Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.2005, Side 36
36 LAUGARDAGUR 3. DESEMBER 2005
HelgarblaO
„Ég er ástfangin og hamingju-
söm i mínu einkalífi og þykir gott að
vera hér í Mývatnssveit," segir Erna
Þórarinsdóttir söngkona, en hún
rekur Hótel Reynihlíð í Mývatns-
sveit ásamt Pétri Snæbjörnssyni
eiginmanni sínum.
„Hingað koma mjög margir yfir
sumarið. Hinar árstíðirnar eru hins-
vegar að mínu mati alls ekki síðri
hérna. Það er yndislegt að vera hér
yfir vertartímann og upplifa þetta
umhverfi í vetrarbúningi. Alveg
upplagt til að slappa af, hlaða batt-
eríin og fara út í snjóinn að leika
sér," segir Ema og bætir við að það
sé ómissandi að fara daglega í jarð-
böðin, náttúmgufuna og heitt og
gott lónið. „Mér líkar bara betur og
betur við sveitina. Við Pétur emm
saman í þessu fyrirtæki og saman
flestum stundum. Hótel Reynihlíð
hefur frá upphafi verið í eigu fjöl-
skyldu Péturs, mannsins míns, en
hann hefur rekið það í allmörg ár.
Við tókum við því saman ásamt ein-
um öðmm aðila í byrjun þessa árs."
Eurovision-fari með meiru
„í mínum huga em allar tónlist-
aruppákomur sem ég hef tekið þátt
í merkilegar, hvort sem það er hér-
lendis eða erlendis," svarar Erna:
„Kammerkór Langholtskirkju vann
gullverðlaun í Danmörku 2002. Það
fannst mér mjög merkileg og eftir-
minnileg stund og svo allar fjórar
ferðirnar í „júró". Þær vom alveg
frábærar," segir hún en eins og
menn muna söng Ema bakraddir
með Eyfa og Stebba, Ingibjörgu
Stefánsdóttur, Siggu Beinteins og
Björgvini Halldórssyni.
„Eva Ásrún vinkona mín reyndi
einhvem tímann að taka saman all-
ar þær plötur sem við höfum sung-
ið inn á sem bakraddir eða annað
og það em á annað hundrað titlar.
Mitt líf hefur hingað til meira og
minna snúist um söng og tónlist. Ég
byrjaði sem unglingur að syngja í
kómm á Akureyri og í menntaskóla
fór ég svo í skólahljómsveitina
. Hver. Eftir að ég flutti suður hélt ég
áfram í kómm og hljómsveitum,
söng bakraddir á plötur, söng í sýn-
ingum og vann sem söngstjóri við
teiknimyndir. Svo kenndi ég í sext-
án ár fötluðum bömum tónlist og
tónhæfingu í Safamýrarskóla og
söng í mörg ár við jarðarfarir með
Kammerkór Langholtskirkju. Svo
vom Snömrnar og líklega eitthvað
meira sem ég man ekki. Ég hef unn-
ið með mjög mörgum og það em
líka forréttindi að kynnast svo
mörgum listamönnum."
(5
áð í Ernu Þórarinsdóttur
Einlægni er stór hluti af
söngnum
„Allir sem vilja syngja þurfa að
læra á sína rödd og sinn líkama og
þá em undirstöðuatriði í söng mik-
ilvægust eins og öndun og kynnast
sínu raddsviði - hvar það liggur.
Það geta ekki allir sungið í sömu
tónhæð í karokí. Raddirnar em svo
misjafnar og ef raddsviðið passar
ekki við lagið er meiri hætta á að
sumir syngi út fyrir laglínuna eða
sem kallað er að vera falskur. Það er
líka eins mikilvægt að syngja af ein-
lægni til að rödd og lag skili sér eðli-
lega. Svo er bara að syngja oft þvf
söngur er nærandi fyrir sál og lík-
ama."
Spá Helgarblaðsins er lesin fýrir
Ernu og henni er skemmt yfir lestr-
inum. Áður en við kveðjum rifjar
Ema aðeins upp fortíðina. „Þetta
var allt jafn skemmtilegt, allar ferð-
irnar með kór Langholtskirju og
Kammerkór Langholtskirku em
mér minnistæðar. Vinnan með
Gunna Þórðar á Broadway var líka
afskaplega skemmtileg og líka allar
Júróvisionferðirnar. Mér hefur held
ég alltaf fundist gaman að því sem
ég hef verið að fást við í tónlistinni.
Þar hef ég verið heppin."
elly@dv.is
Ljón-fædd 30. júh'1959
Það er áhugavert að sjá að þessi fallega, duglega og hæfileikaríka kona er aldrei hugul-
samari né eins örvandi og þegar hún er ástfangin (á vel við hana um þessar mundir). Hún
geisiar aflífskrafti og höfðar til margra þó hún geri sér jafnvel ekki grein fyrir því. Erna til-
heyrir stjörnu ástarinnar, Ijóninu, sem sýnir hana sterka, töfrandi í fasi og færa um að iðka þá
list að elska skilyrðislaust. Þessi Ijónynja kann vel að meta það sem hún upplifir
og i desember finnur hún glfurlegri sköpunarþörf sinni uppbyggilega útrásar-
leið (gæti tengst Mývatni). Kynþokki hennar er freistandi og nánast ómótstæði-
legur. Hún er búin þessari eftirsóknarverðu ytri fegurð þó hún gefi í skyn að hún
sé„venjuleg". Iframtíðinniþenur hún vængi sína afmeira sjálfstæði en áður og
öðlast allt það sem hún þráir og það afeigin rammleik.
SAMANBURÐUR
&tíöf*Juem£f*Áýcwsia/
lógstreita
allsráöandi
Gunnfríöur (krabbi) & Steini (vog)
Þegar stjömur þeirra em bornar saman er Steini ekki eigingjarn á
nokkurn máta en á það til að horfa á sjálfan sig sem miðju veraldar í
sambandinu á sama tíma og Gunnfríður er undanlátssöm en þver-
stæðukennd. Við hlið Gunnfríðar birtist Steini fullur togstreitu og
lendir jafnvel oftar en ekki í þrætum við hana þegar hugsjónir hans og
draumar eiga í hlut.
Gunnfríður Björnsdóttir (23) Steingrímur Randver Eyjólfsson (27)
Fædd: 15.07.82 Fæddur: 29.09.78
Krabbi (22. júní - 22. júlí) Vo9 <23- seP‘ ” 23- okt)
- gott innsæi
- fastheldin
- tilfinningaheit
- draumlynd
- hátt sjálfsmat
- siðfágaður
- aðlaðandi
- tilfinninganæmur
- hikandi, á tveimur áttum
- samvinnuþýður
Hjöntun slá í takt
Steingrímur Randver Eyjólfsson (27) Jenný Ósk Jensdóttir (21)
Fæddur: 29.09.78 Fædd: 02.06.84
Vog (23. sept - 23. okt) Tviburi (21. maí - 21. júni)
Jenný (tvíburi) og Steini (vog)
Ef Steini og Jenný ákveða að ganga hönd í hönd inn í framtíðina birt-
ist Steini einstaklega tilfinninganæmur og Jenný líkar það vel. Rökvísi á
greinilega upp á pallborðið í sambandinu þegar loftmerki þeirra em
annars vegar þar sem h'flegar samræður einkenna samskipti þeirra. Þau
svara þörfum hvors annars á sama tíma og hjörtu þeirra skilja hvort
annað og slá sama takt.
siðfágaður
aðlaðandi
tilfinninganæmur
hikandi, á tveimur áttum
samvinnuþýður
- skemmtileg
- fjölhæf
- víðsýn
- skuldbindur sig ekki glatt
- trygglynd