Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2006, Side 46

Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2006, Side 46
46 LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 2006 Helgarblað E»V ‘íslendingar hafa um árabil leitað í yl og suðræna stemmingu til Kanaríeyja meðan vetrarstormar i ellilífeyrisþegar sæki Kanarí heim. Nú er á Kanaríeyjum fólk á öllum aldri enda eitthvað við allra mánuðina. Það er því óneitanlega stórt samfélag og ýmislegt sem gerjast á staðnum. Fjöldi fólks h< Fleiri velja þó enn sem komið er að leigja sér húsnæði í nokkra mánuði enda leiga hagstæð. Ekkert plebbalegt við Kanarí Stemmingin a Ensku ströndinni nr Blaðamaður DV hafði viðdvöl á Ensku ströndinni á Gran Canaria um tveggja vikna skeið og varð margs vís- ari um það sem þar er að gerast. For- dómamir sem aðeins örlaði á fyrir ferðina vom jarðaðir á fyrsta degi, *«ida fáránlegt að heimsækja nýjan stað með fyrirfram ákveðnar hug- myndir. Það kom líka í ljós að það er ekkert plebbalegt við að fara til Kanarí. Það er hins vegar nauðsynlegt að gera sér grein fyrir að Enska ströndin er fyrst og fremst ferðamannastaður þar sem túrisminn blómstrar. Sömu- leiðis að ekki verður undan því kom- ist að detta um íslendinga í hvert sinn sem maður rekur út nefið, hvort sem er í verslunum, á veitingastöðum eða á ströndinni. Júmbóið, Klörubar og Örvar Kristjáns Þeir sem hafa farið margar ferðir á JEnsku ströndina þekkja hana eins og lófann á sér. Þeim líður alltaf eins og þeir séu að koma heim. Fyrir nýlið- ann tekur nokkra daga að átta sig á bænum og verða þokkalega ratfær, en þá fer hann líka að tala eins og hinir, nefnir staði og strendur eins og ekkert sé og horfir spekingslega á nýkomna meðan hann deilir vitneskjunni um besm veitingastaðina og skemmtileg- ustu „showin“. Þeir sem koma með íslenskum ferðaskrifstofúm fá á fyrsta degi allar helstu upplýsingar. Þeir sem em á eigin vegum verða hins vegar að átta sig smám saman. Þeim verður þó fljótlega ljóst að Júmbóið, Klömbar, OK, Græna teppið, örvar Kristjáns og Bjami Tryggva em íslendingum töm á tungu. Helga nuddari, Matti hár- greiðslu, Andrea fótaaðgerða og ís- landsvinurinn Harrý heyrast líka oft nefnd. Þá er þó bara fátt eitt talið af því fólki sem kemur við sögu því far- arstjórar og skemmtanastjórar ferða- skrifstofanna gegna stórum hlutverk- um. Fóru í gang eftir 11. september Kjartan Traustí Sigurðsson hefur verið fararstjóri á sólarströndum frá árinu 1988, nánast án þess að koma heim. Nú starfar hann fyrir Úrval-Út- sýn á Kanarí og trúlega em fáir eldri í bransanum. Hann segir margt hafa breyst á Kanarí á þeim áratugum sem hann hefur verið viðloðandi. „Það er kannski helst að áður fyrr kom hér að- allega eldra fólk, enda ekki talið að aðrir ættu heimangengt á vetuma. Gistingin á þessum fyrstu árum var oft léleg en það hefur gjörbreyst svo og aldursbreiddin. Nú sér maður í hverri viku fjölskyldufólk með böm og ungt fólk sem kemur til að skemmta sér. Mesta breytíngin hér varð þó eftír 11. september, en þá tóku þeir sig tíi, vitandi að fáir færu vestur, og byggðu allt upp. Nánast all- ir staðir hér á Ensku ströndinni vom orðnir þreyttir og komnir til ára sinna en það hefur allt verið tekið í gegn. „ Kjartan segir vinsældir Kanaríeyja enga tilviljun og bendir á að Geim- ferðastofnun Bandaríkjanna telji Hawaí og Kanarí veðursælustu staði jarðarinnar. „Það er sem betur fer vor í íslenska ferðabransanum og núna er í boði beint flug árið um kring og ekki seinna vænna. í sumar verðum við í Úrval-Útsýn og Sumarferðum á Lans- arote og Tenerife, Heimsferðir verða á Lansarote og svo er ferðaskrifstofan Apollo með beint flug hingað niður eftír," segir Kjartan.'1 Bingó með gamla fólkinu Ferðaskrifstofurnar bjóða við- skiptavinum sínum afar góða þjón- ustu því fyrir utan skemmtiferðir um eyjamar og til Afríku er stanslaust fjör í gangi, ekki síst fyrir eldra fólkið. Svona rétt til að staðfesta það fer að streyma inn fólk á Klömbar þar sem samtalið við Kjartan fer fram og áður en blaðamaður fær rönd við reist er hann kominn í bingó með gamla fólk- inu. Didda skemmtanastjóri stjómar bingóinu af röggsemi og vinningar em gjafabréf frá Harry. Það verður því ekki hjá því komist að heilsa upp á Harry sem hefur þjón- að íslendingum dyggilega í gegnum árin og talar meira að segja nokkra ís- lensku. Eftír að hafa villst örlítíð af leið hljóma skyndilega íslenskar fréttir hátt og snjallt yfir götuna og eðlilegt að álíta að þar sé Harry fundinn. Sem stendur heima því Harrý er alltaf með íslenskt útvarp í botni fyrir utan versl- unsína. Harrý sem er fæddur í Bombay er í miklum önnum enda verslunin full af fólki en hann gefur sér tíma í örlítið spjall. „Alltaf bissí, bissí, bissí" „Ég búinn að þjónusta íslendinga frá árið 1982," segir Harrý. „Fyrst koma bara gamalt fólk en Icelandair mælti með mér og ég reyna að gera alla glaða með góð þjónusta og góð gæði. Ég tala íslenska því gamla fólkið sem kom tala bara íslenska og ég bara læra samt aldrei fara til ísland. Ég alltaf á leiðinni, bara alltaf bissí bissí bissí og hafa engan tíma," segir Harrý hlæjandi. „Þú skrifa ég er með 100% gæði og ef ekki allt í lagi ég gefa pen- inga til baka." Harrý verslar með raftæki og fatn- að, meðal annars leðurfamað, og er með tvær íslenskar starfsstúlkur í vinnu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.