Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2006, Side 30
30 LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 2006
Helgarblað I>V
Forríkur
prins
heillast
af Miller
Leikkonan breska Sienna
Miller eignaðist konunglegan
aðdáanda um síðustu helgi.
Leikkonan var úti að
skemmta sér með vinum sín-
um þegar þau rákust á
son Sultansins af Bru-
nei,Abdul Azim
prins. Hinn forríki
prins var svo heillaður
af Millerað hann
bauðsttil að borga
reikninginn fyrir hana og
vini hennar, hvorki meira
né minna en 14 þúsund
punda reikning. „Prins-
inn rakaugun í Siennu
og leit ekki af henni allt
kvöldið," sagði barþjónn.
Skemmtu
sér saman á
ólympíuleik-
unum
Tveir vinsælustu feður Evrópu
skemmtu sér vel á vetrarólympíuleikun-
um. Friðrik krónprins Danmerkur og
Hákon krónprins Noregs voru myndaðir
saman þar sem þeir hlógu og skemmtu
sér á meðan þeir fylgdust með krullu-
keppni kvenna.Áhorfendur sögðust ekki
hafa heyrt hvað prinsarnirtveir ræddu
en þeir hefðu brosað og hlegið dátt og
Friðrik hefði greinilega sagt brandara
sem þeir skemmtu sér yfir.
Snobbaða
prinsessan
platar
Snobbaða
prinsessan
Michael, eig-
inkona
frænda Elísa-
betar drottn-
ingar,vakti
mikla athygli
á tískusýn-
ingu í London
á dögunum.
Samkvæmt
slúðri ÍThe
SundayTel-
egraph beið
prinsessan í bíl sinum þangað til rétt
áður en tískusýningin byrjaði. Michael
lét bílstjóra sinn kalla á sig þegaröll
stóru nöfnin höfðu komið sérfyrir (
sætum sínum en þá stökk hún inn og
settist í sæti sitt. 30 sekúndum seinna
byrjaði sýningin svo gestir töldu víst
að beðið hafði verið eftir prinsessunni.
Albert vildi
keppa
Albert fursti af Mónakó fylgdist
með bobsleðaliði landsins á vetrar-
ólympfuleikunum. Samkvæmt vinum
hefði prinsinn ekkert á móti því að
keppa fýrir
landiðenda
keppti hann
frá árinu
1988 til
2002. „Hann
sagðist öf-
unda okkur.
Hann sakn-
aði keppn-
innar og
vildi óska
að hann
væri aftur kominn (liðið," sagði Pat-
rice Servelle (bobsleðaliði Mónakó.
„Hann sagðist vera með okkur (anda
en að hann vildi miklu frekar vera
með okkur á sleðanum," sagði Ser-
velle áður en hann renndi sér af stað.
Karl Gústaf
verður sex-
tugur
Svíar undirbúa
nú veislu (tilefni
sextugsafmælis
Karls Gústafs kon-
ungs.Kóngurinn
verður sextugur f
aprfl en á þessu
ári munu hann og
Silvía drottning
einnig halda upp
á þrjátíu ára brúðkaupsafmæli sitt.
Gestalisti afmælisveislunnar hefur
ekki verið birtur en talið er að fjöldi
konunga og fyrirmenna muni koma
saman (sænsku höfuðborginni þann
30.apr(I.Um það bil 10 þúsund aðdá-
enda heiðruðu konunginnfýrirfram-
an kastalann á fimmtugsafmæli hans
og búist er við að minnsta kosti sama
fjölda í ár.
MiUjarðamæringurinn og tengdafaðir Harry prins hefur losar sig við umdeilda
viðskiptavini í von um að greiða leið dóttur sinnar inn í bresku konungsQöl-
skylduna. Karl Bretaprins hefur boðið Chelsy Davy með í skíðaferð með fjöl-
skyldunni. Kunnugir segja að Karl sé að verðlauna son sinn fyrir góðan árangur
í skólanum.
Karl prins vihurkennir
samband Harry og Chelsy
Chelsy Davy, kærustu Harry
Bretaprins, hefur verið boðið með
bresku konungsfjölskyldunni í
skíðaferð til Sviss yfir páskana. Vil-
hjálmur prins og Kate Middleton
munu einnig skella sér með í ferð-
ina. Talið er að Cheisy hafi verið
boðið með til að verðlauna Harry
fyrir góðan árangur í Sandhurst
herskólanum en prinsinn kláraði
nýverið 44 vikna langt og strangt
námskeið í skólanum. Með boðinu
er einnig talið að Karl prins hafi lagt
blessun sína yfir sambandið. Vinir
parsins segja þau í skýjunum yfir
boðinu. „Hún er mjög ánægð enda
hefúr árið verið þeim báðum erfitt.
Hver einasta mínúta sem þau eyða
saman er þeim mjög mikilvæg/'
sagði vinkona Harry og Chelsy.
Tengdó tengdur Mugabe
Dagblaðið The Mail on Sunday
segir föður Chelsy hafa losað sig
undan tengslum við umdeilt fyrir-
tæki sem græðir á veiðum á sjald-
gæfum dýrum. Dagblaðið veltir fyr-
ir sér hvort Charles Davy, faðir
Chelsy, sé með því að greiða leiðina
fyrir dótturina inn í bresku kon-
ungsfjölskylduna og hvort Harry og
Chelsy séu á leiðinni upp að altar-
inu. Charles Davy er sjáifúr sagður
hafa hringt í ritstjóra blaðsins með
fréttirnar enda hefur The Mail on
Sunday verið iðið við að segja frétt-
ir af sambandi hans við umdeilda
afríska viðskiptamenn en Charles
tengist meira að segja hin-
um illa einræðisherra Ro-
bert Mugabe, forseta
Zimbabwe. „Umdeild við- ..
skiptatengsl herra Davy
hafa verið í fréttunum. Ef '
dóttir hans hefur einhvern
áhuga á að giftast inn í
bresku konungsfjölskyld-
una verður hann einfaid-
lega að gefa þessi um-
deildu viðskiptatengsl sín
upp á bátinn," sagði heim-
ildamaður blaðsins.
Dugleg að skemmta
sér saman
Harry og Chelsy hafa
verið saman í næstum tvö ár.
Mestum tíma hafa þau þó eytt í
sundur en Chelsy býr í Afríku. Þau
hafa þó verið dugleg að hittast og
kunna að skemmta sér vel saman
eins og sést hefur á fréttum af þeim
þar sem bjór, áfengi og sígarettur
eru ávallt innan handar.
Harry prins
Chelsy Davy, kær-
ustu Harry Breta-
prins, hefur verið
boðið með bresku
konungsfjöl-
'| skyldunni ískiða-
ferð til Sviss yfir
I paskana.
Chelsy Davy Dagblað-
ið veltir fyrir sér hvort
Charles Davy, faðir Chel-
sy, sé með þvl að greiða
leiðina fyrir dótturina
innlbresku konungs-
fjölskylduna og hvort
Harry og Chelsy séuá
leiðinni upp að altarinu
Vilhjálmur prins stóöst fyrstu prófin í Sandhurst herskólanum
Oaílg
Abattle of Wifls
--Micr 74 houre nn tlie irarch |
r, dppi flnd snow. prince’s
rcmive istestedtothe IWt
Vilhjálmur í frábæru formi
Vilhjálmur prins stóðst fyrstu prófin í
Sandhurst herskólanum. Prinsinn var einn af
fáum nemendum sem náði að klára hin lík-
amlega erfiðu próf fýrir flugherinn. Hinn 23
ára prins þurfti að ganga úti við erfiðar að-
stæður í 60 klukkutíma án svefns og matar.
„Það náðu ekki næstum allir. Vilhjálmur er í
frábæru formi og náði glæsilegum árangri,"
sagði ókunnur heimildamaður. Prinsinn var
myndaður í fullum herklæðum. Á tíma virtist
sem hann væri búinn á því. Hann datt niður á
hnéin en eftir örstutta hvfld reis hann upp aft-
ur og hélt ferðinni áfram.
Veðmangarar í Bretiandi telja um 50% lík-
ur á að prinsinn gangi að eiga kærustuna sína
Kate Middieton á næstunni. Bretar telja að
um brúðkaup ársins verði að ræða og lfkja
Kate við Díönu prinsessu. Kærustuparið býr
saman í húsi Karls Bretaprins. Vilhjálmi hefur
verið bannað að gista í íbúð Kate í London þar
sem myndir af húsinu hafa birst í breskum
blöðum.
Prins Veðmang-
arar I Bretlandi
telja um 50% lík-
ur á að prinsinn
gangi að eiga
kærustuna sina
Kate Middleton
d næstunni.
Hermaður
Prinsinn var
myndaður I full-
um herskrúða.