Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2006, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2006, Blaðsíða 8
8 LAUGARDACUR 25. FEBRÚAR 2006 Fréttir DV Smyglarar í gæsluvarð- hald Litháamir tveir sem teknir voru við komuna til íslands í byrjun febrúar með amfetamín í fljótandi formi voru í gær úrskurðaðir í áffamhaldandi gæsluvarð- hald. Komu þeir með efiiið í flöskum með viku millibili og hafa verið í haldi sfðan. Arvydas Maciulskis, sem bú- settur er hér á landi var úr- skurðaður í gæsluvarðhald til 2. mars og sá sem var tekinn viku áður var úrskurðaður til 7. apr 11. Málin styrkja þá skoðun yfir- valda að hér á landi sé skipu- lögð glæpa- starfsemi. Eiginkona smyglara ífarbann ðrvydas %> Eiginkona Arvydas Maciulskis, Daiva Maciulskiené, var í gærmorg- un úrskurðuð í farbarm úl 24. mars í tengsl- um við rannsókn málsins. Daiva er á fertugsaldri og er búsett ásamt Maciulskis í Kópavogi. Með farbanninu á að tryggja nærveru hennar á meðan rannsókn málsins stendur yfir. Ásgeir Karlsson, yfirmaður fikniefnadeiidar Lögreglunnar í Reykjavík, segir að rannsókn málanna sé í fuilum gangi. Aðspurður segist hann ekki geta sagt til um hvenær henni ljúki. #ruu * lv/y yviu i riiuiuilll því ég er í átta teiksýninqum á viku, bæöi í Klauf- um og kóngsdætrum og Eld- húsi eftir máli, “ segir Unnur Ösp Stefánsdóttir leikkona. „Svo er ég að undirbúa mig fyrir næsta stóra verkefniö mitt þarsem ég tek aö mér leikstjórn en ég vil ekki enn upplýsa hvaöa verk þaö er. Ég er eldhress þvl daginn er tekið að lengja og þaö hefur ótrú- lega góð áhrifá mig.“ Þorsteinn Steingrímsson fasteignasali og einn stærsti lóðaeigandi í 101 Reykjavík eign- aðist sitt fyrsta hús, Vatnsstíg 11, árið 1981. Nú eru fasteignir hans á svæðinu orðnar um 80 talsins. Sjálfur segist hann ekki hafa nákvæma tölu á þeim. Hann er „lítill dellu- karl“ en lét eftir sér að gerast bóndi í nokkur ár á bænum Kvistir í Landsveit. Þorsteinn Steingrfmsson Fyrír framan Vatnsstfg 11, fyrsta húsið sem hann eign- aðistárið 1981 WIBM Þorsteinn segir að hann hafi eignast sitt fyrsta hús, Vatnsstíg 11, árið 1981 og hefur síðan stundað það sem „hliðarbúskap" að kaupa gömul hús í miðbænum, gera þau upp og leigja út, annað hvort einstaklingum eða atvinnurekstri. „Ég er fæddur og uppalinn á Bárugötunni og hef ætíð búið og starfað í gömlu Reykjavík ef frá eru talin nokkur ár þegar ég lét það eftir mér að gerast bóndi austur í Land- eyjum,“ segir Þorsteinn Steingríms- son f samtali við DV. „Þar stundaði ég skógrækt og hrossarækt en segja má að það hafi verið helstu áhuga- mál mín. Ég er lítill dellukarl og hef til dæmis aðeins einu sinni hand- leikið golfkylfu.“ Þorsteinn er fæddur árið 1947, sonur hjónanna Steingríms Jóns Guðjónssonar frá Litlu-Brekku í Geirdalahreppi og Margrétar Hjart- ardóttur frá Purkey í Fellsstrandar- hreppi. Þorsteinn er gagnfræðingur .að mennt en 1970 varð hann löggilt- ur fasteignasali og vann sem slíkur fram til 1993 er hann flutti austur fyrir fjall sem fyrr segir. Hann var giftur Sigríði önnu Þorgrímsdóttur en þau skildu. Með henni á hann fimm uppkomin börn. Síðar var hann í sambúð með Elísabetu Jónu Sveinbjörnsdóttur en í dag er hann einhleypur. Tóm vandræði með fyrstu eignina Þorsteinn segir að hann hafi eignast sitt fyrsta hús, Vatnsstíg 11, árið 1981 og hefur síðan stundað það sem „hliðarbúskap" að kaupa gömul hús í miðbænum gera þau upp og leigja út, annað hvort ein- staklingum eða atvinnurekstri. Sjálf- ur segist hann ekki hafa nákvæma tölu á hve margar eignir hann á nú um stundir en þær séu í kringum 80 talsins. „Ég leigði svo borginni Vatnsstíg 11 í ein 22 ár en það voru tóm vand- ræði í gangi þar," segir Þorsteinn. „Félagsþjónustan fékk eignina til umráða og setti erfiðustu skjólstæð- inga sína þar inn. Mig minnir að húsið hafi brunnið þrisvar sinnum og þar að auki sinnti borgin lítið og illa viðhaldi á húsinu." Áhugi á skógrækt Þorsteinn segir að hann hafi ætíð haft áhuga á skógrækt og telja megi skógræktina hans helsta áhugamál. „Þetta áhugamál leiddi til þess að ég gerðist bóndi á bænum Kvistir í Landsveit,“ segir hann. „Og svo æxl- aðist það þannig að ég var einnig með hrossarækt á bænum. í dag hins vegar lifi ég fremur rólegu lífi." Aðspurður hvort eitthvert af fimm börnum hans vinni við fast- eignasölu segir hann svo ekki vera. „Ekkert þeirra hefur haft áhuga á að fara út í þennan bransa." Glæsilegt úrval af handsmíðuðum íslenskum skartgripum SKÓLAVÖRÐUSTfG 10 sími 561 1300 Halldór Benedikt Sverrisson í fangelsi fyrir að notfæra sér ölvun ungrar stúlku 37 ára nauðgaði átján „Ég var handviss um að ég yrði sýknaður," segir Halldór Benedikt Sverrisson. Hæstiréttur staðfesú í gær átján mánaða fangelsisdóm sem Halldór fékk í fyrra í Héraðsdómi Vestfjarða fynr að nauðga sfiílku á heimili hennar á fsafirði árið 2004. Stúlkan var 18 ára þegar Halldór kom vilja sínum fram við hana en hann var 37 ára. Hún gat ekki spomað við vegna ölvunar og svefndmnga. Halldór neitar enn að hafa nauðgað stúlkunni og segist hafa verið hafður fyrir rangri sök. Hann viðurkenndi þó að hafa haft samræði við stúlkuna. Halldór var gestkomandi á heimili stúlkunnar nótúna sem nauðgunin átú sér stað. Hún leyfði Halldóri að gista í rúmi sínu og fór sjálf að sofa. Nokkru síðar vaknaði stúlkan við það að Hall- dór var að hafa við hana samfarir. Hún bar að hafa varla haft rænu á að spyma á móú honum. Stúlkan beið því efúr að Halldór lyki sér af. Þá klæddi hún sig, fór til vinkonu sinnar og sagði henni hvað hafði gerst. Þær fóm því næst til læknis úl að- hlynningar. Læknir sem tók á móú stúlkunni segir hana hafa átt við mikla erfiðleika að stríða efúr nauðgunina. Hún taki þunglyndislyf og beri þess enn merki að hafa orðið fyrir miklu áfalli. Halldór Benedikt hafði ekki heyrt af úrskurði Hæstaréttar þegar ÖV hafði samband við hann í gær. Hanh kómst í nokkuð uppnám við fréttimar og sagð- ist hafa átt von á annarri niðurstöðu. „Það er ótrúlegt að maður þurfi að sitja inni út af þessu kjaftæði," sagði Halldór Benedikt æstur. Hann heldur því enn ffam að samræðið við stúlkuna hafi verið með samþykki beggja aðila. Aðspurður hvort siðferðilega rétt væri af 37 ára manni að leggjast með ára stúlku stúlku mttugu árum yngri svaraði Hall- sko enginn aldursmunur nú til dags." dór Benedikt: „Aldursmunur! Þetta er andri@dv.is ísafjörður Nauðgunin áttisérstað á heimili stúlkunnar. Hún hefur þurftá mik- illi hjálp að halda síðan.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.