Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2006, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2006, Blaðsíða 12
12 LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 2006 Fréttir DV \ Bolunqarvík vinsælá vefnum í Bolungarvík var sett upp vefmyndavél í apríl í fyrraogerhún á miðju hafnar- svæðinu. Sam- kvæmt vefsíðu Bolungarvíkur- kaupstaðar eru 200 þúsund manns búnir að fara inn á vefinn til að skoða Bolungarvík í beinni og er ijöldi gestanna erlendis frá. Samkvæmt þessum tölum má áætla að um 650 manns skoði kaupstaðinn á dag og ekki ólíklegt að í náinni framtíð muni tilvera vef- myndavélarinnar skila til Bolungarvíkur áhugasöm- um ferðamönnum. Allir vilja á Rokkhatíð Rokkhátíð Alþýðunnar sem ber heitið Aldrei fór ég suður verður haldin á ísa- firði þann 15 aprfl. 60 hljómsveitir hafa sótt um að spila á há- tíðinni en að- eins 20 kom- ast að. Sam- kvæmt skipuleggjanda há- tíðarinnar, Rúnari Þór Karlssyni, mun Síminn senda út upptökur af tón- leikunum á netinu á nýju kerfi meiri að gæðum en áður hefur þekkst. Frá þessu var greint á bb.is. „Á Isafirði brosirsólin við okkur og margt jákvætt í far- vatninu, “ segir Sigríður Björk Guðjónsdóttir, sýslu- maður á lsafirði.„Háskólaset- ur tekið til starfa affullum krafti, menntaskólanemar verða með sólrisuhátlð sem hefst Landsíminn um helg- ina, Tónlistarhátíð æskunnar verður haldin ÍTónlistarskól- anum og „Rótahátíð" verður haldin nk. sunnudag afhálfu fétags áhugafólks um menn- ingarfjölbreytni. Vandinn hér fyrir vestan er oft sá, að það er ofmargt að gerast sam- tímis i menningarlífinu." Sundhöll Seyðisfjarðar var lokað snarlega aðeins viku eftir að hún var opnuð eftir mán- aðarlangt viðgerðarhlé. Skipalakk sem Seyðfirðingum var sent og notað var við endur- bæturnar reyndist ekki vatnshelt og litlar flyksur flutu um laugina. Heimir Jóhanns- son sundlaugarforstjóri neyddist til að skrapa upp laugina með slípirokki. Heimir ætl- ar að bæta bæjarbúum upp óþægindin með ókeypis „kósíkvöldi“ 1 sundhöllinni. „Þeir sendu okkur málningu og fullvissuðu okkur um að hún hefði verið notuð í einhverri sundlaug annars staðar. Við náttúr- lega treystum á það,“ segir Heimir Jóhannsson, sundlaugarfor- stjóri á Sundhölhnni á Seyðisfirði, sem lenti í því að ný málning á sundlaug staðarins byrjaði að flagna aðeins nokkrum dögum eftir að hún var borin á. „Gamla Sjafnarmálningin sem við höfum notað í 20 ár er ekki til lengur út af sameiningu Sjafnar og Hörpu,“ segir Heimir (óhannsson, sundlaug- arforstjóri á Seyðisfirði, sem fékk sent skipalakk frá Hörpu-Sjöfii til að bera á laugina sína. „Tíu dögum seinna byrjaði máln- ingin að springa upp og þao kom því- líkt ógeðsleg lykt í loftið. Máiningin byrjaði að flagna af og það flutu litlar flyksur um laugina. Það var ekki gam- an,“ lýsir Heimir ástandinu í sundhöll Seyðisijarðar í byrjun mánaðarins. Þrír menn með slípirokka Sundhöllin var opnuð 1. febrúar eftir mánaðarlangt viðgerðarhlé. Þann 7. febrúar neyddist Heimir til að skella öllu í lás aftur. „Notuð var ný málning sem reyndist svo ekki vera vatnsheld," útskýrir Heimir fyrir bæj- arbúum á vefsetri Seyðisfjarðarkaup- staðar. „Við lokuðum í grænum hvelii og skröpuðum alla laugina upp eins og við gátum," segir Heimir við DV. „Við vorum þrír menn í tvo daga að skrapa með rokkum og sköfum." Heimir og menn hans þurftu síðan að þrífa laugina, sótthreinsa hana og „Tíu dögum seinna byrjaöi málningin að sprínga upp og það kom þvílíkt ögeðsleg lykt í loftlð." grunna og mála. „Svo þurftum við að dæla í hana, tæma hana, sótthreinsa hana, þrífa hana og dæla í hana aftur. Þetta var þvflíkt umstang sem fylgdi þessari nýju málningu. Það er þessi Intemational málning frá Flugger." Tjónið nemur 700 þúsundum Heimir opnaði sundhöllina loks- ins aftur á fimmtudaginn var. Að- spurður segir hann nýju málninguna alls ekkert byrjaða að flagna. „Þetta virðist ætla að ganga eitthvað aðeins betur," segir hann bjartsýnn. Þótt allt sé að falla í ljúfa löð er málinu ekki að fullu lokið. Þegar alit var komið í óefni fyrir nokkrum vik- um segist Heimir hafa hringt suður í Hörpu-Sjöfn til að láta vita hvemig komið væri. „Þá komu efriafræðingurinn og sölumaðurinn og viðurkenndu mis- tökin. Þeir sögðu að þetta skipalakk hefði aldrei átt að fara á. Þeir lofa mér því að þetta sé í lagi núna. En þetta er samt orðið tjón upp á 700 þúsund kali," segir Heimir sem reiknar fast- lega með því að Harpa-Sjöfn bæti tjónið. „Þeir fá að gera það.“. Ókeypis rómantík í sárabætur Tií að bæta bæjarbúum upp óþægindin ætlar Heimir að hafa ókeypis aðgang að kósíkvöldi í laug- inni hinn 3. mars. „Ég er með kósíkvöld einu sinni í mánuði. Þá erum við með rólegheita- tóniist, kerti og kósíheit í rómantískri stemningu. Það kemur alls konar fólk á kósíkvöldin; bæði konur og karlar," segir Heimir sem tekur upp á ýmsu fleim í rekstri sundhallarinnar: „Ég er líka með konukvöld á fimmtudagskvöldum. Þá er sundleik- fimi. Svo er karlakvöld á föstudags- kvöldum. Þá mæta karlamir og ræða pólitíkina í heita pottinum. Það er lflca ungbamasund um hverja helgi. Það er nóg að gera." Gáfumenn í brjálæðiskasti Sundhöllin á Seyðisfirði var vígð 8. júlí 1948. Arkitekt byggingarinnar var Guðjón Samúelsson, þáverandi húsa- meistari ríkisins, sem meðal annars teiknaði Sundhöllina í Reykjavík, Þjóðleikhúsið og Hallgrímskirkju. Upphaflega var Sundhöll Seyðisfjarð- ar klædd skeljasandi en það er breytt segir Heimir: „Fyrir tí'u árum síðan vom það ein- hver gáfumenni hér á staðnum sem vom hræddir um að það færi of mikill peningur í að halda henni við svo þeir tóku sig til í einhveiju bijálæðiskasti og klæddu hana alla með bámjámi. Ég sem er lærður húsasmiður er alveg kolvitlaus út af þessu. Þetta er sögu- frægt hús og það er alger óþarfi að vanvirða það. En við erum núna að vinna í því að láta meta hvað kostar að koma henni í upphaflegt horf." gar@dv.is I-------------------------------- ' Ágætu Seyðfiröingar! \ Nú i dag, þann 23. febrúar opnar Sundhöll Seyðisfjarðar aftur. Þar sem mikið er spurt um orsök lokunarinnar eetla ég að skýra hér með frá hvað kom fyrir. Þannl febrúar opnaði ég laugina aftur eftir mánaðar stopp vegna viðhalds. Viðhaldið var frekar venjubundið,laugin varmáluð og lagnir voru lagaðar. Svo þann 7. febrúar kom I \ Ijós galli i málningunni. Vegna breytinga \ hjá fyrirtækinu sem seldi okkur málning- una var málningin sem notuð hefur verið til þess að mála laugina slðastliðin 20 ár ekki til. Notuð var ný málning sem reyndist svo ekki vera vatnsheld. Snögglega skröp- uðum við alla laugina og þrifum, fengum rétta málningu og máluðum laugina aftur En þar sem þetta er allt nýtt þurfti aðfara að öllu með gát og þurfti að fylgja nýjum reglum. En það tókst loksins. Til að bæta þetta upp komum við sterk til leiksog þann 3. mars er kósikvöld i Sundhöllinni ogfríttinn. Með von um góðan skilning, kær kveðja, Helmlr og baejarstrákamlr I Tilkynning á seydisfjordur.is. —f Einstakt tækifæri til þess að eignast kínverska listmuni beint frá framleiðendum SÖLUSÝNING Á HÁGÆÐA HANDGERÐU KÍNVERSKU P0STULÍNI Útí- eða inniblómapottar - myndir - lampar - vasar - skálar og fleira White like jade Bright as mlrror Thln as paper Sound llke a chlme JiNGDEZHEN HENGFEN SALES EXHIBITIO. Sýningin hefur verið framlengd Hlíðasmári 15, Kópavogi. Sími 895 8966. Opiö alla daga frá kl. 9-22.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.