Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.2005, Blaðsíða 64
Íí* !Í Við tökum við
fréttaskotum allan sólarhringinn. Fyrir hvert fréttaskot sem
birtist, eða er notað íDV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta
fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000 krónur. Fullrar
'jjvafnleyndar er gætt. sQjQ Q jQ QQ Q
r* ’ i :
SKAFTAHLlÐ24,10SREYKJAVÍK [STOFNAÐ 1910] StMlSSOSOOO 5 “690710
111124"
Á bakinu með Eiríki Jónssyni
Það var líf og fjör í góðgerðar-
kvöldverði Rogers Moore og
UNICEF í Listasafni Reykjavíkur í
fyrrakvöld. James Bond hélt ræðu,
Siggi Hall sá um matinn og gestirnir
gáfu 90 milljónir á uppboði á meðan
þeir skáluðu fyrir veröldinni.
„Þetta var frábært kvöld í alla
staði og við erum hæstánægð og
hamingjusöm,“ segir Stefán Ingi
Stefánsson, framkvæmdastjóri
UNICEF á íslandi.
Var ómálað verk eftir Hallgrím
Helgason slegið á 20 milljónir?
„Ég staðfesti engar tölur en ómál-
að verk eftir Hallgrím var selt.“
Og veðurfréttirnar á NFS líka
seldar á tvær og hálfa milljón ?
„Þær voru seldar en ég staðfesti
engar tölur.“
Varþað systirBolla íSautján sem
keypti ómálaða verkið eftir Hall-
grím?
„Ég nefni engin nöfn enda var
uppboðið ekki skipulagt af okkur
heldur þeim aðilum sem voru að
styrkja okkur með 135 milljónum til
þróunarverkefna í Gíneu-Bissá.
Samningurinn þýðir
að við getum sent
24 þúsund börn í
skóla á ári næstu
fjögur
árin
m, e^3
hartnær
hundrað
þúsund
börn.“
J Hvað voru
m L gestirnir í Lista-
fl : safninu margir?
„Þeir voru
um 250 tals-
ins og
sýndu
mikla rausn
og höfð-
ingsskap.
Þarna
var mikið af
góðu fólki.“
Og James Bond sló í gegn?
„Roger Moore hélt alveg magn-
aða ræðu þar sem hann lýsti reynslu
sinni af hjálparstarfmu. Það var stór-
kostlegt að hlusta á hann og hann
■:2t hreyfði verulega við fólki."
Hvað á svo að gera við þessar 90
milljónir?
„Það er verkefni um joðbætt salt,
menntun og kennslu sem kostar 50
milljónir og nú eigum við fyrir því og
vel það. Nú getum við snúið okkur
að öðrum og brýnum verkefnum í
Gíneu-Bissá," segir Stefán Ingi Stef-
ánsson hjá UNICEF.
Roger Moore Hélt
magnaða ræðu yfir ríka
fólkinu i Reykjavlk.
Til málamynda?
/
• Menningarheimur-
inn hefur tekið kipp
eftir að út spurðist að
brestur væri kominn í
vinskap og samstarf
Ólafs Elíassonar
myndlistarmanns og Einars Þor-
steinsÁsgeirssonar arkitekts. Einar
Þorsteinn er sem kunnugt er frum-
herji í gerð kúluhúsa hér á landi og
hefur verið reikni-
meistari Ólafs í öllum
þeim sexstrendingum
sem hann hefur skap-
að og eru uppstaðan í
mörgum verka hans.
Til að mynda I nýju tónlistarhúsi
sem reisa á við Reykjavíkurhöfn. Er
nú óvíst hvernig fer með framtíðar-
verk Ólafs í þessa veruna ef reikni-
meistarinn er ekki
lengur tO taks...
• Spaugstofan er
komin í jólaskap og
hefur fengið leikkon-
una Eddu Amljótsdóttur tU liðs við
sig af því tUefni. Leikur Edda hús-
móður sem undirbýr jólin af kost-
gæfni en fær jólaeftirlitsmenn ríkis-
ins í heimsókn sem
athuga hvort seríur
séu rétt uppsettar og
ijöldi smákökuteg-
unda nægur. Þykir
Edda fara á kostum
enda eiginkoha stórleikarans Ingv-
ars E. Sigurðssonar og gefur honum
ekkert eftir í leiklistinni. Mætti hún
láta meira að sér kveða...
■ ' V
ATVIINiNUHUSNÆÐlSLAIM
LÆGRí
V.ví
75%
LÁNS
HLUTFALL
Frjálsi fjárfestingarbankinn lánar fyrirtækjum og einstaklingum til kaupa á atvinnuhúsnæöi.
Lánin eru verötryggö og geta numið ailt að 75% af kaupverði fasteignar. Þú velur
húsnæðið sem hentar þér - okkar markmiö er að veita framúrskarandi þjónustu á sann-
gjörnum kjörum. Komdu til okkar í Lágmúla 6, hringdu í 540 5000 eða sendu okkur
póst á frjalsi@frjalsi.is. Þú vinnur betur í eigin húsnæði!
FRJÁLSI
rjARKESTINGARBANKINN
fí ÍÉJ