Freyr - 15.09.1979, Side 19
Guðmundsson, Óslandi, Stefán Valgeirsson,
Gunnar Guðbjartsson, Þórarinn Þorvalds-
son, Sveinn Guðmundsson, Ingi Tryggva-
son, Sigurður Jónsson, Efralóni, Sigfús
Þorsteinsson og Sigurður Jónsson, Kastala-
brekku.
Afgreiðslu tillögunnar var síðan frestað,
og tók nefndin hana til endurskoðunar.
Kristinn Bergsveinsson flutti tillögu frá
verðlagsnefnd um beina samninga bænda
við ríkisvaldið.
Gunnar Guðbjartsson minnti á ályktun um
þetta efni frá aukafundi Stéttarsambandsins
í apríl sl. Hún væri enn í fullu gildi, og óskaði
Gunnar þess, að engin tillaga um þetta efni
færi frá þessum fundi.
Var þessu vísað til nefndarinnar.
Tillagan kom ekki fram aftur.
11. Tillögur allsherjarnefndar.
Böðvar Pálsson flutti fyrstu tillögu alls-
herjarnefndar um skyldutryggingar allra út-
ihúsa í sveitum og mælti fyrir henni, m. a.
með því að benda á, hversu gífurlegt tjón
gæti orðið á útihúsum, ef til jarðskjálfta
kæmi í heilum byggðarlögum.
Fram komu óskir um orðalagsbreytingar á
tillögunni, og voru þær teknar til greina. Til-
lagan var borin undir atkvæði svohljóðandi:
Aðalfundur Stéttarsambands bænda, haldinn í
Stykkishólmi 1—3. september 1979, samþykkir
að óska eftir því við Alþingi, að það lögfesti
skyldutryggingu allra útihúsa í sveitum.
Samþykkt samhljóða.
Böðvar Pálsson flutti aðra tillögu alls-
herjarnefndar um sölu og dreifingu dýralyfja.
Óskað var orðalagsbreytinga og Helgi Jón-
asson vildi auka við hana málsgrein.
Af þessu tilefni var afgreiðslu tillögunnar
frestað og henni vísað til nánari athugunar
hjá allsherjarnefnd.
Enn flutti Böðvar þessa tillögu alls-
herjarnefndar:
FREYR
583