Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2006, Page 62

Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2006, Page 62
62 LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 2006 SfOast en ekki síst DV Felldur vegna slæms geðslags Ha? „Það voru miklar vonir bundnar við Eld sem því miður urðu að engu," segir Unnur Sigþórsdóttir, fræðslustjóri Húsdýragarðs- ins um fráfall „þarfanautsins" Elds. Eldur fékk í gær að á vit sinna og var felld- ur. Ástæðan var sú að geðslag hans hentaði ekki gestum Húsdýra- garðsins en ólíkt þjóðargerseminni Guttormi var hann mjög úrill- ur og tókst aldrei að hleypa honum í nálægð við gesti. Eldur var orðinn tveggja ára gamall og eftir því sem tfrninn leið stafaði meiri hætta af honum. Sá sem mun fylla í skarðið fýrir Eld er 25. kálfur Guttorms og hans eina eftirlifandi afkvæmi. Kálfinn átti kýrin Búkolla með Guttormi og fæddist hann í haust. „Hann er eiginlega ná- kvæmlega eins og Guttormur - með stóra hvíta stjömu á hausnum og nánast sama geðslag," segir Unnur. Starfsmenn Húsdýragarðsins leita nú óðum að nafhi á hinn nýja arftaka. „Við höfum kallað hann Hróður, enda er hann hróður föður síns og garðsins alls. Það er mikið traust sett á Ónefndur Arftaki Elds og kálf- ur Guttorms. Tillögur um nafn skulu sendast á netfangið: unnur@husdyragardur.is. hann," segir Unnur. Vafaiaust verður erfitt fyrir kálfinn að fylla í skarð föður síns en nú vegur kálfurinn heil 230 kíló og er talið að hann geti náð þyngd Guttorms sem var yfir 900 kíló á sín- um tíma. íslendingar em greinilega áhuga- samir um nýja kálfinn en frá hádegi í gær og fram til fjögur höfðu borist yfir 300 tölvupóstar með tillögum. „Til allrar hamingju verð ég í fríi um helg- ina en á mánudag mun ég líta yfir þetta allt," segir Unnur ánægð með viðbrögðin. Hvað veist þú um Baggalút 1. Hver er slóðin á vefsíðu Baggalúts? 2. Hvað heitir helsti lagahöf- undur Baggafútsmanna? ■^3. Hvers konar tónlist spilar Baggalútur? 4. Hvað hét aðventulag Baggalúts fyrir síðustu jóf? 5. Hvers lenskur er banjó- leikari Baggalúts? Svör neðst á síðunni Hvað segir mamma? „Þaöernúekki annaö hægten að vera stolt af onum Bryn]- ari," segir Fann- ey Úlfljótsdótt- ir, móöir Brynjars Þórs Björnssonar, nemaogvon- arstjörnu fs- lands I körfuknattleik. „Hann byrjaöi aö æfa sig I körfubolta þegar hann var þriggja ára gamall. Þá fékk hann svona litla körfu á huröina I herberginu slnu. Þess vegna er hann svona góöur I vltunum. Svo var eldri bróöir hansl hinum fræga '82 ár- gangi IKR sem uröu Islandsmeistarar til J^fjölda ára. Brynjar var mikiö í kringum liðiö og læröi mikiö á þvl. Hann hefur alltafveriö hvers manns hugljúfí. Eg man til dæmis þeg- ar hann varyngri. Þá sagöi móðir besta vin- ar hans, sem hann fékk stundum að gista hjá, aö hún væri meira en tilbúin tilþess að ættleiöa hann. Svo er hann metnaöargjarn og leggursig allan fram I þaö sem hann gerir. Hann er einnig samviskusamur I námi. Gengur vel I Menntaskólanum við Sund." Fanney Úlfljótsdóttir viðskiptafræð- ingur er móðir Brynjars Þórs Björns- sonar. Þrátt fyrir að vera aðeins 17 ára gamall er Brynjar lykilmaður i meist- araflokksliði KR. (siðustu umferð skor- aðl Brynjar 29 stig og þar af fimm þriggja stiga körfur. Brynjar spilar einnig með drengja - og unglinga- flokki KR og gengur frábærlega þar. Hann var valinn f stjörnulið fslendinga sem lék við stjörnulið erlendra leik- manna i úrvalsdeildinni. Brynjar er einnig lykilmaður i unglingalandslið- um fslands og hefur leitt landsliðið f sínum flokki sem náð hefur frábærum árangri, eru f A-deild i Evrópu. gera kvikmyndina Blóöbönd. Það er baggalútur.is. 2. Hann heitir Guðmundur Páls- son. 3. Það er köntrí. 4. Þaö hét Sagan af Jesú. 5. Hann er rússneskur. Helgi Seljan „Grænn I framan gekk égútog spjó. “ sem hefur vakið mikla athygli að undanförnu fyrir snjalla og snöfur- manniega framgöngu í fjölmiðlum. Tökumaðurinn Einar var með hon- um í för og kvikmyndaði það sem fýrir augu bar á Súlunni. „Þetta verður sýnt strax eftir helgina," segir Helgi. Hann segir fróðlegt að hafa fengið að fljóta með Súlunni og gaman að kynna sér loðnuveiðamar. „Þetta er einn elsti loðnuskipstjóri landsins sem ég fékk að fara með. Bjarni Bjarnason, mað- „Jújú, ég hef verið á sjó áður. Tvö þrjú ár fyrir „ustan" á þeim merka báti Sveini Benediktssyni SU sem skírður er í höfuðið á bróður Bjarna Benediktssonar," segir Helgi Seljan sjónvarpsmaður sem á ættir að rekja austur á Reyðarfjörð þar sem hann sleit barnsskónum. Helgi fór á sjó á dögunum, á Súl- una EA, til að kynna sjónvarpsáhorf- endum hvernig loðnuveiðar fara fram. Þrátt fyrir einmuna blíðu þá lagðist lítið fýrir kappann, sem varð grænn af sjóveiki og spjó sem mest hann mátti út fyrir borðstokkinn. „Þetta kom mér eiginlega ekkert á óvart. Þegar ég var á sjó yngri varð ég alltaf sjóveikur fyrst. Og bjóst því við að svo yrði núna aftur. Og það stóð ekki á því. Nú skil ég textann hans Þorsteins Eggertssonar - Grænn í framan gekk ég út og spjó - svo miklu betur." Helgi hefur verið að láta ljós sitt skína í íslandi í dag að undanförnu og virðist það form blaðamennsku ekki vefjast fyrir hinum knáa Helga ur sem ekki bara er skip- stjóri heldur einstakur listamaður á því sviði að finna loðnuna. „Það vafðist! ekki fyrir honum nú sem endra nær þó svo að Magn- ús Þór hafi ekki séð kvikindi fyrir nokkru." Helgi ætlar ekki að söðla um í bráð og munstra sig til sjós. „Nei, ég held ekki. Held ég láti það bíða. Mínum sjómannsferli er algerlega lokið. Toppnum var náð þegar ég fór túr með Hólmaborg inni, sem er Rollsinn í loðnuflotanum." jakob@dv.is Nýjasta stjarnan Hefur vakiö mikla athygli að undan- förnu fyrirsnjalla og snöfurmannlega framgöngu. Fyrsta hlutverkið í sjónvarpi „Ég man þetta eins og það gerðist í gær,“ segir Hermann Gunnarsson, betur þekktur sem Hemmi Gunn, en gamla myndin að þessu sinni er frá 1980. Þá var verið að taka upp áramótaskaupið. Á myndinni er Hemmi með Magnúsi Ólafs- syni sem er betur þekktur sem Bjössi bolla. „Ég var að vinna í útvarpinu á gömlu gufunni og var í íþróttafréttum á þessum tíma. Það var síðan haft samband við mig um miðjan desember og þá var verið að vinna við áramótaskaupið. Málið var að leikarar voru í verkfafli og þá var ég dreg- inn á flot en ég hafði aldrei haft neinar langanir til þess að fara í sjónvarp. Þetta var stórmerkilegt áramótaskaup fyrir vikið þar sem engir leikarar tóku þátt en Maggi Ólafs lék þarna. Eiríkur Fjalar kom þar fram í fyrsta skipti og Laddi lék þarna nokkur hlutverk og meðal annars hann, þetta var þrælgott skaup. Ég var látinn syngja Rauðhettu og var líka settur sem kynnir á þetta áramótaskaup og ég byrjaði á því að blindast í ljósunum. Á þessum tíma voru Utangarðsmenn á banníista en þarna komu þeir fram í fyrsta skipti í sjón- varpi, Bubbi og co með lagið Poppstjöm- una. Þetta var meiriháttar skemmtilegt. Það hvarflaði ekki að mér að ég ætti eftir að vinna meira í sjónvarpi, ég var ekki á leiðinni í þetta. En það breyttist eins og allt annað í mínu lífi." Hemmi Gunn Hér ásamt Magnúsi Ölafssyni enþeirléku báðiríára- mótaskaupi sjónvarpins árið 1980 þegar leikaraverkfallið stóð yfir. tnorgun Hlnn

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.