Freyr - 01.12.1971, Síða 29
Hvaða upplýsingar er að finna í ársupp-
gjöri?
Vinnuskýrsla:
Uppgjör á vinnuskýrslum er mjög ýtarlegt.
Þar er að finna niðurstöður um vinnu hvers
einstaklings, sem vinnur við búið, auk vinnu
alls starfsfólks umreiknað í karlmanna klst.
Jafnframt er reiknuð úi vinna alls við hverja
búgrein og hvernig vinna dreifist á milli bú-
greina í prósentum. Einnig er reiknuð út vinna
á einingu, þ. e. vinna við kú, vinna við kind,
vinna við hektara túns o. s. frv. Að síðustu
eru upplýsingar um vinnu á einingu allra bú-
reikninganna til samanburðar.
Búreikningur:
í fyrrihluta uppgjörs er útskrift á öllum færsl-
um, sem átt hafa sér stað yfir árið, þ. e. beinn
framleiðslukostnaður, framleiðslutekjur, fjár-
festing, skuldabreytingar og einkareikningur.
Þá kemur uppgjör án tillits til búgreina. Síðari
hluti búreiknings er uppgjör á einstökum bú-
greinum.
Samanburðarskýrsla:
Til samanburðar er tekinn framlegðarreikning-
ur nautgripa og framlegðarreikningur sauðfjár.
í samanburðarskýrslunni getur hver bóndi séð,
hvernig afkoma þessara tveggja búgreina er,
samanborið við hjá öðrum sem færa búreikn-
inga. A árinu 1970 var hæsta framlegð á árs-
kú yfir 33.000 kr., en lægst tæpar 10.000 kr.
Framlegð á veturfóðraða kind var hæst 2.000
kr, en lægst 165 kr.
þess að nýta þá bókhaldstækni sem tölvur
gefa möguleika á.
Hvað er framlegð?
Uppgjör á einstökum búgreinum er gert
eftir þeirri aðferð, sem nú nýtur mestra
vinsælda erlendis og þá sérstaklega þegar
áætlunargerð er höfð í huga. Þessi upp-
gjörsaðferð er nefnd Framlegðarreikning-
ur. Til gjalda á hverja búgrein eru ekki
færðir vextir, kaupgreiðslur eða fyrningar
(afskrift), heldur reiknað út hve mikið
F R E Y R
493