Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.2005, Qupperneq 40
Hrinti
vininum
fyrirlest
Unglingur í New York hefur
verið ákærður fyrir að hrinda vini
sínum fyrir neðanjarðarlest.
Richie Molina, 19 ára, var að rífast
við Edison Guzman, 22 ára, á
brautarpallinum þegar hann réðst
á hann. Edison féll í gólfið og tók
Richie sig þá til og rúllaði honum
í veg fyrir lestina. Drengirnir
höfðu verið miklir vinir og var
haft eftir föður Edison að hann
vonaði innilega að mistök hefðu
átt sér stað og að Richie bæri ekki
ábyrgð á dauða sonar síns. Richie
gæti hlotið allt að 25 ára fangels-
isdóm fyrir ódæðið.
Drap
konuna
með
naglabyssu
Richard Williams, frá Nevada,
hefur verið
ákærður fyrir að
koma eiginkonu
sinni, Hetty Willi-
ams, fyrir kattar-
nef með naglabyssu. Brestir voru
í hjónabandinu og Hetty var
byrjuð að hitta annan mann sem
varð til þess að Richard réðst á
hana með verkfærið að vopni.
Hann beindi síðan naglabyss-
unní að sjáffum sér og hlaut mik-
il sár sem ollu því að hann dvald-
ist í flmm vikur á spítala. Lög-
reglan vaktaði hann á meðan á
vistinni stóð og þar sem hann
hefur nú náð fúUri heilsu hefur
hann verið ákærður og bíður
réttarhalda.
Buddy Musso, 59 ára, var í sjöunda himni, nýbúinn að
finna ástina eftir næstum tuttugu einmanaleg ár. Hann
hafði hitt Sue Basso á kirkjubasar nálægt heimili sínu í New
Jersey. Sue var frá Houston í Texas og eftir nokkurra mán-
aða fjarvistarsamband ákvað Buddy að flytjast til hennar.
Vinir hans voru ánægðir fyrir hans hönd en um leið nokk-
uð áhyggjufullir þar sem Buddy var þroskaheftur og auðvelt
fyrir óprúttna að notfæra sér gott eðli hans. Buddy hafði
verið ekkill í langan tíma og vinir hans og nágrannar
pössuðu vel upp á hann. Hann kvaddi vini sína með bros á
vör og sagði þeim að búast fljótlega við boði í brúðkaup.
Buddy pyntaður og myrtur
Tíu vikum og tveimur dögum
síðar fannst lík hans í Galeno
Park í Houston. Hann hafði látist
af höfuðhöggum en líkami hans
var þakinn sárum, bæði gömlum
og nýjum. Höfuðkúpa hans var
sprungin sem gerði það að verk-
um að hann var með tvö kolsvört
glóðaraugu. Tíu af rifbeinum
hans voru brotin, tveir hryggjar-
liðir sem og bein í hálsi hans og
nefi. Marblettir þöktu allan lík-
ama hans, meira segja hendur
Sakamál
hans, fætur og kynfæri. Á baki
hans voru þrjátfu sár, mörg eftir
sígarettur. Ljóst var að Buddy
hafði verið pyntaður og síðan
drepinn.
Sonur Sue játar morðið
Sue tilkynnti um hvarf Buddys
nokkrum tímum eftir að lík hans
fannst. Hún og sonur hennar
James O’Malley voru fengin til að
bera kennsl á líkið og vöktu við-
brögð þeirra athygli lögreglu-
manna sem voru viðstaddir. Sue
tók yfirdrifið móðursýkiskast en
James var sallarólegur eins og
ekkert við atvikið kæmi honum á
K>Ha _ CUHTE
aaassíssB
QJJUEHA PARK
pooec oowmftEMr
Sue Basso Fékk fólk i lið með sér til að
murka llfiö úr Buddy.
óvart. Þegar hann var tekinn til
hliðar og spurður hvort hann
vissi hvað hefði gerst sagði hann
einfaldlega „Já, við drápum
hann“. Með „við" meinti hann
sig, móður sína og fjóra aðila sem
búsettir voru á heimili þeirra.
Þau voru vinkona Sue að nafni
Bernice Ahrens Miller, sonur
hennar og dóttir, Craig og Hope
Ahrens og unnusti Hope, Terence
Singleton. Öll voru þau handtek-
in og kærð fyrir morð.
Buddy Musso Saklaus sál sem þurfti að
þola miklar misþyrmingar.
Líftryggingin kemur í Ijós
Buddy hafði orðið það á að
brjóta Mikka mús styttu sem var í
uppáhaldi hjá Hope og var það
ástæðan fyrir hinstu barsmíðum
hans en við leit á heimilinu kom í
ljós líftrygging Buddys upp á
15.000 dollara. Tryggingin mundi
hækka upp í 60.000 dollara ef um
ofbeldisfullan dauðdaga væri að
ræða. Einnig fannst erfðaskrá
sem Buddy hafði skrifað undir
þar sem hann ánafnaði Sue allt
sem hann átti og var hún dagsett
nokkrum árum fyrr, en í heimilis-
tölvunni kom í ljós að hún hafði
verið skrifuð tólf dögum fyrir
morðið. Aðilarnir sem tekið
höfðu þátt í morðinu bentu allir á
Sue sem forsprakka ódæðisins.
Sue misnotaði börn sín
Dóttir Sue Christine Hardy
greindi frá erfiðu lífi á heimili
móður sinnar. Hún og bróðir
hennar þurftu að þola ofbeldi og
bæði kynferðislega og andlega
misnotkun. Bróðir hennar og
mamma áttu í kynferðislegu
sambandi og heimilið var alltaf
Gatesville fangelsi ÞarsiturSue og bíð-
ur dauða slns.
fullt af fólki sem þau vissu lítil
deili á. Ákveðið var að rétta yfir
sakborningunum sex í sitthvoru
lagi. Við sín réttarhöld sagði
James að hann hefði hræðst
móður sína og því gert eins og
hún sagði.
Dæmd til dauða
Sakborningamir hlutu allt frá
sextíu árum og upp í lífstíðar-
James O'Malley Hræddist móður slna
eftir að hafa þolað ofbeldi og misnotkun.
fangelsi - nema Hope sem að-
stoðaði lögregluna og hlaut að-
eins tuttugu ár og Sue Basso sem
dæmd var til dauða. Hún situr nú
á dauðadeild í fangelsi í Gates-
ville og má búast við að hún verði
líflátin árið 2010. Dóttir hennar
telur niður dagana og býst við að
fagna með flösku af kampavíni.
Buddy Musso yfirgaf heimabæ sinn þegar hann hélt hann hefði fundið ástina. Hann
bjóst við að hefja nýtt líf á heimili ástkonu sinnar, Sue Basso. en í staðinn lenti
hann í hreinasta helvíti. Sue ásamt, syni sínum og vinafólki, misþyrmdi og pyntaði
Buddy vikum saman uns hann dó af sárum sínum.
40 LAUGARDAGUR 3. DESEMBER 2005
Helgarblað
Pyntuöu og
myrtu þroska-
heftan mann
Eitraði
matínn
með klór
Drepin af sex óðum hundum
56 ára gömul kona hefur verið
kærð fyrir að reyna að eitra fýrir
fullorðinni dóttur sinni og fjöl-
skyldu hennar. Victoria Lynn
O’Donnell var að elda kvöldmat
fyrir sambýlismann sinn og böm-
in þeirra tvö, sex og tveggja ára,
og hafði skroppið frá eitt augna-
blik. Þegar hún kom aftur inn í
eldhús barst klórlykt fýrir vit
hennar og smakkaði hún þá mat-
inn sem af var mikið klórbragð.
Hún vatt sér að móður sinni,
Nancy O’Donneil, sem viður-
kenndi að hafa viljað gera hana
veika og sagði hana ekki eiga
bömin sín skilin. Nancy situr í
fangelsi og bíður geðrannsóknar.
í Thorndale í Texas fyrir nokkru
urðu sex hundar konu að bana.
Lillian Loraine Stiles var við vinnu
í garðinum sínum þegar ná-
grannahundarnir réðust á hana og
lést hún á staðnum. Vegfarandi
sem átti leið framhjá reyndi að
koma henni til hjálpar en var sjálf-
ur bitinn af hundunum. Eiginmað-
ur hennar skaut einn hundinn en
náði þó ekki að bjarga konu sinni.
Hinir fimm hundarnir voru svæfð-
ir í kjölfar árásarinnar. Jose Hern-
andez eigandi hundanna sagðist
aldrei hafa upplifað það að hund-
arnir hegðuðu sér svona og að
barnabörnin hans léku oft við þá
án atvika. Hundarnir voru skoðað-
ir og fundust engin merki þess að
þeir væru haldnir hundaæði,
hefðu verið notaðir til slagsmála
eða að illa hefði verið farið með þá
Kona í Texas lést þegar sex óöir hundar réöust á hana. Eiginmaöur hennar og gangandi
vegfarandi reyndu aö koma henni til bjargar en höföu ekki roö viö hundunum.
á nokkurn hátt.
Hernandez
verður ekki
ákærður fyrir
manndráp en
hann gæti þurft að
svara til minni
saka. Lögreglan
segir hann hafa veitt
fulla samvinnu við
rannsókn málsins.
i