Freyr - 01.12.1971, Síða 58
á/°iAr
Stærsta mjólkurstöð
á Norðurlöndum er í Joensuu í Finnlandi, segir
vikublað sænskra bænda LAND.
Joensuu er bær í Norður-Kirjálalandi. Þar er
dag’ega innvegin mjólk, sem nemur um 500.000
lítrum til jafnaðar. A vegum stöðvarinnar eru 500
manns að starfi, allir á mánaðarlaunum. Þar er
unnin neyzlumjólk en auk þess smjör og ostar og
r j ómaís.
í frétt frá mjólkurstöð þessari segir, að kúm
fækki verulega á síðustu árum og jafnframt fækkar
bændum, sem senda mjólk til stöðvarinnar. Búin
á mjólkursvæðinu eru smá, bændur hafa þar aðeins
5 kýr að meðtltali.
Á samlagssvæðinu eru nú 50.000 mjólkurkýr.
I Sorsele
í Vesturbotnum í Svíaríki býr bóndinn Arvid
Karlsson. Hann hefur 6 kýr í fjósi og svo ungviði.
Hann á beztu kúna í þeim hluta landsins, og hún
er á meðal 10 þeirra nythæstu í landinu. Á árinu
1970 var nythæð hennar 11.500 kg. Þegar hún var
í mestri nyt á árinu var daglegt fóður hennar:
20 kg rapsvothey, 16 kg kraftfóðurblanda og það
mikið hey, sem hún vildi eta.
Kartöfluuppskeran
á síðasta hausti var það mikil, að líklega hefur
hún aldrei verið meiri í landinu. Eftir hagstætt
sumar og úrkomulítið var kartöflukvilla lítið vart
og hefur það eðlilega í för með sér gott geymslu-
þol.
Horfur eru því þær, að uppskera geri betur en
fullnægja þörfum þjóðarinnar unz næsta uppskera
kemur á markað að ári, því að góðar geymslur
eru nú til, þar sem séð verður fyrir varðveizlu
til næsta sumars, en það sem af er þessum vetri,
þegar þetta er skráð, hefur hitastigið jafnan verið
það hátt, að engum vanda hefur valdið að geyma
kartöflur við öll skilyrði og með hverri viku sem
líður gefst neytendum tækifæri til að varðveita
næstu vikna forða.
Fóðurfengur bænda
á liðnu sumri var í bezta lagi, bæði að magni og
gæðum. Svo segja bændur víðast um iand, með
örfáum undantekningum. Hins er vert að minnast,
að þar sem hey þorrnaði oftast fljótt og vel er
mjög líklegt, að laust sé í hlöðum og að í hverjum
rúmmetra í hlöðu séu óvíða yfir 50 fóðureiningar
í stabba. Forðagæzla stendur yfir hjá bændum,
þegar þetta er skráð, og munu flestir sammála um,
að birgðir séu yfirleitt miklar en nokkru fleira er
nú sett á vetur en gerzt hefur síðustu árin, —
vonandi þó ekki svo margt, að nokkur komizt í
fóðurskort, hann ætti að vera bannlýstur héðan
í frá.
Spakmæli?
Að munnhöggvast við konu er álíka og að lesa
dagblað úti í roki. Dostojewski.
Náttúran hefur séð konunni fyrir mikilli lend og
umfangsmiklum bakhluta í því skyni að hún sitji
heima og gæti hússins. Martin Luther.
Lífið verður dásamlegt þann dag, sem konur mega
aðeins tala um það, sem þær hafa vit á.
Jumbo. (M. Hjort).
Þegar konan þín hælir þér þá býr þar eitthvað á
bakvið. Rússneskur málsháttur.
522
F R E Y R