Símablaðið

Árgangur
Aðalrit:

Símablaðið - 01.12.1968, Blaðsíða 21

Símablaðið - 01.12.1968, Blaðsíða 21
RABBAÐ VIÐ TREOÐÓR LIELIENDARE í ár fögnum vér íslendingar 50 ára full- veldi íslendinga, en einn er sá á meðal okkar, sem fagnar þessum tímamótum í tvennum skilningi. Það er Theódór Lillien- dahl, sem nú lætur af störfum hjá L. í. eftir 50 ára starf hjá stofnuninni. Þetta er langur starfsaldur hjá einu og sama fyr- irtækinu. Theódór er hlédrægur maður að eðlisfari, en hann hefir með sinni ein- stöku prúðmennsku cg lipurð áunnið sér vináttu og virðingu, bæði innan stofnunar- innar, sem utan og er hverju fyrirtæki mikill fengur í slíkum mönnum. Það þarf að sjálfsögðu ekki að kynna Theódór fyrir lesendum Símablaðsins, því að fyrir utan hið langa starf hans meðal símafólks, þá hefir hann unnið mikið að félagsmálum F. í. S. og Byggingarfélags símamanna. Símablaðið vill nota tækifærið á þess- um merku tímamótum í lífi Theódórs, og bað hann að svara nokkrum spurningum og þá er það fyrst hin klassíska spurning: ,.Hva3 var það sem olli því, að þú gerð- ist símamaður?“ ,,Ég var 17 ára stráklingur þegar ég varð símritari á Akureyri, og ég er bók- færður í „kirkjubókum" Landssímans 1. september 1918. Það sem kom mér á spor- ið, var auglýsing um að sendisvein vantaði á símstöðina á Akureyri. Ég hafði lengi haft mikinn áhuga á að komast í snertingu við ritsíma, meðal annars vegna þess, að ég var, sem skáti, löngu búinn að læra morse-stafrófið og hafði mikla löngun til að fá að handleika þau tæki. Þetta leiddi til þess að ég varð fljótlega liðtækur við ritsímaafgreiðsluna, mér til mikillar ánægju. Ekki voru tækin fjölbreytt á þeim dögum, — aðeins eitt morse móttökutæki og einn morse handsendilykill, — meira þurfti ekki þá.“ „Starfaðir þú ekki á fleiri símstöðvum áður en þú komst til Reykjavíkur?“ „Jú, sumarið 1917 á Siglufirði, svo á Seyðisfirði sumarið 1921 og í Kaupmanna- höfn sumarið 1927 í skiptum fyrir dansk- an símritira, sem vann á ritsímanum hér í Reykjavík. Svo var það á Alþingishátíðinni 1930, að símriturum utan af landi var smalað til Reykjavíkur eftir því sem fært þótti og var ég einn í þeim hópi.“ „Hvað er þér nú minnisstæðast frá hálfr- ar aldar starfi hjá L. í.?“ „Það er einkum tvennt, sem mér hefur þótt mikið til koma. Hið fyrra var opnun talsímasambands við útlönd hinn 1. ágúst 1935. Ég var fluttur frá Akureyri til að annast starfrækslu viðtökustöðvarinnar í Gufunesi og þar var ég í tæp sex ár. Fyrir þessari breytingu á högum mínum hygg ég, að Friðbjörn heitinn Aðalsteinsson hafi staðið. Ég hafði fengizt við að smíða út- varpsviðtæki fyrir ýmsa kunningja mína á Akureyri og Friðbjörn hafði einhverju sinni séð þessa framleiðslu mína, þegar hann var á ferð á Akureyri. Annars vil ég geta þess, að það var góðvinur minn Snorri Arnar, sem kom mér á lagið með að smíða viðtækin, en þeir bræðurnir SÍMABLAÐIÐ

x

Símablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.