Freyr

Árgangur

Freyr - 01.12.1971, Blaðsíða 14

Freyr - 01.12.1971, Blaðsíða 14
Jón Þorvaldsson kennari. göngu en fljótt á litið mátti ætla. Á þann þátt í fari hans féll aldrei skuggi. Hann kvæntist Soffíu Þorkelsdóttur, sumarið 1916 og átti sitt eigið heimili upp frá því. Kona hans var hljóðlát og blandaði lítið geði við okkur. Hafði ég það á tilfinning- unni, að henni væri lítið um ærsl okkar gefið. Andi Sigurðar skólastjóra í garð eiginmanns hennar mun hafa sært hana, enda leituðu þau frá Hólum skömmu síðar (1919). Ég er þakklátur Sigurði kennara fyrir þá hjálparhönd, sem hann rétti mér um meðferð máls. Sú virðing, sem hann vakti hjá mér fyrir fögru máli hefur dugað mér til þessa dags. * * * Fjórði kennarinn var Jón Þorvaldsson, frá Finnastöðum í Eyjafirði. Hann hafði stund- að trésmíðanám á Akureyri og síðar er- lendis um skeið. Hafði og kynnt sér skóla- smíðar við norræna búnaðar- og lýðskóla. Hann mun hafa verið mjög í ráðum um gerð og áhaldaval fyrstu smíðastofunnar á Hólum. Sjálfsagt þætti hún fátækleg að allri gerð nú. En það mun mála sannast, að sá dómur mundi og felldur um kennslu- tækin þar yfirleitt. Smíðastofa okkar Hóla- manna var vissulega fátækleg. Hún átti þó sitt gildi. * * * Síðari veturinn minn á Hólum kenndi þar hinn aldni stofnandi skólans, Jósef J. Björnsson. Hann var fæddur á Torfustöð- um í Núpsdal 26. nóv. 1859. Hann stundaði nám við búnaðarskólann á Stend í Noregi og lauk þaðan prófi með hæstu einkunn, er þá hafði verið gefin við skólann. Sann- ar það hvílíkur yfirburða námsmaður Jósef var. Liggur í augum uppi, að námið var honum í öndverðu erfiðara en innfæddum. Hann hafði að baki aðeins nokkurra mán- aða dvöl í Noregi er hann settist á skóla- bekk og að sjálfsögðu að mestu mállaus, þegar hann kom til Noregs sumarið 1877, aðeins 18 ára. Síðar stundaði hann nám við Búnaðarháskólann í Kaupmannahöfn, þó hann lyki þar ekki tilskildum fullnaðar- prófum. Námshæfni hans var frábær, sam- fara stálminni. Hann var því óvenju fjöl- menntaður maður. Jósef J. Björnsson kennari. Jósef var á marga lund ágætur kennari. En það stóð kennslu hans að nokkru fyrir þrifum, að hann virtist helzt ekki geta hugsað sér, að neinn færi í skóla annarra erinda en að læra. Hann taldi það svo sjálf- sagt, að um það þyrfti ekki að ræða. En þó félagar mínir væru yfirleitt námfúsir í góðu lagi, voru þeir engin undantekning í því að hafa misjafnan áhuga á því, er þar skyldi nema. Þessa guldu kennslu- greinar Jósefs og áttu kennsluhættir hans sinn þátt í því. Hann hafði yndi af að 478 F R E Y R
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.