Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.2005, Page 43
DV Helgarblað
LAUGARDAGUR 3. DESEMBER 2005 43
Nei, sagði ég. Ég skildi ekki síð-
asta þátt Spaugstofumanna af því ég
vissi ekkert um þessa stöð. Ég veit
eiginlega meira um fréttastöð
Spaugstofunnar. Það trúa þessu ör-
ugglega ekki margir. En ef ég ætti að
fylgjast nákvæmlega með öllu sem
er að gerast myndi ég ekki njóta þess
að hafa hætt."
Ertu eins pólitískur ogþú varst?
„Nei, nei, það er engin pólitík
núna, með stórum línum. Allt meira
og minna sama tóbakið. Það væri
hægt að sameina alla flokkana í ein-
um flokki. NATÓ er jafnvel orðið
eins konar lögregla, bandalag allra
flokka gegn hryðjuverkamönnum.
Og svo er að mestu sátt milli borg-
arastéttarinnar og þeirra sem voru í
kröfugöngunum í gamla daga.
Hitt er annað mál að það þarf að
hjálpa mörgu fólki, já, það er allt
annar handleggur. í þessum póker
hafa fáir tekið mikið til sín úr pottin-
um. Það er alltaf verið að rífast um
hluti sem þarf ekki að rífast um. Og
það er oft miklu meira ósætti innan
flokkanna sjálfra en milli þeirra."
Ertu sjálfstæðismaður engu að
síður?
„Ég myndi ekki ganga fram fyrir
skjöldu eins og ég gerði í kalda stríð-
inu. Ég er ekki lengur alveg klár á því
hvað er að vera sjálfstæðismaður, en
ég treysti vel þeim gömlu samstarfs-
mönnum mínum á Morgunblaðinu
sem nú standa þarna í brúnni.“
„Ég byrjaði alla daga
sem ritstjóri á því að
setja upp svuntuna
með það að mark-
miði að standa mig
vel í eldhúsinu."
Hanna óþreytt á Matthíasi
Hanna, eiginkona Matthíasar er
að sjálfsögðu stór hluti af lífi hans.
Það þarf væntanlega sterka konu til
að búa með svona fyrirferðarmikl-
um manni íheilan mannsaldur?
„Ég held hún hafi gefið mér
meira en ég henni," segir Matthías.
Hann hlær svo þegar ég spyr
hvort hún sé ekki orðin þreytt á að
hafa hann heima öllum stundum.
„Spurðu hana. Hún hefur ekki
minna að gera en ég, bæði í jólastarfi
Vemdar, stjóm sóknamefndar Nes-
kirkju og Bamaverndarnefhd Reykja-
víkur. Auk þess er hún í stjóm sjálf-
stæðisfélags Nes- og Melahverfis.
Ég er mikið í Þjóðarbókhlöðunni
og á göngu út og suður. Mér finnst
Grasagarðurinn í Laugardalnum
yndislegur staður og labba þar fram
og aftur og sömuleiðis í Nauthóls-
víkinni. Þá hugsa ég mikið og leysi
ýmislegt sem á hugann leitar.
Svo hef ég náttúrlega gefið út bók
á hverju ári eftir að ég hætti á blaði
allra landsmanna. Ég hef haft tíma
og tækifæri tO að ljúka bókum sem
ég hef verið með í smíðum lengi. Og
forlagið mitt sér í gegnum fingur við
mann sem einu sinni skrifaði met-
sölubækur en er löngu hættur því og
enginn getur grætt á lengur. Hefur
ekki leyft að bækur hans séu sendar
í samkeppni um fslensku bók-
menntaverðlaunin sem eiga víst að
vera einhvers konar gæðastimpill.
En em þau það? Ég hef mikla fyrir-
vara á því. Þau em hins vegar aug-
lýsingavæn, svo ég tali nútímamark-
aðsmál. Það er fyrir öllu og um það
snýst þetta.
En ég hef þegið heiðurslaun Al-
þingis, það er gott og virðulegt
kompaní. Og mildl viðurkenning
þótti mér á sínum tíma, þegar á móti
blés.
En Hanna hefur alltaf verið mjög
sjálfstæð kona. Þegar hún var ung
rak hún sína eigin hárgreiðslustofu
og yngri sonur okkar Ingólfur, lækn-
ir í Edinborg og lektor við háskólann
þar, sagði ungur stúdent, þegar
hann á kvennadegi var spurður um
konur og karlrembu að hann þekkti
það ekkert því pabbi hans væri laun-
þegi og mamma hans atvinnurek-
andi!"
Aldrei verið sérstök hetja eða
karlmenni
Er hvötin til að skrifa alltaf jafn-
sterk?
„Já, ég hef augsýnOega genetfska
löngun til að skrifa. Og yrkja."
Þarftu þá ekkert að aga þig til
skriftanna?
„Nei, ljóðskáldið er eins og trén.
Fuglarnir ákveða hvenær þau syngja
og ég verð eins og aðrir að fara eftir
náttúrulögmálum. Ég vinn aUtaf
eitthvað á hverjum degi. Ég varð illi-
lega veikur í vor, lenti í mOdum
ristilskurði, og eftir að ég kom úr
honum, spreUlifandi, hef ég verið
mjög frjór og haft gaman af að lifa."
Matthías var búinn að flnna lengi
til en eftir þessa reynslu ber hann
ódrepandi virðingu fyrir læknunum
sínum og dáist að því hversu færir
þeir eru og vel menntaðir.
Varstu erfiður sjúklingur?
„Nei, það held ég ekki. Ég gerði
það sem mér var sagt, enda ástæða
til að treysta þessu góða fólki þarna
á Landspítalanum.
Fyrir uppskurðinn fékk ég ein-
hvern kraft af hæðum og kveið ekki
fyrir neinu. Ég hefði ekki trúað því
að óreyndu að ég gæti farið í gegn-
um svona veikindi með því hugar-
fari sem ég gerði. Mér fannst það
eftirminnilegt þegar einn læknanna
sagði við mig: Nú flytjum við þig af
þínu teppi yfir á okkar teppi og þá
ræður þú engu. Hugsaðu bara um
eitthvað sem þú trúir á. Og ég tók
því. Ég hef aldrei verið nein hetja
eða karlmenni. Mér fannst ég samt
vera sæmUegt efni í karlmenni
þarna á nýja teppinu á Landspítal-
anum."
Hugsjónir ekki í tísku
Ljóðskáldið býður upp á meira
kaffi og þjónninn kemur með
cappuccino að þessu sinni. Matthías
tekur upp krítarkortið og vill borga
strax. „Ég veit þú hefur svo mikla
ánægju af að sjá hvernig gengur á
þessar fyrningar," segir hann hlæj-
andi við þjóninn.
Þjónninn gengur kampakátur á
brott en við Matthías ræðum örlítið
um peninga og hugsjónir. Honum
fmnst skorta á hugsjónir í samfélag-
inu.
„Við erum peningasamfélag. Það
er ekki í tísku að hafa hugsjónir og
það sem ekki er í tfsku fer í ösku-
tunnuna. Peningar eru það sem
hugsað er um á íslandi í dag. Það
sem hefur breytt fjölmiðlunum hvað
mest er að mikOl meirihluti frétta og
frásagna er um peninga, peninga-
stofnanir og pólitfk um peninga. Það
snýst aOt um þessa endalausu pen-
inga."
Átt þú ekki helling afþeim ?
„Ekki heOing, en ég á nóg fyrir
mig, þótt ég hafi nú verið launalaus
aOlengi. Ég geri ekki ráð fyrir að ég
eigi eftir að fara á vonarvöl en ég
verð að spjara mig. Það lifir enginn á
ljóðlistinni eingöngu, hún er ávísun
á fátækt. Þess vegna hef ég unnið að
öðrúm störfum aOa mína hundstíð!
Og aOtaf greitt mína skatta!
Breska skáldið Auden sagði ein-
hverju sinni að hann vissi ekki til að
Ijóð hefðu nokkurn tíma haft nein
áhrif. Ég er að vísu ekki alveg sam-
mála þessu vegna þess að ljóðskáld-
in í sjálfstæðisbaráttunni íslensku
höfðu vissulega áhrif á umhverfið.
Nú vantar okkur sjálfstæðisbaráttu.
Ef ég ætti að óska íslensku þjóðinni
einhvers myndi ég óska henni nýrr-
ar sjálfstæðibaráttu sem stæði undir
nafni.
Eina skiptið sem ég veit til að ljóð
hafi komið að raunverulegum not-
um var í Japan, skömmu áður en
Bandaríkjamenn köstuðu sprengj-
unum á Hiroshima og Nakasaki. Það
var komið ákaflega Ola fyrir Japön-
um, þeim var að blæða út í stríðinu,
en ætluðu samt að verja eyjarnar tO
síðasta blóðdropa. Þá var Hiroshito
Japanskeisara sagt að frænka hans
væri farin að bursta tennurnar upp
úr ösku af gömlu ljóðabókunum sín-
um. Þar komu ljóð að einhverju
gagni."
„Og forlagið mitt sér í
gegnum fingur við
mannsem eimismni
skrifaði metsölubæk-
ur en er löngu hættur
því og enginn getur
grætt á lengur."
Hættir að hræðast langafa
Við ljúkum við kaffið og Matthías
hefur orð á því að þetta sé orðið ansi
langt viðtal.
„Þú ert ekki öfundsverð af því að
þurfa að vinna úr þessu hrafli. Svo
veistu að ég verð að fá að lesa það
yfir. Þú manst líka að ég er smá-
smugulegur í yfirlestrinum," segir
hann glottandi og verður aOt í einu
eins og Jack Nicholson í framan.
Ég hlæ og þykist engu kvíða. VO
samt áður en ég kveð fá að vita eitt-
hvað um afahlutverkið.
„Það er stórfínt hlutverk," segi^
Matthías. „Ég er lfka orðinn langafi.’'
Sonur Brynhildar og Haralds rflcis-
lögreglustjóra, nafni minn Matthías,
og Saga, kona hans, eignuðust tví-
bura sem þroskast mjög skemmti-
lega og ég hef mfldð yndi af. Þeir
heita Haraldur og Daníel. Þeir eru
kraftaverk, þeir voru svo litlir þegar
þeir fæddust í Kaupmannahöfn fyrir
nokkrum misserum. Ég sá um dag-
inn húfuna annars þeirra sem hann
fékk nýfæddur og hún var svona á
fuglshöfuð. Nú eru þeir vel gangandi
og ég held þeir séu hættir að vera
hræddir við langafa sinn." ^
edda@dv.is
Notaðirhílar
umm
Jólin
Komdu i Brímborg
Jólagjöfin til þin: 40.000 kr.
ávísun uppíNokian eða Pirelli
dekk hjá Max1: sumar- eða
vetrardekk að eigin vali, kaupir
þú notaðan bil frá Brimborg.
Fjöldi notaðra bíla í sölu á hverjum degi. Veldu bílinn áður en hann selst Smelltu núna.
Jólatilbodið gildir aðeins til aðfangadags, 24. desember nk.
Smelttu þér á netið - www.brimborg.is - smelltu þér á notaðan bíl
hjá Brimborg. Reynsluaktu hjá Brimborg Reykjavík eda Akureyri.
Við kaupum af þér gamla bílinn: Staðgreitt.
Þú veltir fyrir þér hvemig best er að losna við gamla bílinn. Brimborg kaupir hann af þér staðgreitt*
veljir þú bíl frá Brimborg. Þú færð peninginn beint í vasann - eða greiðir upp lánið á gamla bílnum.
Þú losnar við allt umstang við að selja og minnkar þinn kostnað. Komdu og skoðaðu notaðan
bíl í dag. Komdu í Brimborg - ræddu við söluráðgjafa notaðra bíla um hvernig best er að skipta
gamla bílnum uppí notaðan bíl hjá Brimborg.
laktubíl
bnmborg
Öruggur stadur til ad vera á
Brimborg Reykjavík: Bíldshöfða 6, sími 515 7000 | Brimborg Akureyri: Tryggvabraut 5, sími 462 2700 | www.brimborg.is
* Brimborg greiðir þér gamla bllinn 45 dögum eftir aö uppitaka á gamla bllnum er frágengin.