Freyr

Árgangur

Freyr - 15.07.1998, Síða 12

Freyr - 15.07.1998, Síða 12
snerta búfjáráburð. Hjá okkur hefur á undanförnum árum verið nokkur stöðnun í þessum málaflokki út frá tæknilegu sjónarmiði, m.a. vegna þess hvað endurnýjun gripahúsa hefur verið hæg. Sú athugun sem hér er greint frá er liður í því að búa okkur betur undir það að móta hvernig gripahúsum og tengibygg- ingum við þær muni best fyrir kom- ið við aðstæður hér á landi. Ekki er verið að greina frá tölulegum niður- stöðum heldur fyrst og fremst verið að vekja athygli á þeim möguleikum sem tiltækir eru þegar kemur að ný- byggingum og endurbyggingu eldri gripahúsa. Mikil nauðsyn er á að geta lagt meiri áherslu á rannsóknir sem snerta samspil á milli áburðar- geymslna og búfjárhúsa, bæði með tilliti til tæknilegra atriða, nýtingar á áburðarefnum og svo mengunar. Æskilegt væri að leggja meiri vinnu í hagkvæmnisútreikninga á hinum ýmsu geymsluaðferðum þannig að leiðbeiningastarfsemin og bændur fengju skýrari viðmiðanir í þeim efnum. I framtíðinni þarf að einfalda geymslu- og blöndunartækni eins og kostur er og kanna áhrif vatnsblönd- unar á búfjáráburðinn og með tilliti til nýtingar. Þá þyrfti einnig að gera athuganir á dreifingartækni, einkum að bera saman yfirborðsdreifingu og ídreifingu búfjáráburðar. Ennfrentur væri gagnlegt að kanna betur áhrif þjöppunar á jarðveg með ólíkum flutningatækjum og flothjólbörðum. Heimildaskrá Við samantekt efnisins er stuðst við upp- lýsingar frá framleiðanda að geymslu- tanknum, Malgar, Lancaster Bros Lim- ited, Englandi og umboðsaðila hans Vélaval-Varmahlíð hf. og auk þess eftirfarandi heimildir: Berg, Knut, 1994. Lagring og handtering av husdyrgjödsel. Norges Landbruks- högskole, Institutt for tekniske fag, 59/1994, Norge. Erna Bjamadóttir & Stefán Valdimarsson, 1992. Verðmæti búfjáráburðar. Rit bú- vísindadeildar, nr. 1, Nýting búfjár- áburðar. Bændaskólinn á Hvanneyri: 53-61. Grétar Einarsson, 1992. Tækni við með- höndlun búfjáráburðar. Rit búvísinda- deildar, nr. 1, Nýting búfjáráburðar. Bændaskólinn á Hvanneyri: 81-91. Gunnar Jónasson, 1998. Lánastofnun land- búnaðarins. munnlegar upplýsingar. Livestock Waste Facilities Handbook, 1985. An agricultural engineering program of 13 Universities serving homeowners, farmers and industry. Midwest plan service. Lund, Morten, 1973. Utendörs lager eller gjödselkjeller for blautgjödsel. Institutt for bygningsteknikk, melding nr. 71. Norges Landbmkshögskole. Magnús Sigsteinsson, 1996. Lausgöngu- fjós með legubásum, bráðabirgða- skýrsla (fjölrit). Bændasamtök Islands. Morken, John, 1994. Ammoniakktap fra husdyrrom og gjödsellager. NLH, Insti- tutt for tekniske fag, melding nr. 13. Nilsson, Christer, 1974. Lagringsbehállare för flytgödsel. Akuellt frán Lantbruks- högskolan 203, teknik 24, Uppsala. Pétur Diðriksson, 1992. Notkun og verð- mæti búfjáráburðar. Rit búvísindadeild- ar, nr. 1, Nýting búfjáráburðar. Bænda- skólinn á Hvanneyri: 63-63. Ryeng, Vidar, 1996. Maskinbrug pá jord i nord. Driftsteknikk tilpasset natur- grunnlaget. Landbrugsforlaget, Oslo. Simensen, Egil, 1986. Husdyrhygiene. Yrkeslitteratur as., Oslo. Sörensen, Claus Grön, 1993. Gylle kontra fast og flydende staldgödning. Land- brugsministeriet Statens Jordbrags- tekniske Forsög, beretning nr. 54/1993. Storing, handling and spreading of manure and municipal waste, 1988. Seminar of the 2nd and 3rd Technical Section of the C.I.G.R. Jordbrukstekniska insti- tutet rapport 96: 1 og 2. Útitankar fyrir mykju Framhald af bls. 15. kr. 4.740 á hvern rúmmetra. Til sam- anburðar er verð mykjukjallara u.þ.b. 5.995 kr/m’ miðað við 350 m’ stærð og 5.005 kr/m’ miðað við 800 m’ stærð (Gunnar M. Jónasson, Lánasjóði landbúnaðarins). Mykju- kjallari með steyptri loftplötu utan við gripahús yrði talsvert dýrari. Það skal þó enn tekið fram að aðstæður geta skekkt samanburðinn á hvom veginn sem er. I framhaldi af þess- um samanburði má svo spyrja hvort hægt sé að reikna með jafnlöngum endingartíma útitankanna. Utitönkum má telja það til kosts að auðvelt og fljótlegt er að koma þeim upp. Sem annmarka má helst nefna að þeir geta orðið talsvert áberandi í ásýnd bæjarhúsanna og e.t.v. að sumra mati til óprýði. Þó að mikil reynsla sé af notkun slflcra tanka erlendis er hún nánast engin hér á landi, og e.t.v. geta komið upp vandamál í snjóþungum héruðum. Ef það skeflir að tanknum þarf að gera viðeigandi öryggisráðstafanir með girðingu til þess að vama því að börn og skepnur geti farið sér að voða. Urkoma lendir að sjálfsögðu í tankinn og eykur það magn sem aka þarf á völl. Heimildaskrá: Grétar Einarsson 1998. Athugun á notkun útitanka við geymslu búfjáráburðar, Ráðunautafundur 1998. GunnarM. Jónasson, 1998, Lánasjóður land- búnaðarins, byggingakostnaður 1998/1. Ymsir auglýsingabæklingar frá framleið- endum útitanka. Molar Stuðlað að kynslóðaskiptum í norskum landbúnaði 1 Noregi starfa tvenn bændasamtök og þau semja árlega við stjórn- völd um framlög hins opinbera til landbúnaðarins, jafnframt því sem samið er um framleiðendaverð helstu búvara. A þessu ári var jafnframt samið um framlög til að flýta fyrir kynslóðaskiptum á jörðum. Akveðið var að bændur á aldrinum 62- 67 ára, sem búið hafa í 15 ár eða lengur, geti farið á eftirlaun ef næsta kynslóð er að taka við jörðinni. Eftirlaunagreiðslur eru um kr. 850 þúsund til einstaklings, en kr. 136 þúsund til hjóna og eru þessar greiðslur hluti af framlögum hins opinbera til landbúnaðar- ins. (Internationella Perspektiv nr. 19/1998) 12-Freyr 9/98

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.