Freyr

Årgang

Freyr - 01.12.1971, Side 37

Freyr - 01.12.1971, Side 37
 WmmW KpJmf M waÍÆp' W Walt,/Ml) 'M wM /Æ “Own/FViwl m 'M- W' IHJrnlÁV wéMWMiM % ri X ® * a* m./TmnL Wml an og dæturnar, og flugurnar þreyttu kapphlaup um kinnar þeirra og augnalok. Fólk hafði það á skotspónum, að föt þeirra í Bakkagerði upplituðust á sumrin á þeirri hliðinni, sem sneri upp en ekki þeirri hlið sem það svæfi á. Að útliti var það ekki eins og fólk er flest, það gerði sofandahátturinn. Bakkagerðisbóndinn hafði vörtur eins og humarklær aftan við bæði eyrun, þær uxu meðan hann svaf, sagði fólk. Konan hafði vænan hárdúsk á annarri kinninni. Fituklumpar héngu á búkum fólksins þar sem þeir gátu safnazt. Allir voru synirnir hári klæddir þar sem húð er nakin á öðru fólki, eins og á enni og eyrum — en það þýðir jú auðævi, ef það kemur þá ekki af því að liggja og sofa svo að hárið vaxi rétt eins og illgresi á þeim akri, sem ekki er hirtur. Og að sjá þessa stóru og sterku pilta hreyfa sig, eins og þegar setja skyldi hest fyrir vagn, það var alveg furðulegt, það gat tekið heila klukkustund. Nú, og þegar það loksins var búið þá kom það svo sem fyrir, að hinn sami hafði stein- gleymt í hvaða tilgangi það var gert — og hvað var þá annað að gera en að spenna frá aftur og leggja sig? Það kom líka fyrir í þrumuveðri, að á þeim bæ studdi piltur sig við skófluna og fékk sér blund á meðan þrumurnar gengu yfir, og úti um akra voru hvílustaðir hér og þar sem gott var að leggja sig meðan höfgi seig á augu. Eins og Bakkagerðisfólkið var syfjað og þunglamalegt í hversdags athöfnum, þann- ig var og þungt yfir búfé og byggingum. Húsakostur var allur mjög forn, leirklíndir veggir, og þakskegg námu nærri því að jörðu. Þar var plægt með tréplógi og önnur tæki voru eftir því og allt önnur en á öðr- um bæjum; þar var ekki gleypt við nýj- ungum. Þó höfðu Bakkagerðismenn keypt grasljá og voru hættir að nota sigð, sem stirðum búkum hafði þótt of erfið í með- förum, en mikið var ömurlegt að sjá að- farirnar með þetta nýja uppskerutæki. í samræmi við annað á þeim bæ voru skepnurnar ellilegar og óhrjálegar, litlar og lélegar til afurða, og hestarnir vesælar F R E Y R 501

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.