Freyr - 15.03.1994, Side 18
Sýna þarf aðgát við
tœmingu mykjukjallara
Magnús Sigsteinsson, forstöðumaður Byggingaþjónustu Búnaðarfélags íslands
Þegar verið er að hrœra í mykjukjallara undir gripahúsi og keyra út fljótandi mykju er
nauðsynlegt að sýna mikla aðgát. Við hreyfingu mykjunnar losnar mykjugas úr lœðingi og
getur borist upp í gripahúsið um rimla- og ristargólf eða óþéttar lúgur í flórum. Mykjugas
getur líka verið í miklu magni kringum áfyliingarstút mykjudreifarans og valdið hœttu fyrir
þann sem vinnur við að tœma mykjukjallarann.
Mykjugas er samsett úr nokkrum
gastegundum. Algengastar þeirra
eru : koltvísýringur (C02), ammon-
íak ( NH3), metan (CH4) og brenni-
steinsvetni (H2S). Langhættulegasta
gastegundin er brennisteinsvetnið.
Það er litlaust gas sem lyktar líkt og
fúlegg. Brennisteinsvetnið er stór-
hættulegt þótt magn þess í andrúms-
loftinu sé aðeins örlítið. Ef menn
eða dýr anda að sér of miklu magni
af brennisteinsvetni veldur það
svima, höfuðverk og ógleði. Meira
magn veldur yfirliði og dauða ef
viðkomandi nær ekki að komast
fljótt í ferskt loft. Brennisteinsvetn-
ið er sérstaklega hættulegt fyrir þá
sök að þegar magn þess í andrúms-
loftinu er orðið hættulega mikið,
lamar það lyktarskyn manna og þeir
verða ekki varir við hættuna með því
að þefa. Lyktarskynið lamast tals-
vert löngu áður en gasmagnið er
orðið það mikið að hætta er á
skyndilegu yfirliði við innöndun
gassins.
Áhrif brennisteinsvetnis á dýr
virðast svipuð og á menn. Gasið
getur þó einnig valdið lömun í aftur-
hluta dýra þannig að þau eigi erfitt
með að standa upp. Þau geta orðið
ólystug í nokkra daga eftir að hafa
orðið fyrir áhrifum gassins og dæmi
eru um að dýr hafi blindast. Nyt
mjólkurkúa minnkar.
Einasta ráð gegn óþægindum eða
yfirliði af völdum brennisteinsvetnis
er að anda að sér fersku, hreinu
lofti.
Nauðsynlegar
varúðarráðstafanir við
tœmingu mykjukjaliara.
Pegar verið er að hræra upp í
mykjunni og tæma kjallarana er
áríðandi að menn viti um hættuna á
gasmengun og geri viðeigandi ráð-
stafanir til þess að koma í veg fyrir
eða minnka hættuna á því að óhapp
geti orðið. Þessar varúðarráðstafan-
ir þarf að gera hvort sem opið eða
lokað er á milli mykjukjallara og
gripahúss. Niðurfallsgöt í lokuðum
flórum geta nefnilega verið óþétt og
gasið streymt þar upp.
Nefna má eftirtalin atriði sem
huga þarf sérstaklega að:
1. Öruggast er að hafa gripina úti
á meðan verið er að hræra í kjallar-
anum. Oft er þó erfitt að koma því
við, þar sem algengt er að keyra
þurfi út mykju á þeim árstíma þegar
ekki hentar að hleypa kúm út. Sama
gildir um grísahús.
2. Opna skal upp á gátt glugga og
dyr víðs vegar á gripahúsinu þannig
að vindur geti blásið í gegnum húsið
og loftræst það rækilega. Ekki er
ráðlegt að hræra í mykjukjallaran-
um í logni. í Noregi hefur það sýnt
sig að óhöpp vegna gaseitrunar
verða helst þegar verið er að hræra í
mykjukjallara í kyrru, hlýju veðri.
Loftræstiviftur skulu einnig ganga á
fullum afköstum meðan hrært er, en
loftræstikerfið eitt sér er engan veg-
inn nægilega afkastamikið til þess að
hreinsa loftið í gripahúsinu nógu
fljótt og vel við þessar aðstæður.
3. Þétta þarf vel öll op á mykju-
kjallaranum til þess að loft komist
ekki þar inn og valdi trekk upp um
gólf í gripahúsinu. Þetta gildir að
sjálfsögðu einnig um op í kringum
mykjudælu eða annað tæmingartæki
sem stungið er niður í brunn við
haughúsvegginn eða inn um op eða
dyr á veggnum.
4. Ekki skal hræra meira í mykj-
unni en brýna nauðsyn ber til þannig
að hún fljóti að tæmingartæki. Því
öflugri sem blöndun mykjunnar er,
þeim mun meira mykjugas losnar úr
læðingi. Á mykjudælum er hægt að
stilla blöndunarstútinn á dælurörinu
og stjórna stefnu mykjubununnar
inn í kjallarann. Mikilvægt er að
beina bununni sem mest undir yfir-
borði mykjunnar og alls ekki upp
undir rimlagólfi þar sem dýr halda
sig. Sérstaka varúð skal sýna við
blöndun þegar lækka fer í kjallaran-
um og ekki er lengur hægt að beina
mykjubununni alfarið undir yfir-
borðinu. Sérstaka aðgát skal sýna
þegar tekin er í notkun ný mykju-
dæla, því hún getur verið öflugri en
sú eldri og þess vegna getur skapast
meiri hætta á hættulegri gasmengun
þegar farið er að hræra.
Kringum áfyllingarop
mykjudreifarans er
hœttusvœði.
Sá sem vinnur við blöndun í
mykjukjallara og fyllingu mykju-
dreifarans má alls ekki vera með
nefið nálægt hættulegum stöðum,
202 FREYR - 6*94