Freyr - 01.03.1999, Qupperneq 33
* Rakastig kornsins og hlutfall
korns og hálms.
* Mötun uppskerunnar í vélina.
* Ferilhraði þreskivalar og bil
milli valarins og þreskihvelfunnar.
* Loftmagn og stillingar sálda í
hreinsiverkinu.
Til þess að fylgjast með vinnu-
brögðunum getur ökumaður skoðað
kom sem kemur í komgeymi og oft-
ast kom sem kemur með hratsnigli
líka, án þess að stíga af vélinni. En
hann verður jafnffamt að gæta að því
sem kemur aftur úr vélinni til þess að
geta lagað stillingar eða ökulag ef of
mikið kom fylgir með hálminum.
Hálmstrengurinn frá vélinni er góður
mælikvarði á vinnubrögðin. Ef
hálmurinn kemur í haugunt aftur úr
vélinni en ekki í jöfnum streng þá er
klárlega eitthvað að vinnubrögðun-
um og örugglega rnikið korntap sem
fylgir því. Helstu ástæður geta verið
þessar:
* Akurinn er lagstur óreglulega í
allar áttir, eða af einhverjum öðrum
ástæðum gengur ekki að mata jafnt
í vélina.
* Lágvaxinn gróður en langt
skurðarborð, ekki hefur tekist að
stilla sópvinduna þannig að hún
fylgi uppskerunni eftir inn í snigil-
inn, uppskeran safnast fyrir á
skurðarborðinu framan við snigil-
inn og fer inn í þreskiverkið í haug-
um.
* Hálmurinn safnast upp í hrúgur
á hálmhristlinum, framan við hálm-
spjaldið, aftan við hálmvindu.
Hálmhristillinn vinnur þá ekki sem
skyldi og kornið fylgir með hálm-
inum aftur af vélinni. Stafar oftast
af rangri stillingu hálmspjalds eða
of miklum ökuhraða.
Hallandi land
Þreskivélar eru afar viðkvæntar
fyrir halla. Ef ekið er í hliðarhalla
þá safnast uppskeran út í aðra hlið-
ina á háimhristli og í hreinsiverki
og afkastagetan minnkar mjög
hratt. Við 10% halla minnkar af-
kastagetan um 1/3 og í 20% halla
minnkar hún um 2/3. Fram-
leiðendur hafa reynt að bregðast
við þessu, t.d. nteð því að láta
vélina rétta sig af sjálfa, eða að
bara hreinsiverkið rétti sig af þegar
ekið er í halla. Einnig er reynt að
skipta hreinsiverki og hristli í
nokkur hólf eftir endilöngu með
þilplötum. Þegar ekið er niður
halla gengur hálmurinn hægar
aftur eftir hálmhristlinum og hálm-
lagið verður þykkara, og þegar
ekið er upp halla gengur hálmur-
inn hraðar aftur af og hálmhristill-
inn fær því minni tíma til að hrista
kornið úr hálminum. Almennt má
því segja að þegar ekið er í hall-
andi landi þá er ástæða til að draga
nokkuð úr ökuhraðanum til þess að
forðast aukið korntap.
Axgreiður
Til kornskurðar hefur verið
þróaður búnaður sem settur er í
stað skurðarborðs á hefðbundna
þreskivél og kallast axgreiða
(enska: stripper). Axgreiðan sker
ekki á stöngulinn heldur eru
fíngerðir plastfingur sem strjúka
kornin úr öxunum og sópa þeim
inn í vélina. Þetta þýðir það að
hálmmagnið sem kemur inn í
vélina minnkar niður í u.þ.b.
fjórðung af því sem kemur með
venjulegu skurðarborði. Afköst
þreskibúnaðarins aukast í sam-
ræmi við það, enda kormhálm
hlutfallið mjög stór áhrifaþáttur í
afkastagetu þreskivéla. Axgreiðu-
hugmyndin er mjög gömul (meira
en 2.000 ára) en það er fyrst nú á
síðustu árum sem fundin hefur
verið upp tækni sem gerir þetta
mögulegt án þess að korntapið
verði óásættanlegt. Jafnvel virðist
vera sem korntap geti verið minna
en með hefðbundinni aðferð þegar
kornið er illa þroskað og með hátt
rakastig. Það er því athugunarefni
hvort þetta sé eitthvað sem vert
væri að reyna hérlendis. Galli við
þessa aðferð er að hálmurinn
stendur eftir á akrinum og þarf að
slá hann sérstaklega ef á að nýta
hann.
Að Iokum
Þó að hér hafi verið týnd til nokk-
ur atriði um þreskivélina þá vantar
mikið á að um tæmandi umfjöllun
sé að ræða. Ekkert hefur t.d. verið
talað um hreyfilinn, drifrásina,
stjórnbúnað, aðbúnað í ökumanns-
húsi, tæmingu geymis, aksturs-
tækni, viðhald og eftirlit, heldur
hefur einungis verið fjallað um þá
hluta vélarinnar sem snúa að ferða-
lagi kornsins í gegnurn vélina, í
þeirri von að það verði einhverjum
að gagni til betri skilnings á því
með hvaða hætti kornskurður og
kornþresking fer fram.
Heimildir
Bjarni Guðmundsson, 1997. Verkun
og geymsla korns. Bændaskólinn á
Hvanneyri, Búvfsindadeild, 27 s.
Bjarni Guðmundsson, 1999. Munn-
legar upplýsingar.
Claesson, S., Svedsáter, S.Á. &
Áberg, E., 1972. Skördetröskning. JTI
Medd. 344, 115 s.
Culpin, C., 1992. Farm Machinery.
Blackwell Sci. Publ., 444 s.
Hagþjónusta Landbúnaðarins, 1998.
Úttekt á hagkvæmni kornræktar á
íslandi, ásamt samantekt um stuðning
við kornrækt í þekktum kornræktar-
löndum, 49 s. + fylgiskjöl.
Heir, J.A., 1998. Skurtreskere og
skurtresking. Landbruksforlaget, 172 s.
Heir, J.A. & Widnes, O.I., 1994.
Skurtreskeren og skurtresking. ITF
Melding 9-1994, 19 s.
Ingvar Björnsson, 1998. Axgreiðu-
tækni í kornrækt. Námsv. við
Bændask. á Hvanneyri, Búvísindad., 11
s. (óbirt).
Lundin, G„ 1989. Skördetröskning
með reparbord. Tekn. f. lantbruket 17.
JTI, 11 s.
Lundin, G„ 1993. Skördetröskning
með reparbord. JTI Medd. 443, 48 s.
Lundin, G. & Claesson, S„ 1985.
Skördetröskning. JTI Medd. 409, 105 s.
Páll E. Ólafsson & Þorsteinn
Jóhannsson, 1998. Þreskivélar. Náms-
verkefni við Bændask. á Hvanneyri, 7
s. (óbirt).
Witney, B„ 1988. Choosing &
Using Farm Machines. Longman Sci.
& Technical. 412 s.________________
FREYR 2/99 - 33