Freyr - 01.05.1999, Blaðsíða 4
Haraldur Sveinsson sauðfjár- og hrossabóndi á Hrafnkelsstöðum:
Nýja kjötmatið
er mikil framför
Haraldur Sveinsson hefur í
rúm 30 ár rekið sauðfjár-
bú að Hrafnkclsstöðum í
Hrunamannahreppi. A þessum
tíma hefur margt breyst í þessari
grein og hefur Haraldur ákveðn-
ar skoðanir á mörgu því sem er
að gerast í þeim málum.
Haraldur fæddist á Hrafnkelsstöð-
uni 1941 og ólst þar upp. Hann hef-
ur búið þar alla ævi að frátöldum
þeim tíma þegar hann var i námi.
Eftir skyldunám var hann einn vetur
í Iþróttaskóla Sigurðar Greipssonar í
Haukadal. Hann lauk búfræðiprófi
frá Bændaskólanum á Hvanneyri
1961 og þremur árum síðar tók hann
síðan við búrekstri á Hrafnkelsstöð-
um af hinum kunna fjárræktarmanni
Helga Haraldssyni sem var móður-
bróðir hans. Helgi lést árið 1984.
Haraldur hefur búið á Hrafnkels-
stöðum síðan 1964 ásamt konu
sinni, Jóhönnu Bríet Ingólfsdóttur
frá Iðu í Biskupstungum. Þau eiga
tvo uppkomna syni.
Um 1930 varð vakning í sveitinni í
sauðfjárrækt. Þá var leitað að ungum
manni til að fara norður í Þingeyjar-
sýslu til að kynna sér hana. Ur varð að
Helgi Haraldsson dvaldist einn vetur í
Mývatnssveit á vegum Búnaðarfélags
Hmnamanna. Hann kom svo suður
um vorið með nokkrar kindur. „Hann
þuidfi að reka kindumar til Húsavíkur
i skip. Skipið fór til Reykjavíkur og
síðan var féð rekið hingað austur. Upp
úr þessu stofhaði hann sauðfjárkyn-
bótabú sem var að hluta styrkt af Bún-
aðarfélagi íslands og Búnaðarsam-
bandi Suðurlands. Það kom gott kyn-
bótafé út af þessu fé sem dreifðist um
sveitir,“ segir Haraldur.
Arið 1951 urðu fjárskipti þar sem
þurfti að skera niður fé vegna mæði-
og gamaveiki sem komið hafði upp.
Þá fékk Helgi aftur valið fé úr Þing-
eyjarsýslu og var því fljótur að byggja
upp sterkan stofh. Árið 1964 hætti
Helgi síðan fjárbúskap og Haraldur
tók við.
Haraldur segir að þegar hann hafi
tekið við búinu hafi lítið verið um
byggingar. „Þama var eitt fjárhús sem
tók 60-70 kindur. Við þurftum að
byija á því að byggja yfir okkur íbúð-
arhús, sem var kannski ekki hag-
kvæmt fyrir reksturinn, en þetta hafð-
ist allt saman. Síðan var byggt nýtt
fjárhús, vélageymsla og hesthús
1987.“ Nú em á búinu um 300 ær og
með gemlingum og hrútum er hann
með um 370 ljár. Meðffam þessu
reka þau hjónin síðan tamningastöð
fyrir hross og er þetta 36. veturinn
sem þau gera það. Þar temja þau bæði
fyrir sig sjálf og aðra.
Haraldur segir að oft hafi verið sagt
bæði í gríni og alvöru að hrossin hafi í
raun og vem unnið fyrir sauðfénu.
„Nú á seinni ámm hefúr staðan verið
sú að manni hefúr fúndist lítill afgang-
Haraldur Sveinsson og kona hans, Jóhanna Bríet Ingólfsdóttir, í jjárhúsinu.
4- FREYR 5-6/99