Freyr - 01.03.1999, Qupperneq 39
Landbúnaður í ESB
Hin mikla notkun aðfanga í
landbúnaði í löndum ESB
leiðir til margvíslegs skaða
á umhvertinu. Þess vegna er brýnt
að breyta styrkjakedi Iandbúnað-
arins í ESB í grundvallaratriðum.
Þetta er niðurstaða skýrslu sem
nýlega var lögð fram í
höfuðstöðvum ESB í Brussel.
Við viljum að framlögin skili okkur
betra umhverfi, er haft eftir Ritt
Bjenegaard, stjómanda umhverfis-
mála innan ESB. Hún, ásamt Franz
Fischler, landbúnaðarstjóra samband-
sins, kynntu skýrsluna.
Embættismannanefnd ESB leggur
til að stuðningur við landbúnað innan
sambandsins gangi beint til hvers
bónda, en verði ekki greiddur út á
framleiðsluna. I stað stefnu sem verð-
launar stórrekstrur og hefur leitt til
mikils skaða á umhverfinu, eigum við
að halda á lofti verðmætum
náttúrunnar og umhverfisvænum
landbúnaði, segir Ritt Bjerregaard.
Skaddað land
I áðurnefndri skýrslu lýsir em-
bættismannanefnd ESB því í fyrsta
sinn hvernig sá búrekstur sem
kenndur hefur verið við verksmiðju-
búskap veldur skaða á umhverfinu.
Óeðlilega hátt verð á búvörum hefur
ýtt undir bændur að auka notkun jurt-
arvamarefna, áburðar og annarra
vaxtaraukandi efna til að ná sem
mestri framleiðslu. Afleiðingin hefur
orðið að jarðvegur og grunnvatn hef-
ur spillst.
Nú er svo komið að í 87% af
ræktunarlandi í löndum ESB er inni-
hald óæskilegra efna meira en reglur
segja til um. A.m.k. 157 milljón
hektarar af ræktunarlandi eru að
spillast vegna þess að reynt er að pína
það til að gefa sem mesta uppskeru.
Þetta á einkum við um Miðjarðar-
hafslöndin.
Við emm neydd til að skilgreina
upp á nýtt samband landbúnaðar og
umhverfis, segir Franz Fischler.
Þetta útspil Bjerregaards og
Fischlers kemur á þeim tíma þegar
lokahrina í stefnumótun ESB í land-
búnaðarmálum sendur yfir, en niður-
staða hennar á að liggja fyrir í mars á
þessu ári.
Gerð verður krafa um að tekið verði
tillit til tillagna Embættismanna-
nefndar ESB í umhverfismálum þegar
landbúnaðarstefnan verður ákveðin.
Ef það verður ekki gert mun krafa
hinna pólitísku þjóðarleiðtoga um að
umhverfismál eigi að vera þáttur í
stefnu ESB í landbúnaðarmálum
hljóma sem innantóm glamuryrði,
segir Ritt Bjerregaard.
Skiptar skoðanir
Margir áhrifamiklir stjórnmála-
menn og framámenn í landbúnaði
innan ESB eru tortryggnir á
umtalsverðar breytingar á land-
búnaðarstefnunni. Þeir óttast að þær
leiði til þess að margar jarðir leggist í
eyði og að verksmiðjubúskapur muni
mæta auknum andbyr. Miklir hags-
munir eru þannig í húfi.
Talsmenn lífræns og vistvæns land-
búnaðar gagnrýna einnig tillögumar
og telja þær útvatnaðar og án
nokkuna skuldbindinga.
(Bondebladet nr. 5/1999)
Ritt Bjerregaard, stjórnandi umhvetfismála innan ESB.
FREYR 2/99 - 39