Símablaðið

Ukioqatigiit
Saqqummersitaq pingaarneq:

Símablaðið - 01.12.1968, Qupperneq 29

Símablaðið - 01.12.1968, Qupperneq 29
inni, sem var þeim nokkurs virði hér á jörðu. Þegar stormurinn bylur á glugga eða súð, og hrykkir í stoðum, eða ýlfrar í gott- um — og báturinn ætti fyrir löngu að vera kominn að landi — þá er dapur hugur sjó- mannskonunnar, en slíkar stundir fær hún oft að reyna. Það er eins og vindkvið- urnar, snöggar og tíðar, myndi óhugnan- legan trumbuslátt, — tómahljóð í stofu og sál. Vindurinn vex og tíminn líður, óttinn verður að örvæntingu, kveljandi örvænt- ingu, sem lamar vit og vilja. Einmitt núna í dag var háð ægileg or- usta. Af henni hafa borizt sorgleg tíðindi um fallna menn og særða, auk óvenju- mikils tjóns á veiðarfærum og flota. Þó er það drengilegri framgöngu nokk- urra manna að þakka, að ekki fór verr en á horfðist. Okkur, sem sitjum inni í hlýj- um og traustum stofum, finnst e.t.v. ekki mikið til þess koma, þó að bátar renni framhjá sökkvandi báti eða bátsflaki og hirði þar menn úr háska. En það þarf meira en margan grunar til slíkra fram- kvæmda. Það þarf andlegt og líkamlegt þrek, hugdirfsku og snarræði, örugga stjórn og refjalausa fórnfýsi, ekki eitt af þessu, heldur allt þetta. Ég hef hvorki þekkingu né vit til að segja í nokkrum orðum frá þeim óendanlega mörgu viðhccfum, sem skapast geta við slík tækifæri, en því get ég slegið föstu, að hjá okkur íslendingum eru mörg snilldarafrek unnin á sjónum, þar sem sjómaðurinn leggur líf og limi og allt sem hann á, í bráða hættu til að bjarga félaga sínum frá viðjum votrar grafar. Nærtækt dæmi um slíka dáð eigum við frá liðnum degi, þar sem Gauksstaðabræð- ur, Þorsteinn og Gísli og skipshöfn þeirra leggur farkost og fjör í geysilega hættu við að leggja tvisvar að bátsflakinu Ægi og bjarga af því fjórum mönnum. Til stað- festingar hættunni vil ég benda á, að sjó- gangurinn var svo mikill, að hann hafði tekið Ægi heila veltu og brotið allt af hon- um ofanþilja. Hvernig er hægt að þakka svo frækileg störf? Það verður vart gert með orðum, og að Jkðaifunttur stöövurstjóra Aðalfundur félagsdeildar Póst- og síma- stjóra á 1. fl. B stöðvum var haldinn að Reykholti í Borgarfirði 24. og 25. ágúst 1968. Auk stöðvarstjóra sátu fundinn þeir Ágúst Geirsson formaður F.Í.S. og Vilhjálmur Vilhjálmsson, ritstjóri Síma- blaðsins og seinni fundardaginn var Jón Þórisson mættur, en hann hefur lengi verið stöðvarstjóri í Reykholti sem er 2. fl. stöð. Reykholt er ein þeirra stöðva, sem mik- ið hefur vaxið á síðari árum og á að okk- ar mati að vera í tölu 1. fl. B stöðva. Formaður deildarinnar Jón Tómasson, bauð gesti og félaga velkomna til fundar og flutti síðan skýrslu stjórnar. Mál skýrslunnar sem Jón Tómasson taldi mestu varða voru sumarbústaðamál- ið og starfsmatið sem yfir stæði og kvaðst hafa óskað eftir að Vilhjálmur Vilhjálms- son kæmi til fundarins, með það fyrir augum að hann veitti aðstoð og upplýs- ingar varðandi það, en hann hefur á veg- um félagsins, unnið með fólki að umbeð- inni skýrslugerð um starfsmat, bæði í Reykjavík og út um land. Ágúst Geirsson var bjartsýnn á að næsta sumar yrðu sumarbúðir F.Í.S. við Apavatn að einhverju leyti komnar í not- jafnaði er sjómaðurinn ekki þannig skapi farinn að hann óski eftir að gert sé veður um slíka hluti. Væri ekki sjálfsagt að íslenzka ríkið hefði sérstaka orðu, — sjóafrekaorðu, — sem það veitti skipshöfnum og einstakling- um fyrir frækilega unnin störf á sjónum? Jón Tómasson. B Í MÁB LÁÐ IÐ

x

Símablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.