Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.2005, Page 32
32 LAUGARDAGUR 3. DESEMBER 2005
Helgarblað DV
að um tíma hafl hún trúað að um
einhvers konar ást væri að ræða.
Helst hafi það verið hann sem kom
henni í trú um að hún gæti ekki án
hans verið. „Hann skemmti sér við
að berja mig og hann seldi mig vin-
um sínum. Eitt sinn kom hann með
bróður sinn og bauð honum upp á
afnot af líkamanum. Hann hélt mér
fastri og læsti mig inni svo ég færi
ekki út. f næsta herbergi voru börn-
in hans sem komu og voru hjá hon-
um aðra hverja helgi. Þau voru sett
gæslumenn og áttu að hringja í
hann um leið ef ég gæti brotið mér
leið út. Oft heyrðust ópin í mér
langar leiðir og börnin hans í næsta
herbergi hágrétu á meðan,“ rifjar
Erla upp og lækkar aðeins róminn.
Vinurinn braut handlegginn
eins og spýtu
Hún þagnar augnablik og hallar
sér aftur á bak í sætinu alveg ótrú-
lega yfirveguð, lítur síðan upp og
heldur áfram og segir dálítið hastar-
lega frá því þegar hann fékk vin sinn
til að brjóta á henni handlegginn.
Svona rétt eins og spýtu sem hann
smellti á hnéð og þrýsti snöggt nið-
ur. Hún segist hafa heyrt þegar
beinið brotnaði. „Ég var svo dofin,
annars hefði ég líklega misst með-
vitund af sársauka. Ég var líka öllu
vön en ég gleymi aldrei hve sárt
þetta var," segir hún og bætir við að
líkamlega ofbeldið hafi verið
snöggtum skárra að þola. Það and-
lega hafi verið verra og skilji eftir sig
svo mörg ör á sálinni. „Ég held að
hann hafi fyrirlitið mig og níðst á
mér fyrir það hvað honum fannst ég
mikill aumingi og ræfill, að ég skyldi
láta hann fara svona með mig. Ég
var hratið í samfélaginu í hans aug-
um og hann kom fram við mig í
samræmi við það. Hann taldi sig
langt yfir mig hafinn og hæddist að
mér og níddi fýrir framan félagana.
Stór kall og mikill, fannst honum.
Eitt sinn hringdi hann í mig á að-
fangadag þunnur og ræfilslegur og
bað mig að koma og halda jól með
sér og krökkunum. Hvolpurinn ég
stökk af stað í von um að fá nú gott
klapp. Tók allt til og þreif eftir fyllirí,
setti steikina í ofninn og undirbjó
jólin. Þá bankaði önnur upp á, ein af
mörgum kvenna sem hann notaði.
Hún tók við og mig kvaddi hann
með þeim orðum að hann þyrfti
ekki á mér að halda lengur. Henti í
mig kápunni og benti á dyrnar,"
segir Erla og það má heyra nýjan
tón í röddinni.
Þessum jólum eyddi hún á þvæl-
ingi á milli annarra í svipaðri stöðu.
Það fór eitthvað lítið fýrir jólamatn-
um dagana þá á meðan borð svign-
uðu undan kræsingum í öðru hverju
húsi allt í kring.
Sárin á sálinni gróa aidrei
Hún reisir sig upp og færir sig
fremst á stólinn um leið og hún
hækkar róminn og útskýrir að nú
viti hún að ástæða þess að hún vildi
halda í þennan mann hafi ekki átt
neitt skylt við ást. Sjálfur drakk
hann í túrum en var edrú í fleiri
mánuði á milli. En hann átti alltaf
nóg af öllu, víni og spítti. Það sótti
hún í. „Ég var búin að vera á göt-
unni í mörg ár en þegar ég kynntist
honum þurfti ég ekki lengur að selja
mig; þurfti ekki heldur að hafa
áhyggjur af hvar ég næði í næsta
„Eitt sinn hringdi
hann í mig á aðfanga-
dag þunnur og ræfils-
legur og bað mig að
koma og halda jól
með sér og krökkun-
um. Hvolpurinn ég
stökk afstað í von um
að fá nú gott klapp.
Tók allt til og þreifeft-
ir fyllirí, setti steikina í
ofninn og undirbjó
jólin. Þá bankaði önn-
uruppá..."
skammt og lifði öruggara lífi. Niður-
læginguna, barsmíðar og kynlífs-
þrældóm þoldi ég fyrir það öryggi.
En ég veit það núna að þessi maður
markeraði sálina fyrir lffstíð. í raun
var ég mjög lengi að jafna mig eftir
þetta samband og það var örugg-
lega ekki til að flýta fyrir því að mér
tækist að verða edrú. Þetta situr enn
mjög í mér," segir Erla og strýkur
burt tárin úr augnkrókunum. „Úff,
ég er á leið að gráta," bætir hún við
og þagnar stundarkorn og horfir
niður.
Það er ekki annað hægt en að
dást að þeim styrk sem þessi stúlka
býryfir að geta riíjað upp það helvíti
á jörð sem hún var svo lengi í. Skýrt
og skilmerkilega, með ákveðinni
röddu hefur saga hennar runnið
áfram án þess að röddin hafi
nokkurn tíma brostið. Hún segist
hafa fengið mikla og góða hjálp þeg-
ar hún sneri til mannheima. Það
geri það að verkum að hún getur og
vill ræða þessi ár.
„Áður en sambandi okkar lauk
varð ég ófrísk. Honum var alveg
sama; það skipti hann engu máli. Ég
var tuttugu og eins árs og ekki
reiðubúin að eignast barn. Enda
hafði ég engar forsendur til að ala
það upp en ég vildi heldur ekki
drepa barnið með því að fara í fóst-
ureyðingu. Fékk að koma heim til
foreldra minna og var þar í fimm
mánuði. Þegar fór að líða á með-
gönguna tók fíknin að ásækja mig
en mér tókst að halda aftur af mér,
þar til barnið var fætt.
Aftur á götuna daginn eftir
fæðinguna
Erla segir að hennar eina hugsun
hafi verið að fæða barnið og hverfa
þá aftur til sinna heima; á götuna.
Hún hafði aldrei viljað þetta barn og
þegar það var fætt vildi hún ekki
einu sinni líta á það. „Þetta hljómar
eins og ég hafi verið samviskulaus
tæfa en sannleikurinn er sá að hug-
urinn var fastur; að hverfa í þoku
vímunnar aftur var það eina sem
komst að. Barnsfaðir minn vildi
ekkert af mér og þessu barni vita og
ég hefði skrifað undir hvað sem var
á þessari stundu til að þurfa ekki að
axla ábyrgð á barni okkar. Lán mitt
var hins vegar það að foreldrar mín-
ir gátu ekki hugsað sér að barninu
yrði ráðstafað. Þau tóku það og hafa
alið upp síðan eins og foreldrar
þess. Ég reif hins vegar úr mér allar
nálar og kom mér burtu um leið.
Var mætt á barinn á sama
sólarhring, þar sem mjólkin flaut úr
brjóstum mínum um leið og spraut-
an stakkst í handlegginn á mér,"
segir hún og það má greina sárs-
auka í rómnum.
Fyrir venjulega mæður sem líta á
fæðingu barns síns sem mestu
hamingjustund lífs síns hljóma
þessi orð undarlega í eyrum. En Erla
bendir á að það sé ekki hægt að lýsa
þeirri hugsunarvillu sem ásækir
dópista þegar hver fruma líkamans
kalli á vímuna. Þetta eigi ekkert
skylt við eigingirni; þetta sé rugl í
heilastarfseminni sem valdi því að
dómgreindin hverfi. Það skiptir ekk-
ert annað máli en dópið sem slái á
allan sársaukann, viðbjóðinn og fýr-
irlitninguna sem fíkillinn hefur á
sjálfum sér.
Allir búnir að gefast upp
nema einn
Næstu átta ár hélt Erla áfram að
misbjóða sjálfri sér og likama sín-
um. Hún fór nokkrum sinnum í
meðferð og mislengi hélt hún út.
Nokkrum árum síðar í Byrginu urðu
straumhvörf í lífi hennar. Þar kynnt-
ist hún manneskju sem hún fann að
hún gat treyst. I fyrsta sinn síðan
hún var barn fann hún til andlegs
skyldleika við einhvern annan sem
ekki fyrirleit hana og fylltist viðbjóði
á henni fyrir það líf sem hún hafði
lifað. „Þessi stúlka varð edrú, eign-
aðist mann og börn og lifði eðlilegu
lífi en ég hélt áfram. En það gerðist
samt eitthvað. Ég fór að finna til
löngunar til að verða edrú. Hún
sleppti aldrei af mér hendinni og
var alltaf tilbúin þegar ég vildi
reyna. Marg sinnis tók hún mig
heim til sín og lét mig baða mig og
hlúði að mér. Oft var það í óþökk
manns hennar sem hafði enga trú á
að það þýddi neitt fyrir hana að
reyna að hjálpa mér. Hann eins og
allir aðrir taldi að mér væri ekki við-
bjargandi.
En þessi þrautseigja hennar og
væntumþykja varð til þess að ég
varð að lokum edrú. Ég á henni og
manninum mínum sem ég kynntist
skömmu áður líf mitt að launa,"
segir Erla og rifjar upp daginn sem
hún sá hann fyrst.
Hún sat á Kaffi Austurstræti og
reyndi að drekka. Hún var búin að
fá skammtinn sinn í æð en ein-
hverra hluta vegna sló sprautan ekki
á kvalirnar og linaði ekki þjáningar
eins og hún gerði vanalega þótt hún
væri löngu hætt að finna til þeirrar
vímu sem hún var alltaf að leita eft-
ir. Hún gat ekki heldur drukkið og
hélt ekki neinu niðri. Einn sopi af
bjór en hálfri mínútu síðar enda-
sentist hann upp úr henni.
„Þá tók ég eftir manni sem ekki
var vanur að vera þarna. Hann sat
við borð úti í horni, drakk og fylgd-
ist með þjáningum mínum við að
koma einhverju ofan í mig. Forvitn-
in rak mig til að tala við hann og það
endaði með að hann tók mig með
sér heim. Ekki til að nota mig, held-
ur til að hjálpa mér. Hann leyfði mér
að þvo af mér skítinn og tók af mér
fötin og þvoði þau. Þetta var eitt-
hvað sem ég hafði aldrei kynnst
áður; þarna var einhver sem gerði
eitthvað fyrir mig án þess að krefjast
einhvers í staðinn. Hann ætlaðist
ekki einu sinni til að ég borgaði fyr-
ir greiðann með líkama mínum,"
segir hún og útskýrir að þessi dagur
fyrir þremur árum hafi verið upp-
hafið að því að rofaði til og ferðalag-
ið í samfélag manna hófst.
Þekkti ekki barnið sitt
Hún segir að þau skref hafi verið
örstutt og hún hafi staulast þetta á
brauðfótum með tilheyrandi bylt-
um. En þarna hófst það. Erla fór
styttstu leið, beint inn í AA samtökin
og með hjálp þeirra, vinkonu henn-
ar mannsins hennar en bæði höfðu
óbilandi trú á að henni tækist að
skila sér til baka, er hún edrú nú.
Þrjú ár eru liðin síðan en Erla segir
að í tvígang hafi hún nær sokkið í
fenið. „í annað skiptið í fjóra tíma
en í hitt voru þeir sex. Og ég var ekk-
ert að þefa af því. Byrjaði á að
sprauta mig og drekka og áður en ég
vissi af búin að taka inn öll þau lyf
sem að kjafti komu. Eins ótrúlega og
það hljómar er ég þakklát fýrir að
hafa reynt þetta því mér leið ömur-
lega allan tímann sem ég var í vírnu.
í huga mínum var hugsunin um
vímuna jákvæð og eftirsóknarverð.
Nú finn ég til óhugnaðar og mikil
örvænting þarf að hellast yfir mig til
að ég sjái það sem leið út úr vanlíð-
an eða þunglyndi. Þetta hefur ekki
verið létt en ég er þakklát fyrir hvern
dag sem ég fæ að vera allsgáð og lifa
eðlilegu lífi. Ég og maðurinn minn
rekum saman fyrirtæki og ég vinn
þess utan úti. Ég er að treysta bönd-
in við barnið mitt sem er orðið tíu
ára og er áfram hjá foreldrum mín-
um. Við eigum oft góðar stundir
saman en ég er að kynnast barninu
mínu því ég kynntist því fyrst fyrir
þremur árum," segir Erla.
Erfiðast segir hún að hafi verið
að sætta sig við fortíðina og takast á
við eigin fordóma og fyrirlitningu.
Með hjálp AA samtakanna,
sporanna tólf og annarra alkó-
hólista auk þeirrar sjálfsræktar sem
hún stundar finni hún hvað hún
eflist með hverjum deginum.
„Ég er ánægðari og hamingju-
samari en mér datt nokkru sinni f
hug að ég gæti orðið því ég var alveg
búin að gefa það upp á bátinn að ég
ætti eftir að komast út úr þessu og
verða eðlileg manneskja. Eg vakna
að morgni og finn hvergi til, fer í
mína vinnu og geng um göturnar án
þess að á mér hvíli augu vanþókn-
unar, fyrirlitningar og vorkunnar.
Ég er að venjast þessu og það er æð-
islegt," segir Erla og brosir þannig
að skær augun ljóma. Lífið kemur
henni stöðugt á óvart.
bergtjot@dv.is