Freyr - 15.09.1979, Qupperneq 35
GUNNAR GUÐBJARTSSON:
Skýrsla formanns
Stéttarsambands bænda
til aðalfundar 1979
I. Störf stjórnar og afdrif mála.
Stjórn Stéttarsambands bænda hefur haldið
11 fundi á starfsárinu.
Stjórnin hefur fjallað um fjölda mála og
hafa sum þeirra verið vandasöm úrlausnar.
Fyrst mun ég gera grein fyrir afgreiðslu og
meðferð mála frá síðasta aðalfundi sam-
bandsins.
Mál frá síðasta aðalfundi.
1. Tillaga um tilfærslu í verði mjólkurvara
varframkvæmd á þann veg, að 265 króna
hækkun, sem hefði átt að koma á
smjörið við haustverðlagninguna, varð
samkomulag um að færa á aðrar
mjólkurvörur. Ekki hefur verið farið fram
á frekari tilfærslu ennþá.
2. Tillaga um mishátt verð á sumar- og
vetrarmjólk var tekin fyrir hjá Fram-
leiðsluráði og uppástunga um breytt
verðhlutföll send síðan til allra mjólkur-
samlaganna til umsagnar. Mjólkur-
samlögin svöruðu engu um tillöguna.
í vor ákvað Framleiðsluráð að beina
þeim tilmælum til samlaganna, að þau
greiddu í júní, júlí og ágúst 65% grund-
vallarverðsins og yrðu við því búin að
hækka útborgun verulega í september
og í vetur, á meðan að mjólkin er minnst.
Ekki er búið að taka ákvörðun um þá
hækkun ennþá.
3. Tillagan um endurskoðun samþykkta
Stéttarsambandsins var til meðferðar
hjá milliþinganefndinni, sem skilaði áliti
í byrjun ágústmánaðar sl., og voru til-
lögur nefndarinnar sendar öllum fulltrú-
um til athugunar fyrir þennan aðalfund.
4. Stjórnin ákvað að greiða Búnaðarsam-
bandi Suðurlands 1 milljón króna vegna
kvikmyndunar á landbúnaðar-
sýningunni á Selfossi, er var haldin á sl.
ári.
5. Á sama hátt var greidd til Rannsókna-
stofnunar landbúnaðarins sú fjárhæð,
sem heimiluð var vegna rannsókna á
kjötgæðum dilkafalla frá Skriðuklaustri
á sl. ári. Samandregnar niðurstöður
rannsóknarinnar, gerðar af Stefáni
Aðalsteinssyni, sérfræðingi Rala, fylgja
hér með. (Fskj. I).
6. Aðrir styrkir voru greiddir skv. ákvörðun
aðalfundar.
7. Tillagan um rekstrar- og afurðalánin var
FREYR
599