Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.2005, Qupperneq 14
74 LAUGARDAGUR 3. DESEMBER 2005
Fréttir DV
Biskupspassinn Karl Sigur-
björnsson flýgur sinar feröir mec
diplómatapassa upp á höndina.
| Vladimir Ashkenazy
Eini heimsfrægi islenski lista■
maðurinn sem ermeð
diplómatapassa. I
Árni Mathiesen
Með passa.
[ Jón Krist-
jánsson
Með passa.
Einar K. Guðfinnsson
Ekki með passa.
Geir Haarde
Með passa.
Davíð Odds-
son Með passa.
Eftir þriggja mánaða ferli hefur DV loks borist listi yfir þá ein-
staklinga, sem eru handhafar þjónustu- og diplómatískra vega-
bréfa. Á listanum eru 452 aðilar, sem flestir starfa fyrir utanríkis-
ráðuneytið.
Mun fleiri en eru á listanum eiga
rétt á að fá bréfin. Sækja þarf sér-
staklega um þau og vekur því athygli
hversu margir gera það ekki. Það
kemur heim og saman við það litla
álit sem þeir sem til þekkja hafa á
þeim.
Snobbvegabréf
„Mér er sagt að núorðið séu þau
óvíða nokkurs virði - nema þá sem
einhver stöðutákn, snobbvegabréf,"
segir Mörður Árnason alþingismað-
ur.
Helgi Gíslason, sendiherra og
prótókolimeistari í utanríkisráðu-
neytinu, segir muninn á þjónustu-
vegabréfum og diplómatískum
vegabréfum nánast engan. Nema að
þau diplómatísku þykja heldur fínni
pappír. Handhafar vegabréfanna
njóta ákveðinnar fyrirgreiðslu en
Helgi segir það þó aðallega vera ef
eitthvað komi upp á og þá gagnvart
ríkisstjórnum viðkomandi ríkja. „En
sumstaðar þykir þetta örugglega
meira spennandi en annars staðar.
Ég veit ekki hversu gagnlegt þetta
er," segir Helgi.
Jóhann Benediktsson, sýslumað-
ur á Keflavíkurflugvelli, hikar ekki
við að leita á fólki með passana.
„Hvað íslendinga varðar, þá skiptir
okkur engu máli hvort þeir sem
hingað koma hafi slfka pappíra.
Leitað hefur verið hjá handahafa
slíkra passa og þeir ekki sáttir," segir
Jóhann.
Afhentu ekki listann
í september fór DV fram á að fá
lista yfir handhafa þjónustu- og
diplómatískra vegabréfa sem utan-
ríkisráðuneytið gefur út. Málinu var
vfsað til útíendingaeftirlitsins, sem
vísaði þvf aftur til utanríkisráðu-
neytisins. Beiðninni var hafnað og
DV kærði utanríkisráðuneytið til úr-
skurðarnefndar um upplýsingamál
sem heyrir undir forsætisráðuneyt-
ið.
í höfnuninni var vísað í lög um
persónuvernd og meðferð persónu-
upplýsinga. Ekki var með góðu móti
séð hvernig vegabréfalistinn varðaði
persónuvernd og á þeirri forsendu
kærði DV ráðuneytið. Helgi Gíslason
fór fram á það fyrir hönd ráðuneytis-
ins að kærunni væri vísað frá.
Úrskurðamefndin tók kæmna til
urnfjöllunar og vísaði henni frá- „Þar
sem umbeðnar upplýsingar í máli
þessu er að finna í rafrænni skrá sem
haldin er kerfisbundið, fellur erindið
ekki undir gildissvið upplýsinga-
laga," stóð í úrskurðinum.
Tekið upp á Alþingi
Málið vakti athygli Marðar Árna-
sonar og lagði hann þann 3. nóvem-
ber inn formlega fyrirspurn um lista
yfir handhafa passanna á Alþingi,
eins og sá listi lá fyrir 1. september.
Henni var beint til Geir Haarde ut-
anríkisráðherra, sem þurfti að svara
innan tíu daga.
„Þessi úrskurðarnefhd á ekkert
við um þingið. Þingið á að fá þær
upplýsingar sem því sýnist. Þetta er
úthlutun á gæðum. Stuðst er við
ákveðnar reglur og er opinber at-
höfn. í lýðræðisríki á þetta að vera
öllum opið," sagði þingmaðurinn.
Leyndin sem yfir Jistanum hvíldi
gaf ástæðu til að ætla að farið hefði
verið fijálslega með vegabréfin.
„Ég hef í sjálfu sér enga ástæðu til
að halda annað en að allt sé með
felldu. Ég tel hins vegar að DV og
aðrir fjölmiðlar hafi fullan rétt á að
fylgjast með þessu. Úr því að utan-
rikisráðuneytið færist undan því að
svara ykkur mun ég láta á það reyna
hvort utanríkisráðherra geri slíkt hið
sama og víki sér undan því að svara
Alþingi þessu."
452 með passa
Fyrirspum Marðar og DV var
umdeild og fjallaði Björn Bjamason
dómsmálaráðherra um málið á
heimasíðu sinni.
„Mörður Árnason, þingmaður
Samfýlkingarinnar, hefur tekið við
af DV að leita að upplýsingum um,
hverjir hafi svonefnda diplómata-
passa, það er sérstaka gerð vega-
bréfa. Eg átta mig ekki á því, að
hverju er verið að leita með þessum
fyrirspumum DV og nú Marðar á Al-
þingi," sagði Björn.
Nú í vikunni barst loks listinn og
kom þá í ljós að alls em 452 hand-
hafar vegabréfanna.
„Ég lít svo á að fjölmiðlarnir hafi
unnið sigur í málinu," segir Mörður.
„Upplýsingar sem beðið var um
hafa fengist þó þurft hafi að fara
ijallabaksleið að þeim. Mín meining
í upphafi var einfaldlega að styðja
bón DV sem mér fannst fullkomlega
eðlilegt að yrði svarað. Ég átti ekki
von á öðm innihaldi en hér er.“
Kemst allra sinna ferða án
diplómatapassa
Þegar listinn er skoðaður kemur
bersýnilega í ljós að ekki allir sem
eiga kost á því nýta sér þann mögú-
leika að sækja um vegabréfin. Til að
mynda hafa aðeins átta þingmenn
fengið þjónustuvegabréf. Björn
Bjarnason, dómsmálaráðherra og
þingmaður, hefur til að myúda ekki
mikla trú á þessum pössum.
„Síðan ég varð þingmaður eða
ráðherra hef ég ekki notað slíkt
vegabréf, en þó komist allra minna
ferða hindrunarlaust og án vand-
ræða við landamæri," segir Björn.
Og eini maðurinn sem er undir 18.
og 19. lið, um heimsfræga lista-
menn, er Vladimir Ashkenazy. Nei,
enginn Kristján, engin Björk.
„Síðan ég varð þing-
maður eða ráðherra
hefég ekki notað slíkt
vegabréf, en þó kom-
ist allra minna ferða
hindrunarlaust ogán
vandræða við landa-
mæri."
Þurfa enga passa Hæstaréttardómararnir Jón
Stemar Gunnlaugsson og Hrafn Bragason eru
ekki með neina passa nema þá sömu og sauð-
svarturalmúginn.
Halldór
Ásgríms-
son
Með
passa.
klB
)►
. - -
7t
i «
VííF*'
l —
Aðstoðarmennirnir Aðstoðarmenn Islands
Bjorn Ingi Hrafnsson og lllugi Gunnarsson eru með
diplómatapassa. Illugi er reyndar hættur núna
■m
■assBöSSfflawBaas
Rnrkiu Þorvaldsson og Garðar Gísiason eru oll með diplómatapass*
"leð Passa Guðmundur Bjarnason, forstjóri
Ibuðalánasjóðs, Karl Stemar Guðnason, forstjóri Trygginga-
stofnunar rlkisms, og Jóhann Sigurjónsson, forstjóri Hafró
eru með þjónustupassa frá utanríkisráðuneytinu.
Með venjulega passa Bogi Nilsson ríkissak
sóknari og Ásmundur Stefánsson ríkissátta-
semjari eru ekki með dipiómatapassa. ,
Vigdís Finnbogadóttir
Með diplómatapassa sem
fyrrverandi forseti ís-
lenska lýðveldisins.
Halldór Blöndal Fyrrverandi
forseti Alþingis er einn afaðal-
mönnunum og að sjálfsögðu
með dipiómatapassa.
Rendi og löggan Haraldur Johannessen rikislog-
reglustjóri og Sigurður Þórðarson, yfirmaður Ríkisend
, urskoðunar, eru báðir með diplómatapassa.
Valgerður
Sverrisdóttir
Ekkimeð
passa.
Árni
Magnús
son Með
passa.
Sigríður Anna Þórð-
ardóttir Með passa.
Björn
Bjarna-
son Ekki
með
passa.
Þorgerð-
ur Katrin
Gunnars-
dóttir
Ekki með
passa.
Guðni Ágústs-
son Meðpassa.
Sturla
Böðvars-
son Með
passa.
Jón Sig-
urðsson Seðia-
bankastjóri und-
anfarin tvö ár en
ekki með neinn
diplómatapassa
'Mv %
'asssk
Birgir ísleifur Gunnars
son Vék fyrir Davíð Odds
syni en er enn með passa.
Finnur Ingólfsson
Hætti fyrir þremur
árum sem seðla-
bankastjóri en er enn
með diplómatapassa.
Eiríkur Guðnas
Seðlabankastjóri
með passa.
m
m
Sjö konur og einn karl með
þjónustupassa Átta alþingis-
menn, Ásta Ragnheiður Jó-
hannesdóttir, Sólveig Péturs-
dóttir, Steingrimur J. Sigfússon,
Siv Friðieifsdóttir, Drlfa Hjartar-
dóttir, Rannveig Guðmunds-
dóttir, Jóhanna Sigurðardóttir
og Margrét Frlmannsdóttir eru
einu þingmennirnir sem eru
með þjónustuvegabréf.