Símablaðið

Árgangur
Aðalrit:

Símablaðið - 01.12.1968, Blaðsíða 39

Símablaðið - 01.12.1968, Blaðsíða 39
Ilann greiðir í 30 ár og hættir þá greiðslu, 60 ára gamall. Hann bæt- ir við sig 1% á ári til 65 ára ald- urs. Þá öðlast hann rétt til að láta af störfum og fá ellilífeyri er nem- ur 65% af launum. Eftir það bætir hann við sig 2% á ári og' nemur ellilífeyririnn þá 75% af launum, þegar hann verður 70 ára. 95 ára reglan: Hann greiðir í 32 ár eða þar til aldur hans er 62% ár (32% + 62y2 = 95). Þá hefur liann öðlazt rétt til að láta af störf- um með 60% ellilífeyri. Eftir það hætast 2% við fyrir livert síarfsár og' nemur iiann því 65% af launum þegar hann verð- ur 65 ára og 75% af launum ,þegar hann verður 70 ára. Að lokum skal athygli vakin á því að upphæð ellilifeyris er hundraðs- hluti af þeim launum, sem á hverjum tíma fylgja starfi þvi, sem sjóðfélag- inn gegndi síðast. GÓÐ SÍMA- Þ.JÓNUSTA Það vill mikið oftar bera við að menn láta í ljósi óánægjuraddir, fremur en að lýsa ánægju sinni ef vel gengur. Það var því mikið gleðiefni þegar Lands- síminn og starfsmenn hans þar með fengu hrós fyrir mjög góða símaþjónustu þegar ráðherrafundur Atlantshafsbandalagsins var haldinn í höfuðborginni í maí sl. Verður að líta á framangreint sem veru- legt hrós, þar sem forystumenn þessara samtaka hafa mjög góðar aðstæður til að dæma um þessa þjónustu. UTANFARItt - Framhald af bls. 29. pressa á mönnum og þeir eru auðsjáan- lega ekki í tímahraki. Þar er um meiri sérhæíingu að ræða, menn vinna að þrengri verkefnum, eru vel heima í grund- vallaratriðum í radíótækninni og eru með meiri menntun. Það eru hreinar línur með það, að allir hætta að vinna kl. 17, sem virðist gefa dágóðan lífstandard. Flestir eiga bíla, þó þeir noti reiðhjólið einnig mikið og þeir eru vel klæddir. Það myndi fáum detta í hug, að fara að auka kaupgetuna með lengri vinnu- degi. Þó vissum við Ríkarður um einn mann á Labratoriunu, sem hafði unnið aukavinnu, sem hljóðfæraleikari um helg- ar. Hann varð að hætta því vegna þess, að þeim hjónunum fannst hann vera kominn of mikið úr tengslum við heimilið.“ „Hvernig kanntu við HolIendinga?“ Hollendingar eru yfirleitt mjög elsku- legt og reglusamt fólk, ég sá t. d. varla nokkurn tíma drukkið fólk, en það reykir mikið. Ég kom inn á nokkur hollenzk heimili og það, vakti athygli mína, hvað hollenzk börn ,,respektera“ fullorðna fólkið meira en hér tíðkast. Börn eru aldrei með ólæti á almannafæri og sáust varla úti eftir kvöldmat þó bjart væri til kl. 22 þann tíma, sem ég dvaldi í Eindhoven." H. H. ☆ SMÆUKI Á velferðartímum sumra þjóða eru allt- af einhverjir sem eru óánægðir með tilver- una enda þótt þeir hafi alltaf ærið nóg — og kannski allt of mikið, — að borða. í blaði einu í Þýzkalandi var nýlega bent á að hægt væri að fá ýmsar ráðleggingar með því að velja ákveðið símanúmer. Ein þeirra var þessi: „Fremjið ekki sjálfsmorð með hnífi og gafli.“ S'ÍMABLAÐIÐ

x

Símablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.