Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2006, Síða 14
14 LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 2006
Fréttír DV
Alltískít
Þýski bærinn Elsa í
Bavaria-fylki er heldur bet-
ur í skítnum. Leiðsla sprakk
í bænum, en í henni voru
240 þúsund lítrar af fljót-
andi svínaskít. 50 sentí-
metra þykkt lag af skít þakti
götur bæjarins. „Þorpið var
allt í grænbrúnum vökva,
sem var úrgangur úr svín-
um. Algjör viðbjóður," sagði
taismaður lögreglu bæjar-
ins. Þetta slys var dýrkeypt,
talið er að tjónið nemi um
átta milljónum króna.
Krókódílaæði
á Íríandi
Lögreglan á írlandi fann
10 krókódíla og fleiri skrið-
dýr inni í bfl í Omagh. Fleiri
slflc dýr fundust í húsi
skammt frá. Dagblaðið The
Sun segir hættuleg gæludýr
í tísku í Bretlandi, rétt eins
og borið hefur á hérlendis.
Áður voru stór kattardýr
mjög vinsæl, en skriðdýrin
munu hafa komið í stað
þeirra. Samtök dýravernd-
unarsinna í landinu vilja
banna viðskipti með þessi
dýr. Þessi dýr þurfa sér-
staka athygli og segja dýra-
vemdunarsinnar að al-
menningur kunni ekki að
sjá um þau.
...........T[----------
Hætta að
reykja með
hundi
Hundurinn Rupert, sem
er af Cocker Spaniel-teg-
undinni, hefUr verið ráðinn
til vinnu hjá fyrirtæki í
Bradford á Englandi. Starf
hans felst í því að hjálpa
fólki að hætta að reykja. í
stað þess að fara út til þess
að reykja sígarettur geta
starfsmenn fýrirtækisins
farið með Rupert í göngu-
túra. „Hann er mikilvægur
hluti af starfsliðinu. Hann
hjálpar okkur mikið, heldur
streitu fólks í lágmarki. Við
viljum ekki án hans vera,“
segir Steven Street, yfir-
maður fyrirtækisins.
Læknar
ástarsorg
Nú geta þeir sem em í
ástarsorg leitað læknis-
hjálpar.
Þýski lækn-
irinn Birgit
Delisle hef-
ur opnað
deild á
Schwabing-
spítalanum. Hún segir að
unglingar með brostin
hjörtu verði líklega tíðustu
gestirnir. „Að vera í ástar-
sorg getur leitt til ýmissa
vandamála, bæði líkam-
legra og andlegra. Fólk
missir stundum matarlyst-
ina. Einnig getur það tekið
slæmar ákvarðanir þegar
það flnnur til sársaukans í
sorginni," segir Delisle.
[ Rannsókn í fullum
gangi Breska lögreglan
hefur handtekið þrjá I
sambandi við ránið.
Tvær konur og einn karlmaður hafa verið handtekin í sambandi
við ránið úr peningageymslu í Kent á Englandi. Ránsfengurinn
er einn sá mesti í sögunni, jafnvirði tæplega 5,8 milljarða krðna.
Mun það vera næststærsta bankarán sögunnar. Hið stærsta var
þegar írakski rrkisbankinn var tæmdur árið 2003. Menn eru þó
ekki sammála um hvort það teljist sem eiginlegt bankarán.
Lögreglan rannsakar málið af
fullum krafti. Auk þess að hafa
handtekið þrjá aðila, hafa lögreglu-
menn fundið þrjá bfla sem tengjast
ráninu. Einnig hafa rúmar 230 millj-
ónir króna verið settar til höfuðs
hinum grunuðu.
Þremenningamir vom hand-
teknir á fimmtudag. 29 ára karl-
maður og 31 árs kona vom hand-
tekin í Lundúnum eftir að konan
hafði reynt að leggja tæplega 700
þúsund krónur inn á bankareikning
í Portman-útibúinu í Kent á Eng-
landi. Peningunum var pakkað inn í
þar til gerð umslög og vom þau
merkt útibúinu sem ránið átti sér
stað í.
Á fimmtudagskvöld var önnur
kona handtekin. Hún er 41 árs. Hún
var handtekin í suðurhluta Lúnd-
únaborgar. Lögreglumenn frá Scot-
land Yard handsömuðu konuna.
Hún er gmnuð um að hafa verslað
með þýfi að sögn lögreglu.
Ótrúlegt rán
Mörgum brá í brún þegar spurð-
ist út að ránið hefði verið framið, á
síðastliðið þriðjudagskvöld, ekki
síst fyrir hversu vel skipulagt það
virðist hafa verið. Klukkan 18.30 var
framkvæmdastjóri peningageymsl-
unnar í Kent á Englandi, Colin
Dixon, stöðvaður af tveimur mönn-
um er hann taldi lögreglumenn.
Talið er að ránsfeng-
urinn hafi alls verið
rúmlega 5,8 milljarð-
arkróna,
Þeir voru á hvítri Volvo-bifreið. Bfll-
in var vel dulbúinn sem lögreglu-
bfll. Á þaki og í grilli bílsins vom blá
ljós. Mennimir vom einnig dulbún-
ir sem lögreglumenn. Þeir rændu
manninum.
Á svipuðum tíma fóm aðrir
menn heim til Dixon-fjölskyldunn-
ar. Þeir þóttust einnig vera lögreglu-
menn. Þeir sögðu Colin hafa lent í
bflslysi og báðu konu hans, Lynn,
og átta ára son, Craig, að koma með
sér. Þau vom síðan handsömuð og
bundið fyrir augu þeirra. Hinir dul-
búnu lögreglumenn héldu þá á
bóndabæ, sem ekki er vitað hvar er.
Þar héldu þeir mæðginunum í gísl-
ingu.
Miklir peningar
Síðan var haldið í peninga-
geymsluna. Svo vildi til að breski
ríkisbankinn var með seðla geymda
þar sem áttu að fara til skoðunar.
Því var óvenjulega mikið í hvelfingu
peningageymslunnar. Talið er að
ránsfengurinn hafi alls verið rúm-
lega 5,8 milljarða króna virði.
Þegar í peningageymsluna var
komið tóku hinir vopnuðu ræningj-
ar stjórn á staðnum. Þeir bundu og
kefluðu alla 14 starfsmenn geymsl-
unnar. Síðan létu þeir fram-
kvæmdastjórann opna fyrir hvítum
Renault-trukki. Honum var komið
fyrir við hvelfinguna. Ræningjarnir
tóku sér svo sinn tíma í að hlaða
trukkinn. Alls er talið að þeir hafi
verið rúman klukkutíma að.
Klukkustund eftir að ræningjarnir
yfirgáfu geymsluna tókst einum |
starfsmanninum að losa sig og
hafði hann samband við lögreglu.
Bílar fundnir
Hvíta Volvo-bifreiðin sem talið
er að þjófamir hafi dulbúið sem
lögreglubfl fannst á fimmtudags-
kvöld. Hann stóð þá í ljósum log- f
um. Silvurlituð Nissan-bifreið sem
Colin Dixon ók, áður en honum var
rænt, fannst einnig fyrir utan krá,
skammt frá staðnum sem honum
var rænt á.
Sendibfll, sem talið er að þjóf-
arnir hafi notað til þess að ferja
mæðginin Lynn og Craig á bónda-
bæ sem ekíd er hvar er, fannst
einnig fyrir utan krá. Rannsóknarlið
bresku lögreglunnar er nú að skoða
alla bflana í leit að sönnunargögn-
um. Hvíti Renault-trukkurinn er
ennþá ófundinn.
Breskyfirvöld lofa hverjum þeim
sem veitir upplýsingar sem leiðir til
handtöku þjófanna 230 milljónum
króna. Vonast er til þess að ein-
hverjir sem tengdir eru þjófunum
muni ásælast slíkar fjárhæðir og
leysi frá skjóðunni.
kjartan@dv.is
I Nákvæmt Lögregian |
j leitar nú aðöllum
j hugsaniegum sönn-
j unargöngum.
j Á leið á ránsstað Hér
| sést hvíti vörublllinn sem
| þjófarnir notuðu til þess
I að ferja ránsfenginn.
Ástrali kom í leitimar eftir fimm ár
Kærður fyrir að veraálífi
Ozzy talar inn á staðsetningartæki
Ozzy finnur bestu leiðina
Ástralinn Harry Bentley Gordon
var í gær dæmdur sekur fyrir trygg-
ingasvik. Árið 2000 var Gordon úr-
skurðaður látinn, talinn hafa farist í
slysi sem gerðist á hafi úti. En í raun
flutti hann ásamt fjölskyldu sinni til
Nýja-Sjálands. Þar tók hann upp
nafnið Robert Motzel og lifði í hin-
um mestu makindum.
Samviskan nagaði Gordon þó all-
an tímann. Hann ákvað því að snúá
aftur til síns heima í lok síðasta árs.
Við réttarhöldin sagðist hann hafa
viljað útkljá þetta mál. „Ég vildi klára
þetta mála lagalega séð. Ég flúði því
ég hélt að þetta væri lausn á mínum
vandamálum. Það voru aftur á móti
mistök, greinilega." Enn á eftir að
ákvarða hversu löng fapgelsisvist
Gordons vérðuf. ' * !
Honum hefur einnig verið skipað
að greiða rúma milljón króna til upp
í kostnaðinn sem fór í að leita að
honum. Eiginkona og dóttir Gor-
dons hafa einnig verið kærðar, en
réttarhöld þeirra hefjast ekki strax.
.... ia i iiii aldUi J1 UJZOV fld ,|3V
Nú getur fólk látið rokkararann
Ozzy Osboume segja því hvert best er
að fara. Hægt er að kaupa staðsetn-
ingartæki sem Ozzy talar inn á. Á
skjánum á tældnum má sjá kort og
geta þeir sem nota tækið valið sér
upphafs- og endapunkt. Tækið hjálp-
ar þeim svo að finna bestu ieiðina að
endastöðinni. Hægt er að kaupa tæk-
ið með mismunandi röddum, en
nýjasta tegundin - einnig sú vinsæl-
asta - er með Ozzy Osboume. Orða-
val rokkarans er aftur á móti ekki fal-
legt: „Nú em 400 metrar í fjandans
endapunktinn." Einnig verður Ozzy
pirraður ef að tækið missir samband
við gervihnött. „Ég er búinn að missa
andskotans sambandið."
Chris Hilton, yfirmaður fyrirtækis-
ins Voice Skins sem framleiðir vör-
una, segir að hægt sé _að fá tvær teg-
undir af tækjum sem Ozzy talar inn á.
,,Hægt er að fá útgáfu með öllum
blótsyrðunum en einnig er hægt að
kaupa tækið án blótsyrðanna. Þetta er
okkar vinsælasta vara í dag.“
Einnig er hægt að kaupa tæki sem
Sharon Osbourne, kona Ozzys, talar
inn á. „Snúðu við, asninn þinn,“ heyr-
ist reiðilega í henni.
Ratvís Ozzy Osbourne er
greinilega ratvís maður.
wmm
Nýja-Sjáland Gordon lifði
góðu llfí á Nýja-Sjálandi á
meðan hann var talinn
dáinn I heimalandiilnu.
in verg