Símablaðið

Árgangur
Aðalrit:

Símablaðið - 01.12.1968, Blaðsíða 36

Símablaðið - 01.12.1968, Blaðsíða 36
„Ég skal losa mig við hana,“ urraði Dabbi og byrjaði að æða um eins og ljón í búri. Það var heppilegt, að enginn kristall var þarna uppi við. „Við hverja?“ sagði konan. „Helvítis Simphóníuhljómsveitina.“ ,,En húsaleigusamningurinn?“ „Svik. . . tóm svik. Kerlingin minntist ekki einu orði á hörpuleikinn.“ Dabbi tók svefnherbergið í tveim, þrem skrefum. En svo heyrði hann snökt og í fyrstu trúði hann ekki sínum eigin eyrum. Hann leit á konuna. Jú, það var ekki um að villast, hún var að gráta, en ósköp vægt, eins og hún væri að hita sig upp. En svo tók sængin að hreyfast og að lokum hrisstist allt rúmið. „Þetta er mér að kenna,“ stundi hún milli ekkasoganna, „allt saman mér að kenna. . . Ég vildi bara óska, að við gætum komið henni af okkur.“ Dabbi skók höfuðið. Gat það verið? . . . Hún að gráta og sammála honum í þokkabót. „Meinarðu þetta?“ sagði hann og settist á rúmið. „Já, víst meina ég það,“ snökti hún. Hann nuddaði augun, ef ske kynni að það gæfi honum aukna sýn inn í þessa konu, sem var lífsförunautur hans. „Elskan mín,“ sagði hann svo og strauk henni um hárið, „þó ég þurfi að taka hana í bóndabeygju, þá skal hún út og það strax á morgun.“ Hann lagðist við hlið hennar og hún var hætt að gráta og hann slökkti ljósið. „Mig langar ekkert í þennan Trabantbíl," hvíslaði hún og þau létu fara lítið fyrir sér, notuðu ekki nema hálft rúmið og þarna í myrkrinu sættust þau heilum sátt- um . . . þannig séð. - - Vetllaunapt^afáta - - Urlausnir verða að hafa borist Símablaðinu fyrir janúarlok. BÖKAVERÐLAUN. I M SÍMABLAÐIÐ

x

Símablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.