Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.2005, Page 24
24 LAUGARDAGUR 3. DESEMBER 2005
Helgarblað DV
Björg Long og Ragnar Rögnvaldsson
eru falleg hjón. Þau eiga og reka bak-
aríið Bakarinn á hjólinu í Álfheim-
um. Helgarblaðið sótti þau heim þar
sem mikið var hlegið og jafnvel tárast
á köflum þegar góðverk voru rædd.
„Undirbúningur fyrir jólin hefst
um miðjan nóvember hjá okkur. Þá
erum við að leggja í enskar ávaxta-
kökur og þýsku stollenbrauðin,"
svarar Ragnar bakari með meiru og
bætir við að undirbúningurinn sé
langur. „Við leggjum áherslu á þetta
hefbundna öll jól hjá okkur. Enska
ávaxtakakan, þýsku stollenbrauðin
og um tíu tegundir af gómsætum
smákökum." Björg kinkar kolli og
bætir við að í ár hafi þau ákveðið að
bjóða upp á ósteikt laufabrauð.
„Laufabrauðið hefur fallið í góðan
jarðveg. Fólk kaupir það ósteikt og
steikir það sjálft heima." Aðspurður
hvort laufabrauðið sé virkilega eins
auðvelt viðfangs heima í eldhúsi og
hjá fagmanninum segir Ragnar:
„Það er ekkert mál að skera það út
með hníf eða laufabrauðshjóli. Þá
getur fólk skorið út sína eigin stafi.
Palmín-feitin er einfaldlega hituð þar
til hún byrjar að sjóða. Síðan er laufa-
brauðið steikt en það er eldsnöggt að
steikjast. Svo snýr maður því við,“
segir hann og fullvissar blaðamann
um að margar ömmur og mömmur
kunni á þetta. „En við leiðbeinum
vissulega fólki ef og þegar spurningar
varðandi baksturinn vakna."
Rækta hvort annað að
loknum vinnudegi
„Björg minnir mig á að ræða ekki
um bakaríið og mál sem tengjast því
þegar ég kem heim úr vinnunni," við-
urkenrúr Ragnar þegar við spyrjum
hann hvernig það sé að vinna saman
og búa saman. „Við tölum um rekst-
urinn niður frá en þegar við erum
heima einbeitum við okkur að böm-
unum og okkur," segir hann og Björg
brosir fallega. „Björg kann að rækta
ástina og minnir mig á það," segir
hann einlægur.
Jólin hefjast hjá
Hjálpræðishernum
„Mér finnst jólin vera að byrja
þegar ég loka bakaríinu á aðfanga-
dag," segir Ragnar en hann vinnur
alltaf á aðfangadag. „í lok dagsins fer
ég alltaf ár hvert með afgangana úr
bakaríinu niður í Hjálpræðisherinn.
Ég er kominn þangað um klukkan
hálftvö. Þar fæ ég rosalega góðar
móttökur. Fer þangað með
splunkúnýtt brauð með súpunni,"
segir Ragnar og bætir við að á Hern-
um sé kærleikurinn sannarlega að
verki.
„Á leiðinni heim er vinnan búin
og ég búinn að gera eitt lítið góð-
verk. Þá hlýnar mér um hjartaræt-
urnar og spila lagið „Driving home
for Christmas" með Chris Rea. Þá
em jólin komin. Þá bíður mín
tveggja daga frí með íjölskyldunni
minni." elly@dv.is
Okkar metnaður...
þinn styrkur
Rope Yoga
Líkamsrækt
magi - rass - læri
Body Combat/Body Step
Fitness box
Kennari: Svava S. Svavarsdóttir
Body Step skemmtilegur tími á pöllum f
takt við hressilega tónlist. Eykur þol og
styrkir rass og læri. Mjög líflegir og
skemmtilegir tímar.
Body Combat eru hressir og líflegir tíma
sem hafa slegið í gegn. Blanda úr helstu
sjálfsvarnar íþróttum einsog karate,
kickboxi og Tae Kwando í takt við orku-
mikla tónlist. Tekur virkilega á og stuðlar
að aukinni samhæfingu, auknu þreki,
auknum liðleika og styrk.
Tímar: Þriðjudags- og
fimmtudagsmorgnar kl. 6:05-7:05
Kennari: Ásta Björg Ásgeirsdóttir
Hraðir tímar. Sippað og boxað í takt við
hraða tecknó-tónlist.
Fitubrennsla og styrking.
Tímar: þriðjudaga og fimmtudaga kl.
18:30-19:30
Kennari: Birgir Birgisson
“Rope Yoga er kerfi vellíðunar og þjálfu-
nar sem tekur beint á gagnkvæmum
tengslum líkama og hugar. Hugsanir og
gjörðir falla saman við heimspeki og
iðkun til að skapa verundarástand sem
eflir lífsfyllingu og hamingju. Að sama
skapi þá sameinar Ropeyoga öndun,
hreyfingu og hugsun. Þessi sameining
öndunnar og hreyfingar hefur þrek og
heilsu upp í nýjar hæðir og iðkendur sjá
sjálfa sig í nýju Ijósi og öðlast þar af
leiðandi mátt til að skapa nýjan og gjö-
fulan veruleika.” Sbr. Guðni Guðnason
http://www.ropeyoga.is Þriðjudaga og
fimmtudaga kl. 20-21 hefst 29. nóv.
Kennari: Guðfinna Tryggvadóttir
Upphitun í 10-15 mín. þá annaðhvort á
gólfi eða á pöllum. Styrktarþjálfun í 40
mín. þar sem áherslan er lögð á kvið,
rass og læri. Notuð eru handlóð, teygjur
og eigin líkamsþungi í æfingunum.
Vöðvateygjur og slökun í 5-15 mín.
Tíminn hentar öllum aldurshópum. Þú
vinnur í takt við þinn líkamsstyrk og
þína getu. Kennarinn leggur sig fram við
að sinna því.
Ktá*»l0
Mánaðarkort,
frá
Verð 15.690
tá « f