Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.2005, Page 34
34 LAUGARDACUR 3. DESEMBER 2005
Helgarblað DV
Salatbarinn
I Hagkaupum
vinsæll.
Ardísi Ólöfu þekkja allir frá því hún tók þátt í Idol-Stjörnuleit í
hittiðfyrra. Nú er hún að fylgja eftir plötunni Heitar lummur jafn-
framt því að kenna í söngskóla Maríu Bjarkar. Hún er einnig að
ljúka áttunda stigi í Nýja tónlistarskólanum.
X Ardís er lærður snyrti-
fræðingur en ákvað að taka
sér frí frá snyrtifræðinni til
að geta einbeitt sér alveg að
tónlistinni.
Hún segist elda mjög
sjaldan því vinnutíminn sé
ekki „matartímavænn". „Ég
elda samt alltaf steiktan flsk
á miðvikudagskvöldum því
þá kemur Smári vinur okkar
frá Akranesi á kóræfingu og
þetta er fastur punkur hjá
okkur."
Ardís reynir að halda sig
við hollustuna þó að það
takist ekki alltaf. „Salatbar-
inn í Hagkaupum er afar
vinsæll," segir Ardís og hlær
og minnist á grill sem hún
fékk í jólagjöf, sem tekur alla
fitu úr matnum. „Það grill
held ég mikið upp á,“ segir
hún. „Svo förum við mikið í
mat til mömmu eða tengda-
mömmu og þar fáum við
ekta heimilismat, það er
nefnilega svo leiðinlegt að
elda bara fyrir tvo."
maria@dv.is
Grillið Sem er í r*
miklu uppáhaldi. I
t
Notalegt og hlý
legt Hjá Ardísi.
m
Ardis Farin að
hugsa til jóla.
Ardís leldhús-
inusinu.
u u
JUNI
Ásgeir Ólafsson er
einkaþjálfari í World Class
ásamt því að vera dag-
skrárgerðarmaður á Létt
96,7. Hann mætir í ræktina
og þjálfar skjólstæðinga
sína ásamt því að mæta í
útsendingu á Létt 96,7 alla
virka daga. Hann á fimm
ára patta sem heitir Óliver
Andri Ásgeirsson sem
hann tekur aðra hverja
helgi.
„Ég sæki Óliver alltaf á
fimmtudögum eftir leik-
skólann og hef hann fram
á þriðjudagsmorgun, en þá
fer hann aftur í skólann og
mamma hans sækir hann þangað,"
segir Ásgeir.
„Við erum voða duglegir að
dunda okkur eitthvað. Förum í
sund eða á bretti, en erum nýbyrj-
aðir að læra það. Okkur finnst mjög
gaman að fara norður til Akureyrar
til afa og ömmu, eða „momo og afa"
eins og Óliver kallar þau. Það ger-
um við sérstaklega á veturna en afi
á nefnilega snjósleða og það trekkir
heldur betur að.
Við heimsækjum líka vini og
kunningja en einna helst förum við
til Ásrúnar systur og Stjána. Þar eru
nefnilega ofurskvísurnar Ásdís Alís
og Soffía, frænkur hans Ólivers, og
honum finnst ekki leiðinlegt að líta
í Fellahverfið í heimsókn."
Ásgeir og Óliver eru
miklir útivistarmenn og fara
oft í göngutúra fyrir utan að
sinna innimálum eins og að
lesa og lita. Sá yngri er
einmitt mikill listamaður.
Svo hlusta þeir mikið á tón-
list saman.
„Það sem okkur finnst
það allra heilagasta og það
besta er að slaka á saman,
sitja og spjalla, og gera ekki
neitt. Þá líður okkur best.
Við erum bestu vinir í heimi
og erum að ná að sinna
áhugamálum hvors annars
þrátt fyrir 27 ára aldurs-
mun.
Ég er með ákveðnar reglur varð-
andi það helsta en við reynum að
njóta þess eins og mögulegt er að
vera saman án þess að stressa okk-
ur of mikið. Þetta er fullkomnasta
samband í heimi. Tveir aðilar sem
bera virðingu fyrir hvor öðrum og
elska hvorn annan út af lífinu."