Freyr - 15.03.1994, Blaðsíða 16
Um ullarniðurgreiðslur í
Bandaríkjunum
Hvernig líta aðrir á okkur, spyrja Bandaríkjamenn
Sveinn Hallgrímsson
„Hvernig líta aðrir á okkur?", hljóðaði fyrirsögn á grein í bandaríska tímaritinu SHEEP
MAGAZINE í október sl. í greininni, sem er endurprentun á grein úr THE WASHINGTON POST,
segir frá heimsókn blaðamanns í þorpið Rocksprings í Edwardshéraði í Texas.
Sveinn Hallgrímsson.
Greinin snýst í raun um svokallaðar
ullarniðurgreiðslur í landi frelsisins,
Bandaríkjunum. Mér virðist að
blaðamaðuririn heimsæki þetta þorp
af tveimur meginástæðum:
1) Þarna er um einhliða atvinnu-
starfsemi, ullarframleiðslu að ræða;
2) íbúar héraðsins og þorpið er
orðið háð ullarpeningum frá ríkinu.
Hér er rétt strax í upphafi að taka
fram að ullin í þessu héraði kemur
ekki af sauðkindum, heldur af geit-
um. Mér finnst greinin eiga erindi til1
lesenda Freys, m.a. þar sem hún
sýnir að niðurgreiðslur og styrkir
hafa verið við lýði víðar en á íslandi
og það voru mismunandi rök, sem í
upphafi réðu því að til styrkjanna
var gripið.
Framlelðsla mohalr.
Fáir staðir í USA virðast eins
óháðir og langt frá Washington eins
og þetta þorp, staðsett í klettóttu og
hrjóstrugu suðvesturhorni Texas.
Það sem allt snýst um hér, er ræktun
Angora geita og þar með framleiðsla
mohair ullar. Nýjasta byggingin í
bænum er lagerhús fyrir pakkaða
mohair ull. íþróttalið menntaskól-
ans hér er kallað Angórurnar. Enda
þótt allt sýnist hér óháð Washington
er ekki svo þegar betur er að gáð.
Landbúnaðarráðuneyti alríkis-
stjórnarinnar (U.S. Dept. of Agric.)
er með skrifstofu við aðalgötuna.
Pangað fara bændurnir til að ná í
(pick up) ávísunina frá alríkisstjórn-
inni sem þeir fá fyrir að framleiða
þessa lúxusvöru, angóraull. „Án
niðurgreiðslna frá ríkinu væri Rock-
springs ekki annað en nafn á landa-
bréfi, nær öll starfsemi hyrfi“, segir
einn starfsmaður ráðuneytisins. Á
síðasta ári gaf þessi litla skrifstofa út
ávísanir að upphæð samtals $5,2
milljónir í mohair- og ullarniður-
greiðslur til fólks í héraðinu fyrir
árið 1991. Þeir tíu hæstu fengu frá
$90 þúsund upp í $340 þúsund (frá
6,5 millj. til 24,5 millj. ísl. kr.). Væri
heildarupphæðinni deildt á allar
fjölskyldur í hreppnum fengi hver að
meðaltali 6532 dollara, eða sem
samsvarar 470.304 ísl. kr. á hverja
fjölskyldu.
Rétta við hallann á ríkissjóðl
Enda þótt ullarniðurgreiðslur séu
aðeins $180 millj. (eða 13 milljarðar
kr.) í USA skiptir þessi upphæð máli
þegar halli ríkissjóðs er mikill. Eins
og allir vita er erfitt að hætta við
eitthvað sem einu sinni hefur verið
komið á. Ullarniðurgreiðslur hafa
verið verið við lýði í 39 ár (Wool
Act) í núverandi mynd. Enda þótt
200 FREYR - 6*94