Freyr - 01.12.1971, Side 20
Eins og sjá má af framansögðu hefur
orðið samdráttur á flestum jarðabótum,
nema vélgröfnum skurðum, grænfóður-
ökrum og votheyshlöðum. Ljóst er, að
samdráttur þessi stafar fyrst og fremst af
slæmu árferði og versnandi hag bænda.
Ríkisframlag
Ríkisframlag út á jarðabætur, sem styrkt-
ar eru, urðu sem hér segir:
Vegna vélgrafinna skurða kr. 34.562.580.00
Vegna annarra jarðabóta kr. 62.487.708.00
eða samtals árið 1970,
útborgað árið 1971 ......kr. 97.050.288.00
Vegna jarðabóta 1969 hafði ríkisfram-
lag reynzt kr. 85.204.016.00, er það nærri
12 milljónum lægra en ríkisframlagið út
á jarðabætur 1970.
Stafar þessi hækkun af hækkaðri vísi-
tölu.
Auk þessa var svo greitt sérstakt auka-
framlag út á súgþurrkun með blásara. Var
það kr. 4.387.632.00, árið 1971, vegna fram-
kvæmda á árinu 1970 — en fyrir árið 1969
var samskonar ríkisframlag kr. 8.278.062.00.
Það skal fram tekið, að auk þeirra jarða-
bóta, sem hér hafa verið taldar, koma allar
Ráðningarstofa landbúnaðarins
er starfrækt á vegum Búnaðarfélags Islands og er opin allt árið. — Dagleg
afgreiðsla er virka daga frá kl. 9—12 og 13—17, nema á laugardögum.
Hlutverk ráðningarstofunnar er að aðstoða bændur við ráðningu verkafólks,
þ. e. unglinga og fullvaxinna manna og kvenna, til hverskonar sveitastarfa.
Milligöngu um vistun barna — yngri en 12 ára — getur ráðningarstofan
ekki sinnt.
Nauðsynlegt er, að bændur í fjarlægum sveitum hafi umboðsmenn í Reykja-
vík, er ráðningarstofan getur snúið sér til í sambandi við upplýsingar, sem
vinnuveitandi og vinnuþiggjandi gagnkvæmt óska að fá, áður en ráðningar
eru bundnar fastmælum.
RÁÐNINGARSTOFA LANDBtJNAÐARINS
Sími 19200 — Reykjavík
484
F R E Y R