Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2006, Síða 54

Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2006, Síða 54
54 LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 2006 <sr Menning DV Umsjón: Þúrunn Hrefna Sigurjónsdóttir hrefna@dv.is Yoko elskar friðinn ennþá f dag kl. 16 boðar Mermingar- og ferðamátaráð Reykjavíkur til blaðamannafund- ar með Yoko Ono á Kjarvaisstöðum. A biaðamannafundinum mun Yoko upplýsa gesti um staðsetningu fríðarsúiu sem hún hefur ánafnað Reykjavíkurborg. Fríð- arsúian verður úr gleri og mun gnæfa hátt í borgarlandslaginu. Hún verður lýst upp að innan og utan og mun, vegna einstakrar staðsetningar sinnar á hnettin- um, varpa Ijósi friðarins á allar þjóðir heims. Inn i súluna verða settar fríðaróskir af Óskatréi sem Yoko Ono setti upp víða um heim og fólk festi . \ á óskir sínar. Fríðaróskirnar koma hvaðanæva að úr heimin- 2 \ um en friðarsúlan í Reykjavfk mun verða eina verkið slnn ar tegundar. Utan á súiuna verða greyptar tvær Ijóð- línur á ýmsum tungumálum. önnur er fengin úr einu frægasta lagi John Lennons: Imagine all the people liv irvg life in peace. Hin er friðarboðskapur frá Yoko Ono sjálfri: A dream you dream together is reality. Yoko ætiar að ávarpa blaöamenn og svara spumingum þeirra, en hún veitir engin Yoko Ono ásamt John Lennon [ Þau 9erðu ýmislegt fyrir friðinn. Nú | hefur Yoko gefið Reykjavíkurborg friðarsúlu úr gleri. Ólafur Kjartan Sig- urðsson barítón Einn af Vormönnum Islands. Söngfuglará flugi um landið Nú eru þeir sem kalla sig Vor- menn íslands, komnir á blússandi tónleikaferð um landið. Hópinn skipa tenórarnir Jóhann Friðgeir Valdimarsson og Óskar Pétursson, Ólafur Kjartan baritón ásamt Jónasi Þóri píanóleikara. Tónleikaferðin byrjaði á Hús- vfk, síðan var haldið til Dalvíkur ^og þriðju tónleikarnir voru á Ak- ureyrí. í Reykjanesbæ háldú þeir fjórðu tónleikana og má segja að landsmenn hafi tekið þeim með opnum örmum, því húsfylii hefur verið á öllum stöðum. Hópurinn hefur ákveðið að halda áfram tónleikaferðalaginu, en á morgun munu þeir halda tónleika í Borg- arneskirkju kl. 16 og í Grundar- fjarðarkirkju kl. 20. i efnisskrá þeirra félaga eru aríur, sönglög ísiensk sem íd ásamt söngleikjatónlist. uglamir lofa afar fjölbreyttrí kemmtilegri efhisskrá, enda iressir og kátir og alltaf stutt í grínið hjá þeim. Asgeir Baldurs fram- kvæmdastjóri VÍS og Guð- Ijón Pedersen leikhússtjóri lUhdirritun samningsins. VÍS styrkir Belgísku Kongó VÍS hefur gengið til samstarfs viö Borgarleikhúsið um sýningar . á Belgísku Kongó og var sam- *" starfssamningur undirritaður á forsal Borgarleikhússins, mið- vikudaginn 1. febrúar síðastlið- inn, að viðstöddum gestum VÍS. Belgíska Kongó eftir Braga Ólafsson gekk fyrir fullu húsi í Borgarleikhúsinu þau tvö leikár sem það var sýnt. Vegna fjölda áskorana var ákveðið að hefja sýningar að nýju, þriðja leikárið í röð. Eggert Þorleifsson hlaut Grímuverðlaunin fyrir bestan leik í aðalhlutverki karla vorið 2004 fyrir túlkun sína á hinni fjör- gömlu Rósalind. Auk Eggerts leika í sýningunni: Ilmur Kristjánsdóttir, Ellert A.Ingimundarson og Davíð Guð- þrandsson. Leikstjóri er Stefán Jónsson. Leikritið Hungur eftir Þórdísi Elvu Þorvaldsdóttur Bachmann í leikstjórn Guð- mundar Inga Þorvaldssonar var frumsýnt á Litla sviði Borgarleikhússins fyrir viku. Næstum sársaukafullt á að horfa, fannst Þórunni Hrefnu Sigurjónsdóttur, sem sá verkið í fyrrakvöld, en ekki voru allir í salnum sammála. Ohugi HjDMkUJJ I Elma Lísa Gunnarsdóttir í hlutverki sínu í Hungri I Upptrekkt og örvæntingarfuii, | en skilar stnu með prýði. . Stjórn, stjórnun. Vald og valda- leysi, sársauki og mannleg niður- læging eru lykilorðin að leikverk- inu Hungri, eftir Þórdísi Elvu Þor- valdsdóttur Bachmann. Leikritið fjallar um vinkonurnar Emmu (Ásta Sighvats Ólafsdóttir) og Dísu (Elma Lísa Gunnarsdóttir) sem eru það sem kallað er „pro- ana" það er anórexíusjúklingar og ánægðar með það. Eins og kom ff am í viðtali við höfundinn Þórdísi Elvu í DV um daginn, þá eru hópar slíks fólks (einkum kvenna) til um allan heim og halda m.a. út fjöl- breytilegum vefsíðum. Átröskunar- sjúkdómar á borð við anórexíu og búlimíu eru hafnir upp til skýja sem ákjósanlegur lífsstíll eða tæki til þess að ná stjórn á lífi sínu. Vin- konurnar kynnast í einhvers konar meðferð fýrir átröskunarsjúklinga, en álcveða í sameiningu að þær vilji halda áfram að svelta sig. Ólíkt hafast mennirnir að, vegna þess að hinar tvær persónur verksins, þau Ingibjörg (Helga Braga Jónsdóttir) og Hallur (Þor- steinn Bachmann) eiga í sambandi sem snýst einkum um að hún borðar, en hann gefur henni að borða. Enda er Ingibjörg sennilega tvöhundruð kíló og þyngist stöðugt. Slíkar öfgar eiga líka sinn Fimbulvetur sýnir i samstarfi vid Borgarleikhúsið á Litla sviðinu: Hungur eftir Þórdisi Elvu Þorvaldsdóttur Bach- mann. Leikendur: Heiga Braga Jónsdóttir, Elma Lisa Gunnars- dóttir, Þorsteinn Bachmann og Ásta Sighvats Ólafsdóttir. Ljósahönnun: Kári Gislason. Leikmyndahönnun: Þórarinn Blöndal. Tónlist: Axel Árna- son. Kvikmyndalist: Ósk Gunnlaugsdóttir. Búninga- hömum: Ragna Fróðadóttir. Förðun: Petra Dis Magnús- dóttir. Framkvæmdastjórn: Árni Árnason. Leikstjóri: Guð nmndur Ingi Þorvaldsson. Frttmsýning 18, febrúar 2006. ★ ★★★ Leiklist úM J JJ' samastað á netinu í raunveruleik- anuni, eins og allt annað, en þar eru hlutverkin kölluð „feeder" sá sem gefur að borða, og „feedee" sá/sú sem fær að borða. Rassadillandi klámdrottningar Átröskun er geðsjúkdómur. Anorexía og búlimía stafar af ofsa- hræðslu við að missa stjórn á lífi sínu. Segja má að anorexíu- og búlimíusjúklingar óttist stjórnleysi ofætunnar, en missi sig í staðinn út í öfgar á öndverðum meiði. Stjórn- unarhugtakið fer aldrei á milli mála í Hungri. Þær Emma og Dísa sækj- ast fyrst og fremst eftir því að hafa stjórn á lífi sínu með því að aga lík- ama sinn, svelta sig og áfskræma. Ingibjörg og Hallur eru líka í stjórn- unar- eða valdabaráttu, þar sem Hallur drottnar yfir Ingibjörgu með því að laga líkama hennar að sínu skapi, en Ingibjörg afsalar sér stjórninni í von um ást og viður- kenningu. En boðskapur verksins er ef til vill fyrst og fremst sá að við lifum í heimi sem er ákjósanleg gróðrarstía fyrir sjúkdóma af þessu tagi. Þar sem flestar söngkonur eru orðnar „rassadillandi klámdrottn- ingar" eins og ein persóna verksins segir - og stöðugur þrýstingur á fólk til þess að mæta óraunhæfum útlitskröfum. Það er fínt að vera grannur, það er merki um sjálfs- stjórn og hreinleika, en ef fólk er feitt, þykir það merki um veiklyndi og viðbjóð. Sjónhverfingar Litla svið Borgarleikhússins býður ekki upp á miklar kúnstir við uppsetningu leikverka. Áhorfenda- rýmið umkringir sviðið og því erfitt fyrir leikarana að komast af því og á. Það eru snjallar lausnir á ýmsu í sviðsetningunni, með því að láta alla leikmuni vera á sviðinu eða undir því. Margt kemur líka á óvart og sumt til þess fallið að manni krossbregður. „Ég vissi ekki að ég væri að fara að horfa á sjónverfing- ar,“ sagði vinkona mín þegar einni brellunni var listilega beitt. Vídeóskjár hangir í loftinu, sennilega til þess að víkka út sýn- ingarrýmið, og þurfa áh&rfendur að reigja höfuðið aftur til þess að geta fylgst með honum. Það var svosem hægt að láta sig hafa það, en verulega óþægilegt þegar eitt- hvað var að gerasf samtímis á svið- inu og í loftinu. Þá minnti áhorf- endaskarinn á hausaskakandi þungarokksaðdáendur. Sennilega var það trix að sýna myndir af ofur- horuðum átröskunarsjúklingum á skjánum þegar þær Elma Lísa og Ásta Sighvats voru önnum kafnar við að svelta sig, til þess fallið að auka hughrifin, því auðvitað fór ekki framhjá áhorfendum að hvor- ug þeirra er sjúklega grannvaxin. Mér fannst það ekki alveg ganga upp og fór skjárinn frekar í taug- arnar á mér. Notkun ljósa og tón- listar var þó hæverskleg og ná- kvæm. Vald og valdaleysi Helga Braga Jónsdóttir sýnir á sér nýjar hliðar í Hungri og er ótrú- lega sannfærandi sem ofætan Ingi- björg. Hún sýnir bæði kómíska og tragíska takta og er sérlega mann- leg og aumkunarverð í hlutverki sínu. Þorsteinn Bachmann stendur sig sömuleiðis vel og Hallur verður í hans túlkun einhver ógeðfelldasta persóna sem undirrituð hefúr lengi séð á leiksviði. Samspil valds og valdaleysis er sterkt og vel útfært, þegar þetta undarlega par stígur dans á hárfínni línu milli hins sorg- lega og þess hlægilega. Elma Lísa Gunnarsdóttir er upptrekkt og örvæntingafull Dísa og skilar sínu með prýði, en þarf að gæta þess að missa sig ekki út í of- leik á köflum. Ásta Sighvats Ólafs- dóttir leikur sennilega þá persónu verksins sem hvað minnst kveður að - en hún á að vera uppburðarlít- il en tragísk sem Emma og það heppnast ljómandi vel hjá henni. Hlegið að niðurlægingunni Salurinn var einsleitur á annarri sýningu, þegar ég sá verkið, margt ungt fólk sem mér skilst að hafi fengið boðsmiða á sýninguna hjá útvarpsstöðinni FM-957. Það bæði sló mig og reitti til reiði að hlátra- sköllin glumdu um salinn - jafnvel í áhrifamestu senunum, undir skelfilegu ofbeldi og niðuriægingu þegar manni þótti næstum sárs- aukafullt að horfa og var skapi næst að • orga af ógeði. Kannski voru þetta taugaveiklunarviðbrögð áhorfenda, kannski skilningsleysi eða illgimi - hver veit? En stómnd- arlegt engu að síður og mig dauð- langaði að hasta á liðið! Það er ástæða til þess að hvetja sem flesta til þess að sjá þetta áhrifamikla verk, sem Guðmundur Ingi Þorvaldsson hefur skilað svo vel á svið. Maður fyllist viðbjóði á öfgunum, sjúkleikanum og sjálfs- fyrirlitningunni sem stýrir persón- unum, en er þó margs vísari um þann hrylling sem átröskunarsjúk- dómar em. Höfundurinn, Þórdís Elva Þorvaldsdóttir Bachmann, stimplar sig rækilega inn í íslenskt leikhúslíf með Hungri, sem hefur flest það sem góð leikhúsverk prýða. Textinn er lipurlega skrifað- ur og hefur sterkan boðskap - hjartaskerandi sorglegur, en líka oft fyndinn. Hvað getur maður beðið um meira? Þórunn Hiefna Siguijónsdóttir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.