Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.2005, Síða 8
8 LAUGARDAGUR 3. DESEMBER 2005
Fréttir DV
Hafnir tengj-
ast netinu
íbúar Hafna í Reykja-
nesbæ geta loksins tengst
internetinu ef marka má
bæjarráð Reykjanesbæjar.
Á fundi ráðsins í gær var
samþykkt að ganga til
samninga við Símann um
tengingu ljósleiðara og
ADSL. íbúarnir í Höfnum
hafa lengi verið útundan
hvað varðar áform Reykja-
nesbæjar en þeir drekka
meðal annars lélegt vatn
frá Hitaveitu Suðurnesju.
Þó er von á að það lagist á
næstunni.
Fækkar í
Eyjum
Samkvæmt bráða-
birgðatölum frá Áka Heinz í
ráðhúsinu í Vestmannaeyj-
um heldur íbúum áfram að
fækka í Eyjum að því er
fram kemur á vefsíðu sunn-
lenska.is. Þann 1. desember
í fyrra voru íbúar í Eyjum
4.227 en eru samkvæmt
bókum Áka 4.184 nú ári
síðar og munar þar 43 íbú-
um. Áki á ekki von á því að
þessi tala breytist mikið en
breytingum í þjóðskrá
verður lokað að kvöldi 9.
desember. Síðustu tólf
mánuði eru brottfluttir 263,
aðfluttir 209, fæðingar voru
38 og látnir 34.
Vilja sjúkra-
flugvél
Bæjarráð Isafjarðarbæj-
ar krefur heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneyti
um tafarlaus skýr svör um
það hvort ráðuneytið hygg-
ist fara eftir þeirri beiðni
ráðsins að staðsetja'sj úkra-
flugvél á ísafírði þar til bætt
hefur verið úr aðflugsskil-
yrðum á flugvöllunum á
Isafirði og Þingeyri að því
er fram kemur á vef
Bæjarins besta, bb.is. Eins
og sagt hefur verið frá á
vefnum þá verður Þingeyr-
arflugvöllur lokaður fram á
vor og er fullljóst að ekki
verður notast við hann í
vetur, hvorki til sjúkraflugs
né flugs af öðru tagi.
Sonur hjónanna Ólafs Halldórssonar og Láru Maríu Theodórsdóttur hefur náð ótrú-
legum framförum eftir að mistök við meðgöngu og fyrir fæðingu hans gerðu hann að
90 prósent öryrkja. Mistökin voru rekin til ófullnægjandi meðhöndlunar, eftirlits og
viðbragða starfsmanna Landspítalans. í gær dæmdi Héraðsdómur Reykjavíkur spít-
alann til að greiða 24 milljónir í skaðabætur vegna mistakanna. _________
11
Ólafur og Lára ásamt
Halldóri syni sínum
Stolt af stráknum og
fagna sigrinum.
Dæmdar 24 milljónir
vegna læknamistaka
„Við lítum á þetta sem mikinn sigur,“ segir Ólafur Halldórsson
sem í gær vann 24 milljónir í skaðabætur vegna læknamistaka
sem gerðu son hans að 90 prósent öryrkja. 13 ár eru síðan sonur
Ólafs kom í heiminn á Landspítalanum en röð mistaka starfs-
fólks sjúkrahússins leiddu til þess að drengurinn varð fyrir stór-
felldu heilsutjóni vegna súrefnisskorts í meðgöngu og fæðingu.
Líf Ólafs Halldórssonar og konu
hans Láru Maríu Theodórsdóttur
gjörbreyttist við fæðingu sonar
þeirra. Þau voru sjálfstæðir atvinnu-
rekendur á Höfn í Hornafirði en síð-
ustu ár hafa þau neyðst að reka tvö
heimili til þess að geta sótt þá þjón-
ustu sem heymarskerðing og
þroskahömlun, Halldórs sonar
þeirra, kallar á. Annars vegar heima á
Höfn - og hins vegar á sambýli við
Sléttuveg í Reykjavík.
Landspítalinn varðist af
hörku
Heymarskerðing og þroskaseink-
un Hcdldórs em raktar til ófullnægj-
andi meðhöndlunar, eftirlits og við-
bragða af hálfu starfsmanna Land-
spítalans við meðgöngu og fyrir fæð-
ingu hans. Vegna þessa stefndu for-
eldrar Halldórs Landspítalanum og
kröfðust 70 milljóna króna í skaða-
bætur.
Ólafur Halldórsson segir að
kæmferlið hafi verið fjölskyldunni
erfitt. „Þetta var allt mjög þungt í
vöfum. Endalausar skýrslutökur
sem tóku mjög langan tíma," segir
hann.
Landspítalinn varðist einnig
kæm hjónanna af hörku og neitaði
að taka ábyrgð á mistökunum.
Greinileg einkenni
fóstureitrunar
Halldór Ólafsson fæddist í maí
1993. Nokkmm dögum áður en
hann fæddist kvartaði móðir hans,
Lára María, undan minnkuðum
hreyfingum. Hún hafði greinileg
einkenni fóstureitmnar. Þrátt fyrir
það dróst það á ijórða sólarhring að
ljúka meðgöngunni. í dómi héraðs-
dóms segir að ónógt og ómarkvisst
eftirlit og ákvarðanatökur starfs-
manna kvennadeildar Landspítal-
ans hafi leitt til þess að svona fór og
féllst því á skaðabótakröfu hjón-
anna.
Ströng barátta
Fjölskyldan var stödd á öðru
heimili sínu í gær þegar DV hafði
samband. Hjónin Lára og Ólafur
segjast gera sér grein fyrir að ekki sé
um fullnaðarsigur að ræða því óvíst
sé hvort Landspítalinn ætli að
áfrýja niðurstöðunni til Hæstarétt-
„Soriur okkar hefur
náð miklum framför-
um síðustu ár og get-
urorðið bjargað sér
með ótrúlega margt."
ar. Faðirinn Halldór er á leiðinni
austur um helgina að sinna fyrir-
tæki sínu eins og hann hefur gert
síðustu ár.
„Þetta hefur verið löng og ströng
barátta," segir hann. „Til að byrja
með var þetta full vinna fyrir kon-
una að sinna syni okkar. Við grátum
það samt ekki. Emm frekar þakklát
því þetta hefði getað farið mun
verr. Sonur okkar hefur náð mikl-
um framförum síðustu ár og getur
orðið bjargað sér með ótrúlega
margt," segir Ólafur stoltur af syni
SÍnum. andri@dv.is
Prófkjör framsóknarmanna í Reykjavík.
Friðrik undirfeldi
„Það er allt í lagi og kostar
ekki neitt," segir Friðrik Ind-
riðason, blaðamaður og rit-
höfundur, aðspurður um
það hvernig sé að vera orð-
inn flokksbundinn fram-
sóknarmaður.
Friðrik skráði sig í
flokkinn nú í vikunni
gagngert til að halda
þeim möguleika
opnum að bjóða
sig fram í 1. sæti í
prófkjöri flokks-
ins. Og fara þá
fram gegn Birni
Inga Hrafnssyni,
aðstoðarmanni
Hvað liggur á?
Halldórs Ásgrímssonar, sem þegar
hefur lýst því yfir að hann sækist
eftir því sæti.
Framboðsfrest-
ur rennur út í lok
þessa mánaðar og
kosningar fara
fram í lok janúar.
Prófkjörið verð-
ur opið þó
svo að þeir
sem kjósa
verði að
undir-
Friðrik Indriðason Hefur
gengið i flokkinn ogernú að
ihuga það að fara fram gegn
Birni Inga.
„Ég er í klippingu akkúrat núna/'segir Elísabet Thorlacius fyrirsæta. Svo er ég bara á
leiðinni íjólahlaðborð á Fjörukránni í kvöld með góðum vinum.
rita stuðningsyfirlýsingu við flokk-
inn. Slík yfirlýsing er reyndar ekki
eitthvað sem reyndir kosningasmal-
ar setja fyrir sig og Friðrik segist.
hafa aðgang að slíkum. Hann hefur
hins vegar ekki tekið endalega
ákvörðun um að fara fram til að
leiða listann.
„Ég er að skoða ýmsa möguleika
í stöðunni. Ekkert hefur verið fastá-
kveðið enn. Birni Inga er vitanlega
enginn greiði gerður með því að
vera sjálfkjörinn. Framsókn er í
hrikalegri stöðu í borginni og öll
umræða hlýtur að gagnast flokkn-
um," segir Friðrik.
Björn Ingi segist fagna því að
sem flestir taki þátt í prófkjörinu þó
ekki vilji hann tjá sig sérstaklega um
hugsanlegt framboð Friðriks.
„Ég vona bara að sem flestir sæk-
ist eftir því að leiða listann," segir
Björn Ingi sem nú er staddur í
Bandaríkjunum.
Skíði fyrir bensín
Skíðafélag ísfirðinga og Bens-
ínorkan hafa gert með sér sam-
komulag þess efnis að Skíðafélagið
fái þúsund krónur í hvert sinn sem
ísfirðingar og nærsveitungar skrá
sig fyrir svokölluðu bensín-
frelsiskorti að því er fram kemur á
vef Bæjarins besta, bb.is. „Bensín-
frelsi er kort sem notað er til
greiðslu á bensínstöðvum Orkunn-
ar. Kortið er líkt og símafrelsið, fýr-
irframgreitt og hagræði notenda
þess er bæði einfaldleiki í notkun
og einnig þriggja krónu afsláttur á
hvern lítra eldsneytis," segir í til-
kynningu frá Skíðafélaginu.