Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.2006, Page 10
10 LAUGARDAGUR 25. MARS 2006
Fréttir DV
Kostir & Gallar
Kristján þykir mikið Ijúfmenni
og mikill grínari. Hæfileikar
hans virðast liggja í fjölmiðl-
um og tónlist.
Sumir segja hartn vakna of
snemma og hanga ofmikið
á barnum. Klippingin má
fjúka og hann verður að
koma sér í form.
„Ég hefnú eigin-
lega bara allt
gott um hann
að segja. Hann
er alveg rosa-
lega skemmti-
legur og er al-
veg frábærlega
klár blaðamað-
ur. Kristján er mjög góður í að
spila á gítar. Það er kannski
hans eini galli að hann vaknar
stundum ofsnemma og fer að
biðja um myndir en það skrifast
kannski bara á mig vegna þess
að ég vakna svo seint."
Björn Blöndal Ijósmyndari.
„Hann Kristján
er algjört Ijúf-
menni og getur
verið manna
skemmtilegast-
ur enda hefur
hann unnið við
það i mörg ár.
Gallar hans eru kannski að
hann eyðir ofmiklum tíma á
Grand Rokki og mætti líka
breyta um klippingu."
Marta María Jónasdóttir blaðamaður.
„Kostir Krist-
jáns eru þeir
að hann er al-
veg ótrúlega
blíður maður,
hann ermikill
húmoristi og
góður söngv-
ari. Hann veit
líka allt um íslenska tónlist eða
bara tónlistyfir höfuð. Gallarnir
eru kannski þeir aðhann er
alltafber að ofan heima hjá sér
og hann mætti koma sér I betra
form. Þetta með að vera ber að
ofan virðistganga íættir."
Sólmundur Hólm Sólmundarson
ritstjórl og vinur.
Kristján Þorvaldsson er fæddur 4. maí árið
1962. Hann hefur lengi verið talinn einn af
bestu blaðamönnum landsins. Hefur komið
víða við og var ritstjóri Séð og heyrt í tíu ár.
Nú er hann hættur þar. Kristján er fráskilinn
og á einn son, Þorvald Davlð Kristjánsson.
Tveir Nígeríumenn, Nosa Gibson Ehiorobo, 26 ára, og Sunday Osemwengie, 32
ára, voru í gær úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald vegna fjársvikamáls
sem þeir eru taldir vera beinir gerendur í.
Nosa Gibson Ehiorobo og Sunday Osemwengie voru báðir úr-
skurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald til föstudagsins 7. apr-
íl. Báðir komu hingað til lands föstudaginn 17. mars og voru
höfð afskipti af þeim í Leifsstöð. Þeim var sleppt en voru svo
handteknir þegar þeir ætluðu að halda úr landi. Fimmtán tím-
um síðar. Þá fundust ríflega 100 þúsund evrur í farangri þeirra.
Bæði Ehiorobo og Osemwengie
eru grunaðir um stórfelld fjársvik
og að hafa platað tvo íslendinga til
að kaupa af sér falsaða evruseðla.
Farið var fram á gæsluvarðhald
Faldi sig 26 ára gamall Nlgerlumaður, Nosa
Gibson Ehiorobo, er hér leiddur út úr dómsal
aflögreglumanni Sýslumannsins á Keflavik-
urflugvelli.
yfir þeim í Héraðsdómi Reykjaness
í gær.
Samþykktu
úrskurðinn
Mennimir em báð-
ir nígerískir ríkisborg-
arar en búsettir á
Spáni. Þeir undu báðir
úrskurði dómara hér-
aðsdóms í gær sem
hljóðar upp á áfram-
haldandi gæsluvarð-
hald til föstudagsins 7.
apríl.
Rannsókn málsins
gengur vel og hafa tveir
Islendingar verið hand-
teknir í tengslum við það
ásamt því að fleiri hafa verið
yfirheyrðir. Þeir em ekki í
haldi.
Mennimir em eins og
áður segir nígerískir rík-
isborgarar - en þar
blómstrar fjársvikastarf-
semi sem aldrei fyrr.
Plötuðu íslendingana
Krafa ákæruvaldsins vísaði til
248. greinar almennra hegningar-
laga sem fjallar um fjársvik og er
refsiramminn fyrir slíkt brot allt að
sex ára fangelsi. Ehiorobo og Osem-
wengie em taldir hafa selt íslending-
unum svarta pappírsmiða í pen-
ingaseðlastærð og talið þeim trú um
að þeim væri hægt að breyta í alvöra
peninga.
Upphæðin þrefölduð
Nígeríumennimir vom
teknir í Leifsstöð með
hundrað þúsund evmr
sem jafngilda 8,7 milljón-
um íslenskra króna. Þá
upphæð höfðu þeir haft
af íslendingunum fyrir
svörtu pappírsmiðana
sem þeir töldu
þeim trú um að
jafngiltu 300 þús-
und evmm.
Nígeríumennirn-
ir vom teknir í Leifs-
stöð með ýmis tæki
og tól sem áttu að
breyta pappírsmið-
unum í peningaseðl-
a. Þannig em þeir
taldir hafa sannfært
íslendingana.
Með því að taka við
„Rannsókn málsins
gengur vel og hafa
tveir fslendingar verið
handteknir í tengslum
við það ásamt þvi að
fleiri hafa verið yfir-
heyrðir."
pappírsmiðunum gætu íslending-
arnir hafa gerst sekir um að vera
samverkamenn í málinu en em jafn-
framt fórnarlömb harðsvíraðra
fjársvikara frá Nígeríu.
gudmundur@dv.is
70U
100
,4y.u
'JflMfiuupSS
20
...
SL
5EUR
Evrur Nígerlumennirnir
voru teknir með um 100
þúsund evrursem íslend-
ingar höfðu reitt afhendi.
guftfssni
ökumenn
Tveir ökumenn vom
stöðvaðir í fýrrinótt af Lög-
reglunni í Reykjavík gmn-
aðir um ölvun við akstur.
Annar ökumaðurinn sem er
tvítugur maður var stöðv-
aður á Sæbraut á 100 kíló-
metra hraða á klukkustund
og ætlun hans var að stinga
lögregluna af en tókst það
ekki. Hinn ökumaðurinn
sem er 25 ára var stöðvaður
á Kringlumýrarbraut einnig
á of miklum hraða. Báðir
ökumenn eiga yfir höfði sér
sviftingu ökuréttinda um
óákveðinn tíma.
Vestlendingar töldu Suðurnesjamenn of ágenga
Yfirtöku á Fiskmarkaði íslands varnað
„Kaup þeirra sköpuðu óróa
héma fýrir vestan, þannig að við
gripum til þess ráðs að stofna nýtt
eignarhaldsfélag sem ræður nú yfir
50,38 prósent hlutafjár," segir Páll
Ingólfsson, stjómarmaður Fisk-
markaðar íslands og stjómarfor-
maður FMB ehf., hins nýja eignar-
haldsfélags.
Fiskmarkaður Suðumesja hafði
komist yfir 30 prósent hlutafjár í
Fiskmarkaði íslands ásamt Jónsteini
Elíassyni, eiganda Toppfisks í
Reykjavflc sem einnig á hlut í Fisk-
markaði Suðumesja. í framhaldinu
kviknuðu grunsemdir hjá stjómend-
um Fiskmarkaðar fslands um að
yfirtaka Suðumesjamanna væri í
vændum.
„Það er ekkert launungarmál að
við vorum að sækjast eftir bréfum í
félaginu með það í huga að sameina
fiskmarkaðina en það var ekki mein-
ingin að gera það í andstöðu við
aðra hluthafa," segir Þórður M.
Kjartansson, framkvæmd-
astjóri hjá eignarhaldsfélag-
inu Stekkur þú ehf. sem á
14,76 prósent í Fiskmarkaði
Suðumesja.
Félögin tvö em Iangstærst
á markaðinum. Þau reka fisk-
markaði um allt land en hafa
höfúðstöðvar í Grindavík og
Ólafsvík. Reynt var að sam-
eina félögin fyrir tveimur
ámm að frumkvæði Fiskmark-
aðs íslands en þá gengu eigend-
ur Fiskmarkaðs Suðumesja ekki
að tillögum Snæfellinga.
thorst@dv.is
Þórður M. Kjartansson, Fiskmark-
aði Suðurnesja „Ekkert hefði verið
gert f andstöðu við aðra hluthafa."
Hverfafundir í
Hafnarfirði
í byrjun næstu viku, nánar til-
tekið 27. til 30. mars, verða
hverfafund-
ir í Hafnar-
. firði. Þá
mun Lúðvík
Geirsson
bæjarstjóri
svara
spumingum
bæjarbúa
og fara yfir
helstu fram-
kvæmdir og
þjónustu á
vegum bæjaryfirvalda. Þetta er í
þriðja skiptið sem Lúðvflc boðar
til slfkra fttnda og hafa íbúar
ávallt komið með nytsamlegar
athugasemdir á fundina. Fundar-
efnið er annars nokkuð opið og
er ætlast til þess að íbúamir
stjórni efnistökum að stómm
hluta.