Freyr - 01.12.1971, Side 28
Hvernig fer þá uppgjör fram?
Uppgjör er framkvæmt í tölvu 360 model 20 hjá Sláturfélagi Suðurlands. Úrvinnslan fer þannig fram að
tölvan les öll spjöldin, sem eru um 100 þúsund og setur upplýsingarnar inn á seguldisk. Þar er upplýsing-
um raðað eftir bókhaldstáknum og síðan les hún inn forskriftir, er segja hvernig hún eigi að vinna úr
þessum tölum. Uppgjör á einum búreikningi er margþætt og verður að framkvæma í ákveðnum stig-
um. Þegar uppgjöri er lokið er blöðunum, sem tölvan skilar frá sér, raðað saman og búreikningurinn
bundinn inn og sendur til viðkomandi bónda. Úrvinnslan hefur kostað um 2.000 kr. á búreikning, sem
varla er hægt að segja að sé há upphæð, þegar tekið er tillit til þess hve uppgjör er margþætt.
Hver er ávinningur af því að nota tölvu
við uppgjör á búreikningum?
Starfsemi búreikningastofunnar er nú
nokkuð fast mótuð. Þær breytingar, sem
gerðar voru árið 1967, hafa heppnast vel.
Megináherzla var lögð á bætta þjónustu
við bændur, sem var möguleg, þegar fjár-
magn til stofunnar var aukið verulega
1967.
Notkun bókhaldsvélar eða tölvu, hefur
gefist vel og í rauninni miklu betur en
reiknað var með. Með notkun tölvu í stað
þess að handvinna allt uppgjör, næzt í
fyrsta lagi mun meiri hraði við uppgjör á
einstökum búreikningum og útreikningum
á meðaltölum. í öðru lagi verður ársupp-
gjör og ársskýrsla nákvæmari og í senn
fullkomnari. í þriðja lagi verður öll úr-
vinnsla fjölþættari vegna þeirra möguleika
er opnast til útreikninga, sem útilokað
væri að framkvæma á minni reiknivélum.
í sannleika sagt væri útilokað að veita
bændum þá þjónustu, sem nú er gert, án
492
F R E Y R