Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.2005, Qupperneq 20
20 LAUGARDAGUR 3. DESEMBER 2005
Helgarblað W
Morðingi í
skáldsögu
hét Laxness
Halldór Kiljan Laxness kom meö Gull-
fossi tii Reykjavíkurfímmtudaginn 25. maí
1961. Þetta vor varhann enn ásamt Gunn-
ari Gunnarssyni ísérstökum heiðursflokki
listamanna, sem Alþingi veitti 33.200
krónur. Á meöan hann var erlendis, haföi
nafnið Laxness verið nefnt í óvæntu sam-
hengi. íslensk blöð birtu fréttir afþvíþetta
vor, að árið áður hefði komið út í Banda-
ríkjunum reyfarinn Danger is My Line.
Höfundurinn var Stephen Marlowe, en á
bak við hann leyndist Bandaríkjamaður-
inn Milton Lesser, sem gaf út 2-3 slíkar
sögur á ári. Sagan hefst á því, að sænskur
starfsmaður Sameinuðu þjóðanna er
myrtur að undirlagi Kremlverja, því að
hann er eini maðurinn, sem getur miðlað
málum í fískveiðideilu íslendinga og
Breta. Bandarískur leynilögreglumaður er
sendur til íslands. En með honum fylgist
skuggalegur náungi íslenskur, Einar Lax-
ness, sem reynist vera leigumorðingi á
vegum Kremlverja. Tekst Bandaríkja-
manninum eftir miklar raunir að ráða nið-
urlögum hans. Þjóðviljinn var hinn versti
yfírþví, að Marlowe skyldihafa notað nafn
Einars Laxness. En skýringin á því er auð-
sæ: Marlowe hefurgluggað ííslenska bók-
menntasögu Stefáns Einarssonar og sett
nafhið saman úr Einari Benediktssyni og
Halldóri Laxness. Til dæmis hét læknir
einn í sögunni, sem var kommúnisti og
reyndi að drepa fólk afhugsjónaástæðum,
Kvaran. Laxness, bls. 262.
Vinur Laxness var
hommi og njósnari
I Moskvu voríð 1954 hitti Lax-
ness gamlan kunningja, sem hann
hafði kynnst í Rúss-
landsferð sinni sum-
aríð 1949, kanadíska
norræn ufræðinginn
John Watkins. Þá
hafði Watkins verið
starfsmaður sendi-
ráðs lands síns, en nú
var hann orðinn
sendiherra í Moskvu.
Hann þýddi þrjár
smásögur eftir Lax-
ness á ensku ogheim-
sótti hann síðar á ís-
landi. En þessi virti
bókmenntamaður bjó yfír leynd-
armáli. Hann var samkynhneigð-
ur, sem var þá brottrekstrarsök úr
utanríkisþjónustunni, og átti eftir
að verða eitt fómarlamb stjóm-
málalögreglu Ráðstjómarríkjanna,
sem nú var auðkennd með stöfun-
um K.G.B. ísendiherratíð
sinni í Moskvu 1954-1956
gekk Watkins f gildru lög-
reglunnar. Hann varljós-
myndaður, þar sem
hann naut ásta með ung-
um fíugumanni lögregl-
unnar í gistiherbergi í
borginni. Watkins gekk
eftir þetta erinda Ráð-
stjómarríkjanna í starfí,
en varð aldrei beinlínis
njósnarí. Þetta komst
ekki upp, fyrr en flótta-
menn að austan sögðu
frá því, en þá hafði Watkins dregið
sig í hlé. Hann viðurkenndi brot
sitt 1964, en dó um svipað leyti úr
hjartaslagi.
Laxness, bls. 133-134.
Laxness um borð í
Gullfossi Skáldið fór
margar ferðir með því
skipi. Hér að koma heim
eftir að hafa veitt nóbels-
verðlaununum viðtöku.
Hannes
klárar
Laxness
Nú sér fyrir endann á ævisöguskrifum Hannesar Hólmsteins um
Halldór Laxness. Þriðja og síðasta bindið er að koma út og heitir
Laxness líkt og hin tvö fyrri hétu Halldór og Kiljan. Hannes hefur
víða leitað fanga og í þriðja bindinu eru leiddir fram ýmsir karakt-
erar; hommi, njósnari og morðingi í skáldsögu - sem heitir Laxness.
Ekki er víst að Hannesi Hólmsteini
Gissurarsyni hafi órað fyrir hvað eftir ætti
að ganga þegar hann hóf að rita ævisögu
Halldórs Laxness í þremur bindum. Grun-
laus gekk hann til skrifta en fyrr en varði
logaði allt í málaferlum við ættingja skálds-
ins sem óvíst er hvernig enda. Hannes
Hólmsteinn hefur þó verið trúr sjálfum sér
og lokið verkinu sem aðrir hefðu vafalítið
gefíst upp á miðað við viðtökur þeirra sem
næstir stóðu viðfangsefninu. Eftir standa
nú þrjú bindi með ítarlegum ffásögnum af
lífi skálds sem á bækur í öllum bókahillum
landsmanna sem eiga eftir að standa þar
um aldur og ævi sem vitnisburður um rit-
höfund sem náði eyrum þjóðar sinnar.
Hér birtast tvö brot úr bók Hannesar;
forsmekkur að því sem lesendur eiga von á
þegar þeir opna jólapakkana á aðfanga-
dagskvöld.
ÍUm.BUÐM
Sunnuhlíö 12.603 Akureyri s.462-14
Skipholt 21.105 Reykjavík s.552451
Fróbcerir söngvarar
Jónsi í Svörtum fötum
Allt sungið ó íslensku
elgina. - Dreifing: Sími 897 7922 aria@isiandia.is
mun órita geisladiskinn í Kringlunni og Smóralind um hi
Diskurinn inniheldur meða! annars lögin:
Sweet Child of Mine - Guns N'Roses
We Are Tlie Champions - Queen
Ifs My Ufe - Bon Jovi
More Than Words - Extreme
Allt er á tjá og tundri - Sálin hans Jóns míi
Fjöllin hafa vakað - Bubbi Morthens