Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2006, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2006, Blaðsíða 10
10 LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 2006 Fréttir DV Guðlaug þykir heit og hlý kona, fyndin og skemmtileg, gefandi með stáran faðm og vinur vina sinna. Hún er með dýran smekk, er letidýr og reykir ofmikið. „Fiún errosalega hlý og heit kona og falleg yst sem innst. Hún á stóran faðm og mjög gaman að hlæja með henni. Hún er yndisleg kona og ofsalega góður vinur vina sinna. Svo býr hún tii besta kaffi í bænum. Hún er letidýr en það klæðir hana vel að vera svolítið löt." Halla Margrét Jóhannesdóttir söngkona. „Hún er afbragðs leikkona, það er algjörlega málið. Svo er hún kómíker af guðs náð. Gulla er glaðlynd og gefandi. Gallar hennar eru að hún hefur mjög dýran smekk." Hilmar Jónsson, leikhússtjóri Hafnar- fjaröarleikhússins. „Kostir hennar Gullu eru svo margir að ég næ ekki að segja frá þeim öllum I litlum dálki. Hún er afskaplega skemmtileg, mikill félagi, einlæg og hlý og maður vill vera nálægt henni. Svo er hún svo klár, maður- inn minn segir að hún eigi að bjóða sig fram til for- seta Islands í næstu kosning- um. Gallar hennar eru að hún reykir ofmikið." Guðrún Ásmundsdóttir leikkona. Guðíaug Elísabet Ölafsdóttir er fædd 21. október 1969. Hún er leikkona að mennt og er I meistaranámi I hagnýtum hagvís- indum á Bifröst. Guðlaug leikur í hinum vinsælu sjónvarpsþáttum Stelpurnar á Stöð 2. Einnig er Guölaug aö leika í leikrit- inu Himnaríki sem sýnt er í Hafnarfjarð- arleikhúsinu og verður sýnt út mars. Tollfrjálsar pylsur í síðustu viku var undirritað samkomulag milli íslands og Evrópu- sambandsiris, ESB, um • tvíhliðaviðskipti með landbúnaðarvörur. í sam- komulaginu felst meðal annars að tóllfrjáls lamba- kjötskvóti íslands er auk- inn úr 1.350 tonnum í 1.850 tonn. Auk þess fær ESB tollfrjálsan kvóta til íslands fyrir 25 tonn af kartöflum og 15 tonn af rjúpum. Þá verða gagn- kvæmir 15 tonna tollfrjáls- ir kvótar opnaðir fyrir pylsur. Jafnframt fær ESB tollfrjálsan 20 tonna osta- kvóta til íslands og ísland fær tollfrjálsan 20 tonna smjörkvóta til ESB. Gert er ráð fyrir að samningurinn komi til framkvæmda 1. janúar 2007. Övind Kvaal, forstjóri upplýsingasviðs NCC, segir að fyrirtækið hafi hvergi komið jJarðgöng Arni segirað hann muni halda ótrauður áfram að vinna að hugmyndinni um jjarðgöng milli lands og Eyja. að hugmyndum Árna Johnsen um að byggja jarðgöng milli lands og Eyja. Árni Johnsen segir að greinilega viti ein deildin hjá NCC ekki hvað önnur sé að gera. Hann hafi beðið um og fengið fræðilega úttekt á jarðgangagerðinni frá jarðganga- deild NCC í fyrra. jé! - Arm Johnsen sehaðun um nusnota Árni Johnsen „Sennilega liggur misskilningurinn í því að opinberir aðilar hér hafa aldrei sentbeiðni til NCC um aðkomu að málinu‘ Ovind Kvaal er bara skrifstofu- madur hjá NCC og misskilur þad sem gerst hefur í málinu." ; i ; j f__________________________ ( Einhver ruglingur og misskilningur er kominn upp um aðkomu NCC að hugmyndum um jarðgangagerð milli Vestmannaeyja og lands. Övind Kvaal, forstjóri upplýsingasviðs NCC, segir í sam- tali við DV að fyrirtækið hafi hvergi komið að hugmyndum Árna Johnsen um að byggja jarðgöngin. Árni Johnsen aftur á móti segir að greinilega viti ein deildin hjá NCC ekki hvað önnur sé að gera. Óumdeilt sé að hann bað um og fékk fræðilega úttekt á hugmyndum sínum frá jarðgangadeild NCC í fyrra. övind Kvaal mun hafa sent bréf á fjölmiðil hérlendis þar sem hann beinlínis sakar Árna Johnsen um að hafa misnotað nafn NCC til fram- dráttar hugmyndum sínum. Þetta er í annað sinn sem övind Kvaal tjáir sig um jarðgöngin en í janúar í fyrra sór hann af fyrirtækinu þá kostnað- aráætlun sem lögð var fram um verkið. Ennfremur mun Kvaal segja að NCC hafl ekki unnið neina rann- sóknarvinnu í tengslum við þessi jarðgöng. Bréf þetta er á vitorði margra af forráðamönnum Vest- mannaeyjabæjar. övind Kvaal vildi ekki tjá sig efn- islega um bréf þetta í samtali við DV og endurtók aðeins fyrri staðhæf- ingu um að NCC hefði hvergi komið nálægt málinu. Misskilningur „övind Kvaal er bara skrifstofu- maður hjá NCC og misskilur það sem gerst hefur í málinu,“ segir Árni Johnsen. „Sennilega liggur misskilningurinn í því að opinberir aðilar hér hafa aldrei sent beiðni til NCC um aðkomu að málinu. Ég fékk hins vegar Sven Erik Kristian- sen verkfræðing og yfirmann jarð- gangadeildar NCC í Noregi til að koma hingað til lands og flytja er- indi um hina fræðilegu hlið máls- ins. Hann kom hingað ásamt Sverre Brandihaug sérfæðingi frá Multikonsul og við héldum tvo fundi með þeim í fyrra." Starfar sjálfstætt Árni segir að jarðgangadeild NCC í Noregi starfi alveg sjálfstætt og menn séu greinilega að rugla því saman að fyrrgreind úttekt hafi verið gerð af hálfu deildarinnar og því að opinber stjórnvöld hérlendis hafl aldrei farið fram á neina vinnu frá NCC í tengslum við hugmynd- ina um jarðgöngin. Skrípaleikur og skemmdarverk Árni segir að hann muni halda ótrauður áfram að vinna að hug- myndinni um jarðgöng milli lands og Eyja þrátt fyrir mikla andstöðu Vegagerðarinnar í málinu. Hann sakar Vegagerðina um skrípaleik og skemmdarverk í tengslum við jarð- göngin og vill að stofnunin vinni þá nauðsynlegu rannsóknarvinnu sem þarf á jarðlögum og fleiru hið fyrsta. Knattspyrnuáhugamönnum blöskrar verðið á Sýn Alltof dýrt að horfa á HM í fótbolta „Mér flnnst eins og þetta sé viðskiptasiðferði sem ekki hefur tíðkast á fslandi hing- að til," segir Guðjón Guð- mundsson fótboltaáhuga- maður sem blöskrar verð- lagning 365 miðla á áskxift að sjónvarpsstöðinni Sýn. Lesendabréf sem hann sendi Morgunblaðinu var birt í gær, þar sem Guðjón óskar skýringa 365 á þessu. „Þeir hafa öll tæki til að hafa hreðjartak á okkur fótboltaáhuga- mönnunum," segir Guðjón sem ætl- ar ekki að láta þetta yfir sig ganga og ætlar eldd að kaupa sér áskrift að stöðinni. „Með þessu framferði fá þeir alla upp á móti sér, en eins og oft tíðkast þorir enginn að standa upp og mótmæla þessu. Bjarti punkturinn í þessu er að þeir verða ekki með sjón- varpsréttinn eftir fjögur ár, þvf þá verður HM sýnt í Sjónvarpinu." Sam- kvæmt upp- lýsingum áskriftar- deildar 365 miðla kostar áskriftin að Sýn 13.990 lcrón- ur fyrir þann sem ætl- ar sér eingöngu að hafa Sýn í júnímánuði, þegar HM fram. ViðskJptavinum er einnig boðið að binda sig tíl sex mánaða áskriftar á 4.540 krónur sem í heildina gera því 27.240 kxónur fyrir alla sex mánuð- ina. „Þeir sem þegar eru í áskxift hjá okkur greiða ekkert aukalega fyrir að markaðsstjóri 365'níiiBÉír^^to^^ir þá sárafáa sem hafa hug á að kaupa áskrift einungis fyrir júnímánuð, enda séu flestir íþrótta- áhugamenn nú þeg- ar með áskrift af ein- hverju tagi hjá fyrir- tækinu. Þannig kost- ar það félaga í M12 klúbbnum einungis 2.200 lcrónur á mán- uði að kaupa auka- lega áskrift að Sýn. með Stöð 2. „Kaup- in á sjónvarpsréttinum voru hugsuð fyrir okkar áskrif- endur fyrst og fremst," seg- ir Pálmi. „Vilji menn kaupa áskxift hjá okkur til lengri tíma þurfa þeir ekki að borga neitt aukalega fyrir það." HMífótbo Dýrpakki fy, áhugamenn fótbolta.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.