Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2006, Blaðsíða 43
DV Helgarblað
LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 2006 43
Sum störf eru flokkuö sem karlastörf. Dæmi um hefðbundin karlastörf eru til dæmis þau sem
reyna á líkamann, eða tengjast tækjum og tólum. DV heyrði í nokkrum kvenskörungum sem láta
ekkert stoppa sig í að láta draumana rætast. Stelpurnar eru á meðal afar fárra kvenna eða þær
einu í sínum störfum og er slétt sama um allar gamaldags skiptingar í karla- og konuhlutverk.
pur í álverinu
Steinunn Eysteinsdóttir „Ég ætl-
aði mér aldrei að vinna íálveri þegar
ég var lítil enda efastég um að ég
hafi vitað hvað álver væri."
liðinu
„Ég hef alltaf verið fyrir óhefðbundin störf og vil ekki láta neitt
stoppa mig. Ég tek ekki nei fyrir svar,“ segir Sylvía Húnfjörð, 25 ára
kona sem hefur starfað hjá Slökkviliði Akureyrar í tæp tvö ár. Áður
en Sylvía hóf störf með slökkviliðinu hafði hún verið í malbiki og
járnabindingum. „Ég reyni bara að leggja það fyrir mig sem vekur
áhuga auk þess sem karlastörfm eru betur launuð en hefðbundin
kvennastörf," segir Sylvía en þvertekur fyrir að hún sé einhver
strákastelpa. „Ég er naglafræðingur og útskrifaðist sem grafískur
hönnuður í fyrra. Ég hef alitaf verið íþróttastelpa og ætli ég sé ekki
frekar ofvirk."
Sylvía er fyrsta konan í Slökkviliði Akureyrar. Hún segir inntöku-
prófið hafa verið mjög erfitt og að vinnan taki einnig á á stundum,
bæði andlega og líkamlega. „Megnið af vinnutímanum er rólegt en
sjúkraflutningarnir geta verið erfiðir," segir hún og bæúr aðspurð
við að strákarnir komi fram við hana eins og hver annan vinnufé-
laga. „Ég hafði áhyggjur af því að þeir myndu koma öðruvísi fram
við mig en ég hef aldrei fundið fyrir því að ég sé eina stelpan í vinn-
unni."
Sylvía segir starf slökkviðismannsins og sjúkraflutningamanns-
ins alls ekki fyrir hvern sem er. Til þurfi krafta og sterk bein. „Starf-
ið er alls ekki fyrir hvaða karlmann sem er enda komast margir
þeirra ekki í gegnum þrekprófið. Ég er stór og fr ekar sterk í byggingu
en finnst starfið oft mjög erfitt. Það væri samt flott að fá fleiri konur
inn í þessa stétt sem geta höndlað þetta starf og haft gaman af."
albikinu
Fiktaði í húddum fimm ára
„Þetta byrjaði með því að faðir minn eignaðist Fiat sport ‘74 módelið. Demantsrauðan og
krómaðan, rosaflottan. Bíllinn bilaði hins vegar og pabbi æúaði að henda honum en þá
ákvað ég að læra fagið," segir Gyða Ólafía Friðbjarnardóttir bifvélavirki. Gyða hefur verið í
faginu í þrjú ár en hún er lærður bifvélavirki. Hún segist alltaf hafa haft áhuga á bílum en að
hún geti verið kvenleg og dömuleg. „Ég var ailtaf í bílskúrnum hjá pabba og var farin að fikta
í húddum bíla frá 5 ára aldri. Pabbi var alltaf á sjó og þegar hann var í landi vildi ég vera sem
mest með honum. Þótt bílar séu mitt áhugamái get ég alveg verið dömuleg þegar aðstæðurn-
ar æúast til þess," segir Gyða og bætir við að hún hafi alltaf verið í kringum karlmenn þar sem
hún eigi einungis bræður.
Gyða segist alltaf munu verða viðloðandi bílabransann enda sé af nógu að taka. „Það er
nóg úrval, ég get verið að söluskoða, verið í varahlutunum, á þjónustuverkstæðinu, sem verk-
stjóri eða í söludeildinni. Þetta er stór geiri," segir hún en viðurkennir að henni hafi reynst
erfitt að finna starf í byrjun. „Yfirmaður pabba tók mig til sín tU að byrja með og þar með var
ég komin með eitt verkstæði á ferilskrána og svo hef ég unnið hjá Toyota síðustu tvö árin."
Gyða viðurkennir að margir kúnnanna reki upp stór augu þegar hún mæti til starfsins.
Sumir gangi jafnvel svo langt að neita að leyfa henni að gera við bílana. „Margir gapa bara á
mig og heimta karlmann. Fólk er hins vegar farið að venjast þessu enda meira meðvitað um
að konur geti leynst alls staðar," segir hún og bætir við að hún mæli með starfinu fyrir aðrar
konur. „Vefkstæðið er allt öðruvísi vinnustaður. Hér er ekkert verið að tala undir rós og eng-
ar stelpur að hvíslast úú í horni. Skotin eru hörð og stríðnin í fyrirrúmi," segir hún brosandi.
Gyða viðurkennir að erótísk dagatöl hangi uppi á veggjum en hún lætur það ekkert á sig fá.
„Eg heimtaði bara mín dagatöl svo nú skreyta léttklæddir karlmenn veggina við hliðina á létt-
klæddu stúlkunum og allir eru sáttir."
indiana@dv.is
Gyða Ólafía Friðbjarnar-
dóttir bifvéla virki „Ég heimt-
aði baramfn dagatöl svo nú
skreyta léttklæddir karlmenn
veggina við hliðina á léttklæddu
stúlkunum og allireru sáttir."