Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.2005, Side 10
10 LAUGARDAGUR 3. DESEMBER 2005
Fréttir DV
Ólafur Geir Jonsson
Ólafur Geir er hress og mikill
vinur vina sinna. Hann er á
lausu og það er ávallt stuð í
kringum hann.
Hann er skapstór og hugsar
stundum ofmikið um útlit-
ið. Hann þyrfti að læra að
strauja og vaska upp.
„Hann Óli Geir er mjög hress og
skemmtilegur strákur. Hann er
mikill vinur vina sinna
og ávallt hægt að
treysta á hann. Það er
líka hægt að treysta á
Óla Geir i gott flipp.
Hann er mjög metnaðargjarn
eins og kemur bersýnilega I Ijós I
sjónvarpsþættinum hans Splash
og hann vill öllum vel. Hvað
gallana varðar þá á hann til að
taka sér ofmikið fyrir hendur en
nær oftast að klára öll sín verk-
efni. Hann er líka náttúruleg
Ijóska."
Jóhann Davíð vlnur.
„Óli Geir er rosalega góður og
traustur vinur. Það er hægt að
treysta á það að það sé
ávallt stuð I kringum
hann en það er mjög
gaman að vera með
stráknum. Hann er líka
duglegur og klárar ávallt það
sem hann tekur sér fyrir hendur
fyrir utan skólann kannski.
Hann er hugsar mikið um útlitið
en það gæti llka hinsvegar verið
galli. Ég á það til að þurfa að
bíða svo mikið eftir honum á
meðan hann gerir sig til á kló-
settinu. Hann er skapstór og
kannski offljótur upp."
ÁrniÞór Armannsson. tyrrverandi sam-
starfsmaöur og vinur.
Til að byrja meðerhann nátt-
úrulega fucking herra Island.
Fyrir utan það þá er
hann er vinur vina sinna
og elskar alla. Strákur-
inn er á lausu og á mjög
góðan bróðursem er
fyndinn og gáfaður. Óli Geir
elskar alla, bæöi konur og karla.
Hann getur verið skapstór og
morgunfúll og hatar að hlusta á
bróður sinn spila á gítarinn.
Hann þyrfti að læra að strauja
og vaska upp. Það þyrfti llka aö
senda hann I húsmæðraskól-
ann.
Jóhann Þór Jónsson, bróöir og sam-
starfsmaöur.
ólafur GeirJónsson er fæddur 23. maí áriö
1985. Hann er nýkrýndur herra ísland.
Hann er meö sjónvarpsþáttinn Splash á
Sirkus en hann ásamt bróður sínum stofn-
aöi fyrirtæki í kringum vefsjónvarp sem þeir
settu á stofn fyrir nokkru siðan. Hann æfir
körfubolta og stundar nám viö Fjölbrauta-
skóla Suöurnesja.
Lögreglan í
stuði
reÆ
Keflavík w
var við eftirlit á skemmti- „Jjmmk
stað í bænum í f'yrrakvöld 'M
þegar grunur kom upp um *l|s
að einn gestanna væri með
fíkniefni á sér. Við leit á
manninum fannst bútur af
meintu hassi sem lagt var
hald á. Lögreglan hefur
undanfarna daga handtek-
ið fjöldann allan af fólki og
gert nokkrar húsleitir í því
sem virðist fíkniefna
„rassía" þar í bæ. Um dag-
inn handtók lögreglan í
Keflavík karlmann sem var
með 170 grömm af meintu
hassi í íbúð sinni.
Gullmiðanum var útbýtt í gær og eru útgefendur vægast sagt misánægðir með nið
urstöður dómnefnda. Jóhann Páll Valdimarsson á JPV óttast að verðlaunin verði
marklaus, Snæbjörn Valdimarsson á Bjarti ætlar að bíta í hið súra epli en i Eddu
valhoppa menn um ganga.
Jóhann Páll
Valdimarsson
Ekki spurningin
um hversu
margar bækur
forlagsins eru á
lista heldur að
þarséu verðug-
„Jájá, auðvitað. Neinei, það er ekkert hægt að vera að væla yfir
þessu. Auðvitað hefði ég viljað fá fleiri inn. En það er bara svona.
Maður þarf að bíta í þetta súra epli,“ segir Snæbjörn Arngríms-
son formaður Félags íslenskra bókaútgefenda og forleggjari á
Bjarti um tilnefningar til hinna íslensku bókmenntaverðlauna:
Gullmiðann.
Sannarlega eru þeir misánægðir
útgefendur eftir að Gullmiðanum
var útbýtt í gær í beinni útsendingu
Kastljóss Ríkissjónvarpsins. Snæ-
björn lét þess svo getið í DV fyrir
skemmstu að allt undir þremur til-
nefningum yrðu sér vonbrigði.
Bjartur hlaut aðeins eina tilnefn-
ingu. Má því búast við að einhver
styr standi um Gullmiðann en í fyrra
varð allt brjálað. Fór Eiríkur Guð-
mundsson útvarpsmaður fyrir mikl-
um óánægjukór sem gaf lítið fyrir
Gullmiðann.
Enginn rithöfundur vildi
mæta upp á von og óvon
Fyrirfram ætlaði félag bókaútgef-
enda að boða breiðan hóp rithöf-
unda til leiks í Kastljósið og var hug-
myndin sú að þeir mættu þar upp á
von og óvon. Blaðamaður DV var því
á staðnum spenntur að sjá hverjir
myndu láta sig hafa það að mæta.
Hann var hins vegar merkilega þétt-
ur hópur rithöfunda sem kom og var
ekki að greina neitt óöryggi þeirra á
meðal. Við eftirgrennslan kom á
daginn að bókaútgefendur höfðu
runnið á rassinn með að boða rit-
höfunda í óvissuna. Snæbjörn stað-
festir það: „Nei, sú hugmynd Kast-
ljósmanna gekk ekki upp. Þetta
mætti gríðarlegri andstöðu meðal
rithöfunda."
Hvar er Stóra orðabókin?
„Ég hef svo sem ekki mikið um
tilnefningarnar að segja. Þetta er val
þriggja manna nefndar með mis-
munandi skoðanir og málamiðlan-
ir,“ segir Jóhann Páll Valdimarsson
á JPV. Jóhann Páll reynir ekki að
þykjast kátari en hann er með nið-
urstöðuna.
„Ég hef í gegnum tíðina aldrei
verið með neinar fyrirfram vænting-
ar um tilnefningar en tvisvar hef ég
þó ekki verið í vafa um að bók yrði
tilnefnd en svo varð ekki í hvorugt
skiptið. Það var annars vegar Orða-
heimur eftir Jón Hilmar Jónsson
sem ekki var tilnefnd þegar hún
kom út og það er mér enn hulin ráð-
gáta hvernig hægt var að sleppa
henni. Eins var það í ár. Ég var ekki
með neinar vangaveltur um hvaða
bækur yrðu tilnefndar en taldi raun-
ar sjálfgeflð að afrek Jóns Hilmars,
Stóra orðabókin um íslenska mál-
notkun, yrði tilnefnd en svo varð
ekki.“
Jóhann Páll segir bókmennta-
verðlaunin einskonar samkvæmis-
leikur útgefenda og ekki nema gott
eitt um það að segja verði það til að
vekja athygli á bókum en óttast að
leikurinn verði marldaus gangi
hann í berhögg við það sem eðlilegt
má teljast.
Aðspurður hvort Eddan megi
ekki teljast ótvíræður sigurvegari
Gullmiðans segir Jóhann Páll ekki
spurt um hversu margar bækur ein-
stakir útgefendur eigi á listanum
heldur að verðugar bækur rati inn á
Huldumenn stíga fram
Þeir stigu loks fram í dagsljósið
á fimmtudagskvöld, huldumenn-
imir f nefndunum en tvær þriggja
manna dómnefndir völdu verldn
sem tilnefnd vom. Úr flokki fræði-
rita og bóka almenns efnis skip-
uðu: Árni Bergmann formaður,
Páll Björnsson og Guðfinna S.
Bjarnadóttir. Nefndina í
flokki fagurbókmennta
skipuðu: Hrefna Haralds-
dóttir formaður, Kristján
Árnason og Þóra Arnórs-
dóttir.
Nú mun þriggja manna
lokadómnefnd taka við og
velja eina bók úr hvomm
flokki. Forseti íslands af-
hendir verðlaunin í
byrjun næsta árs og skipar for-
mann lokadómnefndar sem er Dr.
Herdísi Þorgeirsdótt-
ur. Með Herdísi í
lokadómnefnd sitja
formenn dóm-
nefndanna tveggja.
hann. „En ég hef ekki lesið þessi verk
og vil engan dóm um þau fella.“
Gleðidagur í Edduhúsi
„Við hjá Eddu emm ákaflega
ánægð. f skýjunum yfír þessum til-
nefningum. Glöð að fá svona margar
góðar bækur frá okkur tilnefndar.
Bæði skáldsögur og rit almenns eðl-
is. Þetta er óneitanlega gleðidagur
hér í Edduhúsi," segir Kristján Bjarki
Jónasson og leynir hvergi ánægju
sinni.
Kristján nefnir að Rokland Hall-
gríms og Sólskinshestur Steinunnar
hafi fengið afbragðs dóma og sama
megi segja um Jón Kalman. „Við vit-
um að við erum sterk í almennu
deildinni og gerðum ráð fyrir því að
fá tilnefningar þar. En í bókmennta-
deildinni veit maður aldrei, þar er
aRt óráðnara."
í fýrra urðu feilcilegar deilur um
Gullmiðann en Kristján býst ekki við
svo hatrömmum deilum nú. „Aðal-
lega var það einn maður, Eiríkur
Guðmundsson, sem hafði heilan
miðil undir sig til þess að viðra óá-
nægju sína. En vel má vera að
mönnum flnnist halla á einhvern
núna. Það sem var leiðinlegt í fyrra
var að umræðan gerðist subbuleg,
útgefendur voru sakaðir um að vera
með lélegar bækur og nefndarmenn
um að geta geta ekki tekið ákvarðan-
ir. Erfiðara verður að halda því fram
núna.“
Óvíst um uppþot
Nefndur Eirfkur tilheyrir bók-
menntahópi sem nefndur hefur ver-
ið Bjartsklíkan. Þar er höfðuðpaur
Snæbjörn sjálfur. „Ég held að Eiríkur
sé sestur á friðarstól. Ég sé heldur
ekki á hvaða vettvangi uppþotið ætti
að vera. Á Kistunni? Blaðinu? Ég veit
að fólk talar um það á götum úti að
sumt komi þarna á óvart. En ég veit
ekki hvort einhver ætlar að fara að
gera mikið mál úr þessu," segir Snæ-
bjöm.
Snæbjörn segist geta nefnt alla
útgáfuröðina aðspurður um hvaða
bækur hann vildi hafa séð tilnefndar
til Gullmiðans. „Mér hefði ekld þótt
skrítið að sjá Jón Hall þarna inni
með Krosstré. Eða Sjón með Argóar-
flísina. Það hefði ekki komið mér á
óvart. Jújú, ég býst við því að ein-
hverjir séu spældir. Og einhverjir
eigi eftir að kvarta. Ég er viss um
það. En við höldum friðinn hér á
Bjarti."
Snæbjörn vill sem sagt una nið-
urstöðunni og tekur nú til við að
líma sem mest hann má þennan
eina gullmiða sem Bjartur fékk á bók
Jóns Kalmans. „Alltaf gaman að
líma."
jakob@dv.is
„Jújú/ ég býsivið þvi
að einhverjirséu
spældir. Og einhverjir
eigi eftir að kvarta. Ég
er viss um það. En við
höldum friðinn hér á
Bjarti"
Gullmiðahafar
Ekki bára munar um það fyrir
höfunda að fá Gullmiðann á bók
sína í slagnum um sæti á sölu-
listum heldur keppa þessar tíu
bækur um verðlaun upp á 750
þúsund krónur. AIls voru lagðar
fram af útgefendum 82 bækur,
45 í flokki fagurþókjnennta og 37
í flcikki bóka alm'enns efnis. For-
lögin leggja með hverri bók um
25 þúsund þannig að fýrirbærið
stendur að mestu undir sér
sjálft á þann veg.
Fræðirit og bækur
almenns efnis:
Ég elska þig stormur
eftir Guðjón Friðriks-
son. Edda útgáfa.
Fuglar í náttúruís-
lands eftir Guðmund
Pál Ólafsson.
Edda útgáfa.
íslensk tunga I-III eftir
Guðrúnu Kvaran,
Höskuld Þráinsson og
Kristján Árnason.
Edda útgáfa.
Jarðhitabók eftir Guð-
mund Pálmason.
Hið íslenska
bókmenntafélag.
Kjarval, aðalliöfundur
Kristín Guðnadóttir.
Nesútgáfan.
Fagurbókmenntir
Hrafninn eftir Vilborgu
Davíðsdóttur. Edda út-
gáfa.
Rokland eftir Hallgrím
Helgason. Edda útgáfa.
Sólskinshestur eftir
Steinunni Sigurðar-
dóttur. Edda útgáfa.
Sumarljós, og svo kem-
ur nóttin eftir Jón
Kalman Stefánsson.
Bjartur.
Tími nornarinnar
eftir Áma Þórarinsson.
JPV útgáfa.