Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.2005, Page 31
DV Helgarblað
LAUGARDAGUR 3. DESEMBER 2005 3 7
Getur ekki lagt á fólkið s'rtt að hún
afhjúpi sig aigjörlega „ Forsidrar
\ minir og barn hafa þjaðst nóg vegna
* „ min og eiga það inni hjá mér að ég
afbjupi mig ekki algjérlega. “
„Vá, þvílík sæla sem ég
upplifði. Mér fannst ég
geta allt. Feimnin
hvarf, ég gat talað við
fólk og ég gat rifið
kjaft. Ég snarbreyttist,
ur feimnu, niðurbældu
barni íað vera iöff
kona sem upplifði eng-
ar hindranir og enga
fjötra; ég gat komist
þangað sem eg vildi."
„VerðiÖ fyrirgreiðanrt
var 40 þúsund i byrj-
iin m viðskiptavinim-
*> komust i samband
við mig á þeimömur-
íegu börum sem fétk
afmínu sauðahúsi
sétti."
henni ekki, heldur rifjar Erla upp
þennan tfma, hnarreist og af öryggi.
Hún neitar að það hafi sérstök
áhrif á hana að tala um þessar
hörmungar en segir að það sé fyrst
og fremst vegna þess hve vel hún
hafi unnið í sjálfri sér og fyrir þá að-
stoð sem hún hafi fengið.
„Hörmungarnar, ég er lítið farin
að tala um þær því á þessum tíma
var þetta líf dans á rósum og ekkert
nema eftirsóknarvert í mínum
huga,“ segir hún og brosir út í ann-
að munnvikið.
Seldi sig fyrir 40 þúsund yfir
nóttina
En það er ekki lengi hægt að
sprauta sig daglega eða jafnvel oft á
dag og treysta á aðra. Erla átti eftir
að komast að því og útskýrir að það
sé aðeins í fyrstu. Að því komi að
þeir sem í upphafi voru tilbúnir að
gefa skot setji stólinn fyrir dyrnar.
Hún segist hafa verið ákveðin í að
hún ætlaði ekki að vera upp á aðra
komin. Hún skyldi vera sjálfstæð og
ráða sjálf ferðinni. „Það lá ekkert
fyrir annað en að selja sig. Það var
einfaldast og þannig gat ég fjár-
magnað neysluna," segir hún en
aðeins íjórtán, fimmtán ára var hún
farin að selja sig körlum á öllum
aldri, af öllum stéttum.
„Verðið fyrir greiðann var 40
þúsund í byrjun en viðskiptavinirn-
ir komust í samband við mig á þeim
ömurlegu börum sem fólk af mínu
sauðahúsi sótti," segir Erla og út-
skýrir að þeir sem hafi haft ráð á að
borga 40 þúsund fyrir greiðann hjá
henni hafi eðli málsins samkvæmt
verið menn sem höfðu efni á því.
Hún segir að þeir hafi haft sín ráð til
að komast í samband við hana.
„Stundum hringdu þeir á barinn
eða einhver bar fyrir mig skilaboð;
það er ekki vandamál þessara
manna að komast í samband við
konur sem eru tilbúnar að selja sig.
Þeir vita upp á hár hvernig þeir eiga
að fara að því," segir hún og þagnar
um stund.
Hún heldur síðan áfram og rifjár
upp að eftir því sem stúlkurnar
voru verr á sig komnar og sprautu-
förin fleiri, því eftirsóknarverðari
voru þær í augum þessara manna.
„Oft voru þetta menn sem vildu af-
brigðilegt kynlíf, eða ofbeldisfullt.
Þeir vissu sem var að eftir því sem
við sem seldum okkur vorum verr á
okkur komnar, því minni virðingu
bárum við fyrir sjálfum okkur.
Þannig konu er hægt að ganga í
skrokk á án þess að hún æmti eða
skræmti. Oft var ég illa á mig komin
þegar ég sneri til baka, öll blá og
marin eftir barsmíðar, svívirt og
niðurlægð," segir Erla rólega.
Hvorki í rómi hennar né svip er
hægt að ráða að hún sé að segja frá
þeim mestu hörmungum sem ein
kona getur lent í.
Svo kom pimpinn til
sögunnar
En Erla féll í þann pytt sem
vændiskonur í gegnum aldirnar
hafa fallið í; að eiga sig ekki sjálf.
Hún barðist við að halda sínu fé en
manninum sem hún var með
fannst það hið mesta óréttíæti.
Hann vildi bita af kökunni og hún
gaf eftir. Áður en hún gat snúið sér
við var hann farinn að gera hana út.
Selja hana þeim sem hann skuldaði
og greiða sína skuld með blíðu Erlu.
„Auðvitað gat ég ekki neitað; hvað
þá? Jú, hann barði mig bara til
hlýðni. Um tíma var ég með viðvar-
andi glóðarauga; stanslaust því þau
náðu ekki að hverfa á milli. Maður-
inn sem ég var með, sá sem ég hitti
þrettán ára á Hlemmi, var nokkrum
sinnum nálægt því að drepa mig
með barsmíðum Eitt sinn stakk
hann höfðinu á mér undir vatnsyf-
irborðið þegar ég var í baði og var
nærri búinn að drepa mig. í annað
sinn braut hann á mér fingur með
því að bretta hann aftur auk þess
sem hann lamdi mig þegar hann
langaði til. En ég var nógu góð til að
hann seldi mig,“ útskýrir hún ró-
lega.
Erla reyndi að hætta inn á milli.
Fór í eina meðferðina á eftir annarri
en það dugði skammt. Hún segir að
af tvennu illu hafi verið betra að
vera í vímu en að þurfa að horfa
framan í foreldra sína og lífið.
„Mamma og pabbi áttu oft eftir að
verða fyrir vonbrigðum áður en ég
varð edrú en í byrjun vildu þau trúa
að mér tækist þetta. Oft stóð ég í
pontu inni á Vogi eða einhverri
meðferðarstöðinni og sagði frá því
hvað mér þætti æðislegt að vera
edrú; hvað mér liði vel með að
standa þarna og tala. En það sem ég
sagði var tóm steypa; orð mín voru
sniðin að því sem aðrir vildu heyra.
Ég vildi bara að fólki líkaði vel mig
og talaði í samræmi við það. En
beint úr pontunni stökk ég kannski
beint út og var komin með spraut-
una í handlegginn innan klukku-
stundar," segir hún.
Allt sem gaf vímu
í sprautuna
Erla var farin að nota allar teg-
undir eiturlyfja, allt sem kom henni
í vímu fór í sprautuna og síðan
beint út í blóðið. Hún segir að
heróín hafi hún oft náð í og það sé
kjaftæði að efnið finnist sama og
ekkert hér á landi. Þvert á móti viti
hún til þess að innan ákveðins hóps
sé það mikið notað. Spíttið var hætt
að virka nema í miklum mæli og út-
gerðin orðin dýr. Það þýddi aðeins
að hún seldi líkama sinn enn oftar.
Erla segir að venjulegt fólk myndi
ekki trúa því sem hún lenti í. Hún
var föl fyrir alla; aðeins fyrir rétt
verð. „Ég gerði það sem þeir vildu
og það var oft sárt og fór illa með
líkama minn. Það eina sem dugði
var að sprauta sig vel áður, taka
með sér og fá sér á meðan inni á
klósetti og svo dældi ég í mig á eftir
til að geta gleymt."
Erla hélt sig innan um sína líka.
Oft vissi hún ekki hvar hún myndi
halla höfði að kvöldi eða vakná að
morgni. Ef hún komst ekki einhvers
staðar inn, var ekki um annað að
ræða en að halla sér í húsasundi,
undir runna í einhverjum garði eða
á milli öskutunna. Hún segist ekki
hafa leitað heim til foreldranna
nema í undantekningartilfellum
enda enginn aufúsugestur þar. „f
byrjun urðu þau fegin og bundu
vonir við að nú væri komið nóg. En
ég olli þeim alltaf vonbrigðum. Síð-
ustu árin þurfti ég oft að setja fót-
inn í dyragættina og ryðja mér leið
inn því þau skelltu bara á mig. Þau
voru búin að fá alveg upp í kok af
mér og gátu ekkert gert. Oft var ég
líka með kjaft og leiðindi þegar ég
lét sjá mig hjá þeim og í eitt sinn var
ég svo rugluð að þau töldu sig
heppin að sleppa lifandi frá mér. Ég
olli þeim mildum harmi og sorg en
þegar mamma sagði við mig
skömmu áður en ég varð edrú:
„Erla, þú ert dauð fyrir mér. Hingað
vil ég ekki fá þig oftar," fannst mér
eins gott að deyja. Það var hræði-
legt en átti kannski að einhverju
leyti þátt í að ég gat ekki meira og
það kviknaði smáneisti uppi í kolli
á mér,“ útskýrir hún.
Útmigin og útæld
Útigangsfólk borgarinnar heldur
sig að nokkru leyti saman og það
var jafnan hægt að ganga að þess-
um óhreinu börnum hennar Erlu á
börum sem þeir hafa fyrir sig að
mestu. Erla sótti Keisarann, Skipp-
erinn og Hafnarkrána á meðan þeir
staðir voru opnir. Síðustu árin hef-
ur Kaffi Austurstræti þjónað úti-
gangsfólki og þeim sem verst eru
farnir. Erla segir að þrátt fyrir þoku-
kennt ástand hafí hún oft fúndið
augu samborgaranna fylgja sér eftir
þegar hún kom út af þessum stöð-
um. Fyrirlitningin fór ekJd fram hjá
henni og oft fleygði fólk að henni og
hennar líkum athugasemdum sem
erfitt var að kyngja. „Þú ert við-
bjóðsleg" eða viðlíka athugasemdir
hljómuðu í eyrum þeirra. Erla segir
að útlitið á henni hafi ekki verið
gæfulegt. „Ég var stundum útmigin
og útæld, óhrein og illa til reika.
Líkaminn þolir ekki langvarandi
neyslu og fólk missir þvag og jafn-
vel hægðir. Maginn er alltaf að gefa
sig og það er stundum erfiðleikum
bundið að halda einverju niðri. Fyr-
ir kom að ég kastaði upp við hvern
sopa af víni en á endanum tókst
manni að halda einhverju smáræði
niðri og bæta heilsuna um leið.
Auðvitað getur fólk sem hvergi á
heima heldur ekki baðað sig þegar
það vill, fyrir utan það að þegar
maður er eins sjúkur og ég var þá
hefur maður ekld sinnu á því,“ seg-
ir hún rólega.
Erla segir að leiðin hafi aðeins
legið niður. Hún var löngu hætt að
finna til þeirra áhrifa sem lyftu
henni í hæstu hæðir í fyrsta sinn.
Skammturinn stækkaði alltaf og að
lokum var sama hve magnið var
mikið sem hún dældi í sig, það
breytti engu. „Þá fer maður að leita
í önnur efni en þetta endar alltaf á
sama veg; líkaminn hættir að
bregðast við og maður verður
ónæmur fyrir eitrinu. Líðanin verð-
ur hörmuleg og maður hamast í ör-
væntingu við að breyta líðan sinni.
Dómgreindin fjarar út og eftir því
sem meira er innbyrt því fjarri verð-
ur hún,“ segir Erla og nú fær hún
hroll við tilhugsunina. í fyrsta sinn
þetta kvöld.
Mektarmenn sem kaupa sér
konu á götunni
Hveitibrauðsdögum Erlu með
efnunum sem höfðu frelsað hana á
sínum tíma var löngu lokið og ástin
að fjara út. Frelsið sem hún hélt að
hún væri að höndla reyndist hræði-
legt helsi. Um svipað leyti hitti Erla
mann sem hún átti eftir að vera
með næstu fjögur árin. Hún var að-
eins sautján ára. Hann var rúmlega
fertugur, fráskilinn og nokkurra
barna faðir. Að mörgu leyti ágætis-
maður en samband þeirra var
hörmungin ein. Erla segir að hann
hafi misnotað sér ástandið sem var
á henni. Þessi maður reyndist
henni ekki eins og hún hafði vænst.
„Árin sem við vorum saman ýttu
mér enn dýpra; stundum út í ystu
myrkur. Hann kom ekki af götunni
heldur rak eigið fyrirtæki; þekktur
maður sem enn meira ber á nú en
þá. Viðtöl við hann skrýða síður
dagblaða og tímarita og ég býst við
að menn viti lítið um innræti hans.
En hann er sannarlega ekki einn á
báti þar. Nokkrir þeirra manna sem
ég átti viðskipti við og seldi blíðu
mína voru mektarmenn í þessu
samfélagi; það voru engir fátæk-
lingar sem keyptu sér konur á göt-
unni og reiddu fram 40 þúsund
krónur. Margir oft í mánuði og eru
líklega enn að. Og ég er ekki að ýkja
neitt með það,“ segir hún og lítur
snöggt upp.
Erla segir að í stuttu máli hafí
samskipti hennar við þennan mann
fyrst og síðast einkennst af líkam-
legu og andlegu ofbeldi. Ástin kom
þar lítið við sögu. Rétt sé þó að segja
í Framhaldá
l næstusíðu )