Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2006, Side 20

Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2006, Side 20
20 LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 2006 Sport DV KR Reykjavík- urmeistari kvenna Kvennalið KR í knatt- spymu varð í fyrrakvöld Reykj avíkurmeistari eftir sigur á 2-1. um jafntefli leiknum kom Björk dóttir þeim strax á 12. mínútu leiksins en Hólmfríður Magnúsdótt- ir jafnaði metin og Katrín Ómarsdóttir skoraði sigur- markið áður en fyrri hálfleik lauk. Valsstúlkur reyndu hvað þær gátu í síðari hálf- leik og skutu til að mynda í þverslá úr aukaspymu en allt kom fyrir ekki. Middles- brough mætir Roma Grétar Rafn Steinsson og félagar í AZ Alkmaar duttu úr Evrópu- keppni fé- lagsliða í fyrrakvöld eftir fram- lengdan leik gegn Real Betis frá Spáni. Betis mætir Steaua Búkarest í næstu umferð en Middles- brough, sem vann Stuttgart í 32-liða úrslitunum, mætir AS Roma. Bolton, sem gerði markalaust jafntefli gegn Marseille í fyrri leik liðanna, tapaði í Frakklandi í fyrra- kvöid en Frakkamir mæta næst Zenit frá St. Pétursborg. Maradona fann arftaka sinn Knattspymugoðsögnin Diego Maradona segist hafa fundið arf- taka sinn á vellinum og heitir hann Lionel Messi. Sagði Mara- dona þetta eftir að hafa fylgst með leik Chelsea og Barcelona í vikunni þar sem hinn 18 ára gamli Messi fór á kostum. „Messi er besti leikmaður heimsins ásamt Ronaldinho. Mér finnst honum svipa mjög til mín á vellinum," sagði Maradona sem lék einnig eitt sinn fyrir Barcelona. Messi verður væntanlega með Argentínu á HM í sumar. Dreqið í riðli Engíands Samningafundur fulltrúa landsliða í riðli Englands í undankeppni EM 2008 fór fram í Zagreb í fyrradag en bar engan árangur. Eng- lendingar vom reyndar búnir að frnna lendingu hvað sína leiki varðar en hin liðin í riðlinum, Rússland, Króatía, Andórra, Eistland, ísrael og Makedónía, gátu ekki komist að niðurstöðu. Búist er við að Englendingar vilji byrja á heimavelli svo að nýr landsliðsþjálfari geti helst byrjað á sigri. Haukar og Stjarnan mætast í fyrsta sinn í bikarúrslitum karla í Laugardalshöll- inni í dag. Haukar unnu bikarinn síöast fyrir fjórum árum en það eru liðin 17 ár frá því að Stjarnan vann sinn síðasta bikarmeistaratitil. 1 Hvor tekur bikarinn? Fyrirliðar 1 Stjörnunnar og Hauka, Arnar Freyr J Theódórsson og Birkir Ivar Guð- | mundsson, vonast báðir eftir að lyfta J bikarnum í leikslok i dag. 1 ÍP I . - -Ir-. |||| sz/yÆ „ \ i í • S m ÉSm íTíÍiÍTlj vr V / mm niDíRRHiinr J |I iB | III 1 1 II II E p ii11p11j i i 1 jiijjjjij Úrslitaleikur karla í SS-bikarnum í handbolta fer fram í Laugar- dalshöllinni í dag og hefst leikurinn klukkan 15.45. Þetta verður fjórði bikarúrslitaleikur Hauka en sá fimmti hjá Stjörnunni sem hefur ekki unnið stóran titil í karlahandboltanum síðan 1989 eða í 17 ár. Haukarnir hafa unnið fslandsmeistaratitilinn undanfarin þrjú ár og urðu síðast bikarmeistarar fyrir fjórum árum. Það er von á spennandi leik ekki síst þegar litið er á að hvorugt lið- anna hefur tapað leik síðustu tíu vikur og að liðin skildu jöfn, 28-28, í einu viðureign liðanna til þessa í vetur en sá leikur fór fram á Ásvöll- um. Sá leikur markaði líka ákveðin tímamót í tímabil Stjörnumanna en þetta var einmitt fyrsti leikurinn í taplausu hrinunni sem telur nú 8 deildar- og 3 bikarleiki. Æfðu vel fyrir erfitt prógramm Haukar æfðu vel í EM-fríinu og það hefur skilað sér í fjórum góð- um sigrum í síðustu leikjum og lið- ið er komið á toppinn í DHL-deild- inni. Páll Ólafsson, þjálfari liðsins er líka ánægður með þróun mála. „Við æfðum vel í fríinu því að við vissum að við vorum að fara í mjög erfitt prógram eftir áramót. Það var ekki bara undanúrslitaleikur í bik- arnum því við vorum einnig að spila toppleiki við Val og Fylki í deildinni. Við vissum það að ef við færum að misstíga okkur í ein- hverjum þessara leikja þá værum við bara út úr íslandsmótinu eða út úr bikarnum þannig að við tókum verulega á í janúarmánuði og það hefur verið að skila sér,“ segir Páll sem sér margt líkt með liðunum. Það lið sem spilar betri vörn tekur bikarinn „Bæði lið hafa ekki tapað leik eftir áramót og virðast bæði vera á góðu skriði þessa dagana. Þau eiga það líka sameiginlegt að vera mikið breytt frá því á síðasta ári og það tók nokkurn tíma að slípa liðin saman,“segir Páll og bætir við: „Við þurfum að klára okkar hluti og það er ljóst að það lið sem spilar betri vörn það tekur bikarinn. Ég þarf að koma mínum mönnum í skilning um það. Það er löng leið frá því að þessi bikarúrslitaleikur eigi eftir að þróast eins og sá síðasti hjá Hauk- um því þessi leikur verður mjög jafn,“ sagði Páll Ólafsson sem gæti orðið fyrsti þjálfarinn til þess að vinna bikarinn á hækjum. „Ég þekki þá sögu nú ekki alveg," sagði Páll í léttum tón en hann sleit hásin á æfingu á dögunum. Ellefu leikir í röð án taps „Það er alltaf gaman að fá tæki- færi til þess að komast í svona leik og við erum búnir að vinna vel fyr- ir því. Við erum komnir í úrslita- leikinn og ætlum að fara alla leið,“ segir Sigurður Bjarnason, þjálfari Stjörnunnar en Stjarnan hefur slegið út Val (a og b), Þór Akureyri og ÍBV á leið sinni í Höllina. „Við erum því með nýtt lið og það hefur tekið tíma að spila okkur saman. Við lendum síðan í meiðslum í upphafi móts sem heyra nú von- andi sögunni til þannig að þetta er allt að korna," segir Sigurður um Stjörnuliðið í vetur en Stjarnan hefur ekki tapað í síðustu 11 leikj- um sínum í deild og bikar. Sálfræðistríð „Þetta verður mikið sálfræði- stríð því það er ljóst í mínum huga að þeir sem koma betur undirbún- ir til leiks þeir standa uppi sem sig- urvegarar. Þetta er því spurning um hvernig hausinn er stilltur hjá mínum strákum," segir Sigurður sem er að sjálfsögðu sáttur við frammistöðu Patreks Jóhannes- sonar í síðustu leikjum. „Það er mjög eðlilegt að menn séu að tala um Patta því hann hefur spilað gríðarlega vel og er kominn í gott form. Ég geri líka kröfur til hans.“ Lyfti sér yfir Héðin Gilsson Sigurður var vissulega með í slagnum þegar Stjarnan vann sinn síðasta bikarmeistaratitil en hann var þá markahæstur með sex mörk í 20-19 sigri og skoraði mikilvægt mark á lokasprettinum. „Ég man vel eftir sigurmarkinu sem ég skor- aði þegar ég lyfti mér yfir Héðin Gilsson, hægra megin og það er al- veg ljóst að maður man eftir svona leikjum og þá sérstaklega ef að þeir vinnast," sagði Sigurður að lokum. ooj@dv.is Haukar og ÍBV mætast í bikarúrslitaleik kvenna í Höllinni í dag Fjórði bikarúrslitaleikur félaganna á sex árum Haukar og ÍBV hafa spilað sex af tíu úrslitaleikjum kvennahandbolt- ans undanfarin fimm tímabil og handboltaáhugamenn eiga því von á frábærum úrslitaleik í SS-bikar kvenna sem hefst klukkan 13.15 í Laugardalshöllinni í dag. Liðin hafa mæst þrisvar sinnum í úrslitum ís- landsmótsins á þessum tíma en mætast nú í íjórða sinn í bikarúrslit- unum frá árinu 2001. Guðmundur Karlsson gerði Hauka að íslandsmeisturum í fyrra og stefnir að því að vinna fyrsta bik- armeistaratitilinn sem þjálfari en hann hefur gert bæði karla- og kvennalið Hauka að íslandsmeistur- um. „Bæði þessi lið eru mjög sterk og ég er viss um að þetta verður mjög skemmtilegur leikur. Þær eru með gott lið og við þurfum að spila góðan handbolta til þess að vinna þær og við ætlum að gera það,“ segir Guð- mundur Karlsson, þjálfari Hauka um leikinn. „Síðustu leikirnir okkar í deildinni hafa verið hreinlega lélegir og við þurfum að hysja pínulítið upp um okkur brækurnar. Bikarúrslitin tikka kannski aðeins bak við eyrað en það er bara hálf afsökun fyrir þessari spilamennsku," segir Guð- mundur sem treysúr á að reynslu- miklir leikmenn liðsins skili sínu í dag. „Ég er með marga sigurvegara í mínu liði og treysti á að þær komi út til þess að vinna þenrian leik í dag,“ bætti Guðmundur við. Þetta verður þriðji leikur Hauka og ÍBV í vetur. ÍBV vann fyrsta leik- inn í Eyjum með þremur mörkum, 30-27, en Haukar unnu viðureign liðanna á Ásvöllum fyrir imánuði með 8 marka mun, 36-28. „Við töp- uðum mjög naumt í Eyjum og náð- um muninum niður í eitt mark í lok- in en unnum síðan sannfærandi á Ásvöllum. Leikir vetrarins hafa því verið einn jafn leikur og annar ójafn en engu að síður er það ljóst að liðin eru mjög jöfn aö styrkleikai'/i.segix Guðmundur að lokum.:^;' '

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.