Námskeiðið er 60 kennslustundir og veitir próf að því loknu símvirkja í 12. flokki rétt á því, að láta þessar 60 stundir ganga upp í hin- ar tilskildu 300 kennslustundir, sem gefa honum möguleika á hækkun upp í 14. flokk. Nemendum utan af landi er einnig gef- inn kostur á að spreyta sig á námi þessu og hafa 25 tekið þátt í því. Ætlast er til að þeir lesi bókina samkvæmt skipulags- töflu, sem kennarinn hefir samið. Þessum nemendum mun síðan verða gefinn kostur á að koma til Reykjavíkur og fá þá margar kennslustundir á dag í nokkra daga og verður síðan efnt til loka- prófs. H. H. SÍMABLAÐIÐ

x

Símablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.