Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.2005, Side 37
D'V Helgarblað
LAUGARDAGUR 3. DESEMBER 2005 37
Edda Garðarsdóttir og Ólína Guðbjörg Viðarsdóttir eru leikmenn meistara-
flokks Breiðabliks og landsliðsins. Þær voru báðar valdar í lið ársins á loka-
hófi KSÍ í október. Þær stöllur ræddu opinskáar og óhræddar um fótboltann,
ástina sem blómstrar milli þeirra og hvað það er sem við hin þurfum að
huga að ef við viljum í raun og veru ná árangri.
„Andlegur styrkur er líka mjög
mikilvægur, halda alltaf áfram að
berjast - þjálfa hugann í að geta tek-
ið á móti hveiju sem er, innan vallar
sem utan. Allt getur gerst, hvort sem
maður missi sæti í byrjunarliði, hóp,
eða sæti í landsliði. Mikilvægt er að
hætta aldrei. Erfiðleikar gera mann
sterkari og reyndari, og ef maður
leggur sig allan fram og er þolinmóð-
ur þá fær maður sitt tækifæri."
„Mér finnst frábært hversu opið
flest fólk er hér á íslandi. Ég hef
aldrei fundið fyrir neinum fordóm-
um, né verið mismunað út af því að
ég er samkynhneigð. Það verður líka
frábært ef þetta nýja frumvarp verð-
ur samþykkt. Ég tel að við höfum
verið ótrúlega heppnar. Það er ekki
sjálfgefið að samkynhneigðum sé
tekið svona vel. Við bjuggum báðar í
Bandaríkjunum í fjögur ár. Það var
oft mjög erfitt en ég er mjög þakklát
fyrir að geta verið ég sjálf án þess að
einhver dæmi mig. Auðvitað er til
fólk sem þarf alltaf að sjá neikvæðu
hliðamar á öllu, en maður blæs á
svoleiðis framkomu með fræðslu og
kærleika," segir Ólína og bætir við
einlæg og óhrædd að sama skapi við
umræðuna: „Við eigum góða vini
sem taka okkur einsog við emm. Við
emm báðar rosalega lánsamar að
eiga frábærar fjölskyldur á bak við
okkur, mömmur okkar em sterkar og
standa með okkur í gegnum súrt og
sætt.“
Framtíðin sýnir stöðuhækkun hjá
Eddu og Ólínu í tarotspánni sem
Helgarblaðið lagði fýrir þær stöllur í
vikunni sem leið og það liggur bein-
ast við að spyrja þær hvort takmarki
þeirra sé nú náð í fótboltanum.
TAROTLESNING
„Nei, ekki ennþá. Ólína stefnir á
það að stimpla sig vel inn í landslið-
ið og spila vel á þeim vígstöðvum.
Svo náttúmlega viljum við báðar
komast á stórmót, draumurinn er
HM, með landsliðinu. Okkkur
dreymir um að fara út sem atvinnu-
menn einhverrn tímann, kannski í
eitt ár eða svo. Það er einstaklings-
bundið að hverju fólk stefnir, ég held
að stelpur verði að finna innra með
sér hversu langt þær ætla sér, og ár-
angur er mjög persónubundinn,"
svarar ÓKna aðspurð hvemig toppn-
um sé náð hjá íslenskum afrekskon-
um í fótboltanum. „í okkar augum er
toppurinn á íslandi tvöfaldur sigur.
Það er að vinna bæði ís-
landsmeistaratitilinn og bikarinn á
sama árinu. Það besta af öllu er að
vera valin í landliðið og mesti heið-
urinn er að fá tækifæri á að standa
sig sem fulltrúi íslenskra fótbolta-
kvenna. Hollt að eiga stóra drauma
en það geta ekki allir orðið meistar-
ar."
Marktæk ráð
„Hollt og fjölbreytt mataræði,
hugsa vel um heilsuna, æfa rétt og
vel, setja sér markmið til að standa
við þau, og rækta andlegu hliðina til
jafns við þá líkamlegu. Mataræði er
stór hluti af heifbrigðu líferni, maður
verður að passa upp á það númer
eitt. Ekki vera í rusli (ruslfæði) því að
maður er það sem maður borðar.
Sofa vel, og halda sig frá öllum
óþverra. Latibær er fínt fordæmi þar.
Svo er auðvitað mikilvægt að æfa vel,
eða eins og einhver sagði „æfingin
skapar ekki meistarann,
aukaæfingin skapar meistarann".
Það er lrka mikilvægt að taka á því á
æfingum og leggja sig alla í hverja
æfingu, því það skilar sér að lokum.
Líkamlegur styrkur er mikilvægur,
það er rosalega mikilvægt að styrkja
sig, lyfta rétt og huga að öllum líkam-
anum, til að fyrirbyggja meiðsli og til
að hoppa hærra, hlaupa hraðar,
skjóta fastar, skora meira," segir
Ólína og er flugskörp að mati spyrils
og gefandi þegar spurð um fótbolt-
ann og mataræðið.
„Andlegur styrkur er líka mjög
mikilvægur, halda alltaf áfram að
berjast - þjálfa hugann í að geta tek-
ið á móti hverju sem er, innan vallar
sem utan. Allt getur gerst, hvort sem
maður missi sæti í byrjunarliði, hóp,
eða sæti í landsliði. Mikilvægt er að
hætta aldrei. Erfiðleikar gera mann
sterkari og reyndari, og ef maður
leggur sig allan fram og er þolinmóð-
ur þá fær maður sitt tækifæri."
Traust í stelpnahóp
Svakalegar breytingar birtast
hérna þegar tarotspÚin eru lögð fyrir
þær stöllur. Hvað er í gangi hjá ykk-
ur?
„Við sjálfar vorum ekki að skipta
um lið en nokkrar breytingar hafa
orðið hjá Breiðablik. Það er mikil-
vægt að allir nái að mynda tengsl
inná vellinum og ég held að við get-
um gert það með þessum hóp.
Traust í stelpnalióp er lykilatriði, og
ég held því fram að Breiðablik sé það
sterk liðsheild að það sé ekkert sem
geti skákað andanum hjá okkur, ekki
einu sinni DV. Við höfum 100% trú á
því sem við erum að gera, og viljum
stuðning frá okkar eigin félagi, og
hinum félögunum þegar við förum í
Evrópukepnina næsta sumar. Sterkt
lið byggist upp á liði, ekki einstak-
lingum. Liðið okkar byggist á æfinga-
hópnum, fólkinu sem starfar í kring-
um hópinn, andinn innan félagsins,
stuðningsmennirnir, og trú á því að
við getum bætt okkur og náð langt."
Samkynhneigðar og ánægðar
„Mér finnst frábært hversu opið
flest fólk er hér á íslandi. Ég hef
aldrei fundið fyrir neinum fordóm-
um, né verið mismunað út af því að
ég er samkynhneigð. Það verður líka
frábært ef þetta nýja frumvarp verð-
ur samþykkt. Ég tel að við höfum
verið ótrúlega heppnar. Það er ekki
sjálfgefið að samkynhneigðum sé
tekið svona vel. Við bjuggum báðar í
Bandaríkjunum í fjögur ár. Það var
oft mjög erfitt en ég er mjög þakklát
fyrir að geta verið ég sjálf án þess að
einhver dæmi mig. Auðvitað er til
fólk sem þarf alltaf að sjá neikvæðu
hliðarnar á öllu, en maður blæs á
svoleiðis framkomu með fræðslu og
kærleika," segir Ólína og bætir við
einlæg og óhrædd að sama skapi við
umræðuna: „Við eigum góða vini
sem taka okkur einsog við erum. Við
erum báðar rosalega lánsamar að
eiga frábærar fjölskyldur á bak við
okkur, mömmur okkar eru sterkar og
standa með okkur í gegnum súrt og
sætt."
Hvað er framundan?
„Okkur langar báðar að spila er-
lendis einn daginn, með sterku liði
og stimpla okkur þannig inn annars
staðar en á litlu eyjunni okkar. Þegar
upp er staðið er fjölskyldan það eina
sem skiptir máli. Við eigum yndisleg-
ar fjölskyldur sem hafa reynst okkur
ótrúlega vel í alla staði. Annars reyn-
um við að lifa lífinu til fulls og njóta
þess að vera til. Þetta er rosaleg
spurning um tilgang lífsins. Við vilj-
um njóta þess að vera til, elska, lifa í
kærleikanum, gefa og þiggja, vera
með fjölskyldu og ástvinum, og sjá
ekki eftir neinu."
elly@dv.is
S
Helgarblaðið spáir I af-
rekskonumar Eddu og
Ótinu. Framtlð þeirra sýn-
ir stöðuhækkun og batn-
andi aðstæður hjá þeim.
Einnig er augljóst sam-
hengi milli iiðan kvenn-
anna sem tengist sjálfs-
trausti þeirra á persónu-
lega sviðinu og ekki siður
I sportinu. Þeim er báðum
ráðlagt að efast hvorki
um framhaidið né frama
sinn sem er um það bil að
breytast til batnaðar.
2 stafir
Náið samband birtist. A
þessu stigi málsins er
óumflýjanlega komið að
þeim tímapunkti varð:
andi þær að ákveða hvert
skal haldið. Þið hafið
augljósiega gengið f
gegnum fyrsta stig ykk-
ar sambands og þurfið
að huga að næsta
skrefi. Stafirnir tveir á
spili þessu tákna stöðu
ykkar og markmiðum
sem tengjast óumflýj-
anlega ákvörðun þinni varð-
andi framtíð ykkar. Skilgreinið betur
drauma þína, áætlanir og tilgang f Iff-
inu áður en þið ákveðið hvað skal
verða.
XIII - Breytingar
Að baki hugsjóna þess-
ara kvenna er vægast
sagt mikill kraftur.
Þessi kafli er á enda
og nýr um það bil að
hefjast. Tilefni ertil
fagnaðar þegar
breytingarnar eiga
sér stað. Umtalsverð-
ar breytingar munu
fyrr en síðar eiga sér
stað. Hér eru á ferð-
inni breytingar til
batnaðar. Brúðkaup, nýtt starf
eða fiutningar gætu verið svarið
en þið ættuð að muna að breyt-
ingar geta verið erfiðar til að
byrja með og aðlögunarhæfni
ykkar gæti komið sér vel.
VII - Stríðsvagninn
Þið (Edda og Ólína)
hafið nú þegar
ákveðið ýkkur hvert
þið ætlið ykkurog
hvernig þið kjósið
að nýta vitsmuni
ykkar og tíma. Þið
virðist vita hvert
þið ætlið ykkur f
lífinu og hvernig
markmiðum skal
náð og ekki sfst
hvar tækifærin
liggja. Metnað-
ur, drifkraftur
sem sjaldan
sést, og sá eiginleiki og vilji til að
ganga ófarinn veg býr greinilega innra
með ykkur báðum. Þið eruð færar um
að takast á við framtfðina ef þið agið
sjálfið með jákvæðu hugarfari og jafn-
vægi. Kjarkur einkennir ykkur.
*" "" ‘»>111,.,
Ari Trausti Guðmundsson
AriTrausti Guðmunds-
‘ son er 57áraídag.
„Maðurinn veitir í ein-
lægni og býst við að
aðrir geri slíkt hið
sama og sú er raunin
þegar horft er til
framtíðar
mannsins.
MnsbeÚm (20. jan.-18.febr.)
Ef þú ert um það bil að taka
einhverri áskorun ættir þú að íhuga vel
stöðu þína og taka þér góðan tíma til
umhugsunar áður en þú stígur næsta
skref og það á vel við helgina framundan.
Fiskarnir (19. fetr.-20./nan)
Hér er stjörnu fiska ráðlagt að
sætta sig við aðra eins og þeir birtast
hverju sinni. Lærðu að hugsa fyrst og
fremst um eigið sjálf. Hugaðu fyrst og
fremst að eigin málum áður en þú
skiptir þér að þeim sem þú umgengst.
Næstu dagar færa þér stundir sem
breyta áherslum þfnum án efa.
Hrúturinn (2lwars-l9.april)
Aðstæður ýta undir stress hjá
þér af einhverjum ástæðum yfir helg-
ina. Þú skalt reyna eins og þú mögulega
getur að halda ró þinni og standa í báð-
ar fætur varðandi skoðanir þfnar og ekki
síður tilfinningar þinar.
NaUtið (20. april-20. mai)
Leyfðu þér að hvilast oftar á
áhyggjum sem virðast eiga huga þinn
hérna. Þú ert mjög næm/ur og ættir að
huga betur að jafnvægi milli sálar, lik-
ama og huga. Hér birtist fyrirboði um
fullkomið jafnvægi ítilverunni hjá
stjörnu nautsins sem geislaraf ánægju
og innra jafnvægi.
Tvíburamir(2/. maí-21.júnl)
Erfiðar uppákomur kunna að
birtast þér um þessar mundir en þar er
án efa dulbúið tækifæri til að skapa nýj-
ar hugmyndir og efla gleði þína og ná-
ungans. Búðu þig undir stórt stökk í átt
að velgengni kæri tvíburi.
faább'm (22. júnl-22.júlí)______
; Vertu ákveðin/n gagnvart um-
hverfi þinu ef þú kýst að njóta farsældar
í lífinu. Með ómældri þolinmæði ert þú
fær um að styrkja fjárhag þinn til muna
og þú ert fær um að hjálpa náunganum
ef þú einsetur þér að huga að þörfum
annarra.
LjÓnið (2ljúli-22. ógiht)
Þú ert uppfull/ur af hæfileik-
um og mannúð ef marka má Ijónið.
Meyjan (21. ágúst-22. sept.)
Tilfinningar eru staðreyndir og
er fólk sem borið er í heiminn undir
stjörnu meyju minnt á þá staðreynd
þessa dagana (yfir helgina).
Vogin (23.sept.-23.okt.)
Leitaðu að þínum sönnu hvöt-
um. Hér er einnig komið inná markmið
þín og jafnvel áhugamál sem bæta
samskipti þ(n og gagnkvæma virðingu í
ástar- eða vinarsambandi sem þú ert
staddur/stödd (. Mundu að þú hefur
fullan rétta á tilfinningum þínum.
Sporðdrekinn a4.oia.-21.nivj
Hér birtist upphafi þegar
stjarna sporðdrekans er skoðuð. Ljúktu
við verk sem þú hefur jafnvel látiö sitja
á hakanum allt of lengi.
Bogmaðurinn(22./j(íi'.-2/.tej
Opnaðu huga þinn fyrir sjón-
armiðum annarra ef þú tileyrir stjörnu
bogmannsins. Og það enn betur en þú
hefur tileinkað þér ef þú kýst að afkasta
meiru í framtlðinni.
Steingeitin (22.des.-19.jan.)
Sættu þig við núverandi að-
stæður og taktu öllu sem geristmeð
réttu viðhorfi án þess að láta skap þitt
eyðileggja fyrir þér á nokkurn hátt en
þar með breytir þú ábyrgðartilfinningu
þinni (einstakan hæfileika til að taka
öllu með jafnaðargeði.
SPÁMAÐUR.IS